Fréttablaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á WÍSÍr-*ÍS Fyrstur með fréttirnar
HYUNDAI Mu!ti(SS>
Total IT Solution Provider
Hagkvæm og traust tölva
f^TÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
Umboðsaðili HYUNDAI á íslandi
Kristinar Helgu Gunnarsdóttur
Steiktir fávitar
Málfrelsi, prentfrelsi og tjáningar-
frelsi. Trúfrelsi, einstaklings-
frelsi, talfrelsi, valfrelsi. Frelsi! Við
lifum á tímum frelsisins mikla. Mark-
aðskóngar og mikilmenni nærast á
frelsinu og fara frjálslega með það.
Frelsið er söluvara og markhópurinn
er fundinn! Markaðurinn er börn og
unglingar- stórkostlegur hópur sem er
svo einstaklega opinn og einlægur
neytandi. Barn hefur ekki fullmótaða
lífssýn. Barn byggir ekki á reynslu og
er því opnara fyrir allri reynslu sem í
boði er. Að selja barni vöru er bein-
asta leiðin að skjótasta gróðanum og
nú stendur enginn í veginum.
—♦—
Ef ljónin birtast og að malda í móinn
eru þau eins og feitir og mjálmandi
fresskettir sem markaðsfrelsið hlær
að. Frelsið er komið, óheftur aðgangur
að heilabúum þeirra yngstu. Pínulítil
sjónvarpsstöð úti í bæ má hella inn í
eyrun á þeim notalegu dönsku kynlífs-
hjali með aðstoð Jonna alþjóðlega og
barnaherbergin eru troðfull af mót-
tökutækjum. Leiðin er bein og breið.
Bjartasta vonin boðar börnunum of-
beldi og nauðganir. Stefnumótasjón-
varp hvetur til fjálglegra leiklýsinga.
Rökin eru að alltaf verði að ganga
lengra til að ná athygli, markaðurinn
krefjist þess.
---4>-
SJOKKERAÐIR sjúkrahúslæknar
segja sorglegar sögur úr sam-
kvæmislífi unglinga. Fórnarlömb
nauðgana fylla rútur af útihátíðum.
Frelsararnir klóra sér í kollinum, segj-
ast ekki vera barnapíur segjast aðeins
vera að mæta háværum kröfum sem
koma út úr barnaherbergjunum. Ef
mark skal taka á slíkum rökum má
hver maður prísa sig sælan að vera
ekki barn eða unglingur eftir hálfa öld
eða svo. Hvað gera frelsararnir þá til
að fanga athyglina? Þær vinkonur, ör-
sök og afleiðing eru á eilífri útihátíð
og enginn hirðir um þær.
iviittí frelsinu bisast luralegir dóm-
stólar við að dæma hin og þessi um-
mæli dauð og ómerk, ummæli sém eru
svo ómerkileg að enginn man þau dag-
inn eftir. Þeir dæma kynþáttahatara
fyrir fordóma og meiðandi ummæli,
en frelsið til að tjá ofbeidi og niður-
lægingu er óskert.
Kannski eru sakiausir markaðsmenn
aðeins að svara kröfum úr barnaher-
bergjum landsins. Kannski eru það
uppalendur þessa lands sem ættu að
líta inn í þessi barnaherbergi við og
við, jafnvel setjast niður og spjalla.
Eða mega þeir sín lítils gagnvart
barnamarkaðsvæðingunni? Eitt er
víst. Það eru steiktir fávitar sem sjá
ekki að myndin er brengluð. ■
Akureyri - Hótel KEA
Greifinn og Rósagarðurinn bjóða
ástföngin pör sérstaklega velkomin
með góðum tilboðum.
Egilsstaðir - Hótel Hérað
Sérstakur matseðill í boði
og gjöf handa konunni.
ísafjörður - Hótel ísafjörður
Gestum er boðið á leiksýningu,
„Vestfirskar þjóðsögur", hjá Litla leik-
klúbbnum á hótelinu á laugardagskvöld.
* Athugið að flugvallarskattar og
tryggingargjald eru ekki
innifalin í verði.
Hafið samband í síma 570 30 30
fax: 570 3001
webesals@flugfelag.is
Rómantískar helgarslaufur
í tilefni konudagsins
22. - 24. febrúar
á frábæru tiIboðsverði
Gerið ykkur dagamun með þeim sem ykkur þykir vænst
um. Eigið saman yndislega helgi, finnið ástina loga og
hjörtun slá. Látið stjana við ykkur á fyrsta flokks
hótelum og hafið það virkilega gott.
Verð frá
11.500 kr.
á manninn í tvíbýli, flug fram og til baka og gisting í eina nótt með morgunverði.
FLUGFELAG ISLANDS
— fyrir fólk eiits og þigí
Tandurhrein tilboð á þvottavélum,
þurrkurum og uppþvottavélum
15-20% afsláttur
BRÆDURNIR
ORMSSON
HEIMILISTÆKI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800