Fréttablaðið - 19.02.2002, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2002
FRETTABLAÐIÐ
19
Listamenn bregðast við
atburðum sögunnar:
Komandi
kynslóðum til
upplýsingar
list Listin bregst við atburðum
líðandi stundar og endurspeglar
oft atburði samtímans. Bin
Laden er því býsna vinsælt við-
fangsefni listamanna víða um
heim. Hér sést verk eftir tæ-
lenskan myndlistarmann af Bin
Laden ríðandi á erni á Tvíbura-
turninum í New York.
Verkinu hefur hann komið
fyrir á Klang Bang Kaew must-
erinu sem er 50 kílómetrum
vestur af Bangkok. Að sögn
Guðmundur Ingólfsson sýnir úrval Ijós-
mynda úr fjórum syrpum sem hann
hefur unnið að undanfarna tvo áratugi.
Sýningin er í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Opnunartími er 12-17
virka daga og 13-17 um helgar. Sýning-
in stendur til. 24. mars.
Sýning á verkum eftir Gerlu stendur nú
yfir í Þjóðarbókhlöðunni í sýningaröð-
inni Fellingar. Fellingar hóf göngu sína í
júní á síðasta ári og er sýning GERLU
sú áttunda í röðinni. Fellingar er sam-
starfsverkefni Kvennasögusafnsins,
Landsbókasafns (slands - Háskólabóka-
safns og þrettán starfandi myndlistar-
kvenna. Opnunartíma Kvennasögu-
safnsins er milli klukkan 9 og 16 alla
virka daga.
i Listasafni íslands standa fjórar sýning-
ar á verkum í eigu safnsins. Sýningarn-
ar nefnast einu nafni Huglæg tjáning -
máttur litarins. Dæmi af íslenskum ex-
pressjónisma. Sýnd eru verk Jóhannes-
ar S. Kjarval, Finns Jónssonar, Jóhanns
Briem og Jóns Engilberts. Listasafn (s-
lands er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 11 til 17. Ókeypis er í safnið á
miðvikudögum. Sýningin stendur til 14.
april.
I Húsi málaranna, á Eiðistorgi, Seltjarn-
arnesi sýna nú Haukur Dór og Einar
Hákonarson, en þeir eru jafnframt for-
stöðumenn hins nýja sýningarsalar.
Hannes Lárussonsýnir í Vestursal Lista-
safns Reykjavíkur - Kjarvalstöðum. Ell-
efu hús hafa verið reist og nefnist sýn-
ingin Hús í hús. Hún stendur til 1. april.
Afmælissýning Myndhöggvarafélags
Reykjavíkur er haldin í miðrými Lista-
safns Reykjavikur - Kjarvalsstöðum i til-
efni af 30 ára afmæli félagsins. Sex
listamenn hafa verið valdir úr röðum
félagsins til að sýna á þremur aðskild-
um sýningum, tveir og tveir í senn. Þeir
sem sýna núna eru Níels Hafstein og
Sólveig Aðalsteinsdóttir. Sýningin
stendur til 24. febrúar.
Kristinn Pálmason heldur málverkasýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls. Á sýning-
unni verða óhlutbundin málverk og
tölvuunnar sviðsettar Ijósmyndir. Mál-
verkin eru bæði unnin í olíu og akríl
með mismunandi aðferðum.
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi
sýnir þýski listamaðurinn Bernd Koberl-
ing olíu- og vatnslitamyndir sem hann
hefur unnið fráárinu 1988, m.a. hér á
landi. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga
10-17 og miðvikudaga 10-19. Sýningin
stendur 3. mars.
Þrjár sýningar eru nú í tengslum við
Gallerí Fold. ( Rauðu stofunni er sölu-
sýning á 18 pastelverkum eftir Hring
Jóhannesson. Verkin eru myndaröð
sem hann vann árið 1990 á sólar-
strönd. f Ljósafold stendur yfir kynning
á IjósmyndumMagnúsar Óskars Magn-
ússonar en á síðasta ári kom út bókin
Face to Face eftir Magnús. í Baksalnum
sýnir Inger Helene Bóasson Ijósmyndir
en sýninguna nefnir listakonan Litið
um öxl. Safnið er opið daglega frá kl.
10-18, laugardaga kl. 10-17 og sunnu-
daga kl. 14-17.
Hjá Ófeigi, Skólavörðustíg 5, sýna lista-
menn sem reka gallerí Meistara Jakob í
sama húsi, til janúarloka. Listamennirn-
ir eru Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdótt-
ir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, listvefn-
aður, Elísabet Haraldsdóttir, leirlist Guð-
ný Hafsteinsdóttir, leirlist Kristín Sigfríð-
ur Garðarsdóttir, leirlist Kristin Geirs-
dóttir, málverk, Margrét Guðmunds-
dóttir, grafík Sigriður Ágústsdóttir, leir-
list Þorbjörg Þórðardóttir, listvefnaður
Þórður Hall, málverk.
Sýning á verkum Þórðar Hall myndlist-
armanns stendur yfir í Hallgrímskirkju
um þessar mundir. Sýningin er opin
alla daga frá 9-17 og er aðgangur
ókeypis. Sýningin stendur til 20. febrú-
ar.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabiadid.is
Búdda nunnan Gen Nyingpo:
Kennir fólki að
halda ró sinni
BIN LADEN Á ERNI
Tælenskur myndlistarmaður leggur loka-
hönd á verk sitt af Bin Laden ríðandi á erni.
listamannsins á listaverkiö að
upplýsa kynslóðir framtíðarinn-
ar um söguna. ■
fyrirlestur Búdda nunnan Gen
Nyingpo ætlar í kvöld að kenna
fólki hvernig hægt er að halda ró
sinni þegar hlutir fara úrskeiðis
í fyrirlestraröð sem ber yfir-
skriftina „How to solve our an-
ger problem" Hún segir alla
þjást af völdum reiði. Allt frá
minnsta pirringi til skapofsa
eyðileggi reiði ró okkar og ham-
ingju. Mörg af þeim vandamál-
um og ágreiningi í þessum
heimi, rifrildi í samböndum, erf-
iðleikar á vinnustað sem og ríg-
ur á milli þjóða, sé hægt að rekja
til reiði. Með því að læra aðferð-
ir til að uppræta reiði, eins og
ást og þolinmæði sé hægt að yf-
irstíga öll þessi vandamál.
Fyrirlestrarnir eru haldnir á
vegum Karuna samfélags Ma-
hayana búddista. Kennslan fer
fram í stofu 101 í Odda, Háskóla
Islands næstu þrjú þriðjudags-
kvöld og hefst klukkan 20. Gjald
er 1000 krónur fyrir hvert skipti
en 500 krónur fyrir nema, at-
vinnulausa og öryrkja. Kennslan
BÚDDA NUNNA
Gen Nyingpo segir fjöiskyldur og sam-
bönd öðlast meiri samhljóm ef unnið er
bug á reiði.
fer fram á ensku og er hvert
skipti sjálfstæð eining. Allir eru
velkomnir. ■
PAUL MCCARTNEY
Sala á frímerkjunum hefst 1. júlí næstkomandi.
Bítillinn Paul McGartney:
Hannaði frímerki
í þágu góðgerðar-
starfsemi
bretland Fyrrum með-
limur Bítlanna, Paul
McCartney, hefur verið
ötull baráttumaður fyrir
hreinsun svæða af jarð-
sprengjum. Nú hefur
rokkstjarnan hannað frí-
merki sem eiga að koma
til sölu 1. júlí næstkom-
andi í þeim tilgangi að
afla fjár til baráttunnar.
Mun allur ágóðinn renna
í Adopt-A-Minefield sem
hann er í forsvari fyrir
ásamt heitkonu sinni He-
ather Mills.
Einfaidar blómateikningar
prýða frímerkin sem McCartney
hannaði sjálfur. Ráðgert er að
prenta 170.000 arkir og talið er að
BLÓMASKREYTINGAR
Paul McCartney kom ný-
lega út úr skápnum sem
listmálari.
þær muni renna út eins
og heitar lummur. Þar
verði fremstir í flokki
aðdáendur bítilsins
roskna. Ekki er vitað til
þess að jafn frægur
tónlistarmaður á borð
við McCartney hafi
áður hannað og gefið út
frímerki. Var hann beð-
inn um að sinna þessu
verkefni í kjölfar
myndlistarsýningar
sem hann hélt í New
York fyrir tveimur
árum sem naut mikillar
Sagðist hann við það
vinsældar.
tækifæri hafa málað f laumi í 15 ár
en nú væri hann kominn út úr
skápnum. ■
Saga heilagrar Önnu
komin út:
Heilög Anna
dýrkuð mest
um 1500
bækur Út er komin bókin Saga heil-
agrar Önnu hjá Stofnun Árna
Magnússonar. Saga heilagrar
Önnu er þýðing helgisagnarinnar
um Önnu móður Maríu meyjar,
lágþýskrar gerðar sem var prent-
uð í Braunschweig 1507. íslenski
textinn hefur varðveist í tveimur
óheilum handritum, hið eldra er
talið vera frá öðrum fjórðungi
sextándu aldar, en hið yngra frá
fyrri hluta sautjándu aldar.
í útgáfunni eru handritin gefin
út stafrétt. í formála er gerð grein
fyrir sögunni, og handritunum og
sambandi þeirra við þýska text-
ann. í biblíunni er hvergi minnst á
móður Maríu, en í apókrýfu guð-
spjalli frá annarri öld er sögð af
henni saga. Helgisaga þessi dreifð-
FRÆÐILEG
ÚTGÁFA
(útgáfunni á
Sögur heil-
agrar Önnu
er að finna
stafréttan
texta og for-
mála þar sem
gerð er grein
fyrir sögunni
og handritun-
um sem hún
hefur varð-
veist í.a
ist fljótt víða og jókst að efni. Auk-
in Maríudýrkun á hámiðöldum
varpaði ljóma á móðurina, og í
Norður-Evrópu naut Anna mikillar
hylli við lok miðalda. Heilagrar
Önnu er getið í íslenskum ritum á
13. og 14. öld, en dýrkunar hennar
gætir mest urn 1500. Líkneski frá
því um 1500 af þeirn mæðgum
Ónnu og Maríu með Jesú var eign
kirkjunnar í Holti í Önundarfirði
og er nú á Þjóðminjasafni. Kirsten
Wolf er prófessor í Norðurlanda-
málum við Wisconsinháskóla í
Madison. ■
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 ■ MYNOSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996 - 2016,
Bleikjukvísl nr. 10.
í samræmi við 2. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016.
Tillagan lýtur að því að breyta landnotkun
lóðarinnar Bleikjukvíslar nr. 10 úr almennu
útivistarsvæði í stofnanasvæði. Breytingin er gerð
til þess að samræmi sé á milli deiliskipulags
lóðarinnar og aðalskipulags en deiliskipulag
svæðisins gerir ráð fyr'r að heimilt sé að reisa á
lóðinni dagvistarstofnun / leikskóla.
Til upplýsingar skal þess getið að samhliða
breytingu þessari er í grenndarkynningu tillaga að
óverulegri breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar þar
sem m.a. er gert ráð fyrir óverulegum breytingum
á byggingarreit lóðarinnar.
Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 19. febrúar til 19. mars 2002.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér
með gefinn kostur á að koma með ábendingar og
gera athugasemdir við tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 20. mars 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 19. febrúar 2002
Skipulags- og byggingarsviö.
Borgaskóli
Tvo starfsmenn vantar í
afleysíngar til vors:
Stuðningsfulltrúi,
50%.
Starfsmaður í mötuneyti,
75% starf.
Upplýsingar gefur skólastjóri í
síma 577 2900.