Fréttablaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
VILJA ÚTSENDINGAR
Netverjar eru allt
annað en sáttir við að
fá ekki að fylgjast með
vetrarólympíuleikunum
í sjónvarpi eins og
venja hefur verið til
undanfarin ár.
Saknarðu beinna útsendinga
frá ólympiuleikunum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Er þörf á siðareglum í stjórnsýsiunni?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun
__________________CSHa
Gufunes:
Kaupa svæði
Aburðarverk-
smiðjunnar
reykjavík Reykjavíkurborg hefur
samið við hluthafa Áburðarverk-
smiðjunnar um kaup borgarinnar á
fasteignum og aðstöðu fyrirtækis-
ins í Gufunesi. Kaupverðið er 1.280
milljónir króna. Til stendur að fjar-
lægja verksmiðjuna, ráðast í land-
fyllingar og byggja nýtt hverfi með
blandaðri byggð íbúða og atvinnu-
húsnæðis.
í samningnum er kveðið á um að
Áburðarverksmiðjan fjarlægi
ammoníaksgeymi og önnur mann-
virki sem tengjast efnavinnslu. Á
þeim flutningum að vera lokið fyrir
15. maí. Áburðarverksmiðjan leigir
aðstöðuna til 1. september á næsta
ári og hefur rétt til að leigja aðstöð-
una í eitt ár eftir þann tíma.
í tillögu aðalskipulags er gert ráð
fyrir 3200 íbúðum á svæðinu og at-
vinnuhúsnæði upp á 100.000 fer-
metra. Borgaryfirvöld telja að lóðir
geti orðið byggingarhæfar 2006. ■
..-4-.
Frádráttarbær framlög til
stjórnmálaílokka:
Ekki haldið
utanum
frádrátt
stjórnsýsla Ekki eru til upplýsingar
um hversu mikið fyrirtæki hafa
notfært sér heimildir til að draga
fjárframlög og gjafir til stjórnmála-
flokka frá sköttum.
Lögum samkvæmt geta fyrir-
tæki dregið fjárframlög sín til
stjórnmálaflokka frá skattastofni.
Fréttablaóið óskaði eftir upplýsing-
um frá Ríkisskattstjóra um í hvaða
mæli fyrirtæki hefðu nýtt sér þessa
heimild. Einnig hvernig fjárfram-
lögin skiptust milli stjórnmála-
flokka. í svari Ríkisskattstjóraemb-
ættisins kom fram að þessar upp-
lýsingar liggja ekki fyrir. Frádrátt-
ur sem þessi falli undir rekstrarút-
gjöld. Almennt hafi þess ekki verið
krafist að slíkur rekstrarkostnaður
yrði sundurliðaður og nafngreindur.
Deilt hefur verið um hvort fjár-
stuðningur einstaklinga og fyrir-
tækja eigi að vera gerður opinber.
Engin lög hafa verið sett um slíkt
hérlendis. Víða erlendis tíðkast að
framlög til stjórnmálaflokka skuli
vera opinber. Bandaríkjaþing sam-
þykkti hertar reglur um slíkt í síð-
ustu viku. ■
[ GRÆNMETI ]
Ahrifa tollalækkana á verð inn-
flutts grænmetis gætir strax
í dag í verslunum Hagkaups.
Verð á kínakáli, blómkáli, broc-
coli, selleríi og púrrulauk lækkar
um 10,71% í dag vegna breyting-
arinnar úr verndartollum í bein-
greiðslur til innlendra framleið-
enda. Að sögn Sigurðar Reynalds-
sonar, innkaupastjóra matvöru
hjá Hagkaup, er til hugsanlegt að
sveppir, kartöflur, hvítkál og
fleiri tegundir lækki einnig í
verði á næstunni.
2
20. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGISR
Flosi Eiríksson segir sig úr stjórn Landssímans:
Amælisverð afskipti ráðherra
landssíminn Flosi Eiríksson hefur
sagt sig úr stjórn Landssíma ís-
lands. Flosi segir vinnubrögð við
stjórn fyrirtækisins ámælisverð.
Flosi segir að stjórn Landssím-
ans ekki hafa komið að þeim
ákvörðunum sem henni beri, þ.m.t.
ráðningarmálum forstjóra, fjár-
festingar- eða framkvæmdaáætlun:
„Samgönguráðherra, einkavæðing-
arnefnd og aðrir hafa í sífellu verið
að taka ákvarðanir sem stjórnar-
innar er og jafnvel án vitundar
hennar, sem er ámælisvert."
„Kornið sem fyllir mælinn eru
sérkennileg viðskipti stjórnarfor-
mannsins og Landssímans. Þar með
FLOSI EIRÍKSSON
„Samgönguráðherra,
einkavæðingarnefnd
og aðrir hafa í sífellu
verið að taka
ákvarðanir sem
stjórnarinnar er og
jafnvel án vitundar
hennar, sem er
ámælisvert," segir
Flosi Eiríksson og
segir sig úr stjórn
Landssímans.
er brostinn trúnaður sem þarf auð-
vitað að vera á milli stjórnarfor-
manns og mín sem stjórnarmanns,"
segir Flosi.
Að sögn Flosa telur hann fyrr-
greind vinnubrögð stangast á við
það siðferðismat og vinnubrögð
sem hann reyni að viðhafa í með-
ferð almannafjár.
Friðrik Pálsson, stjórnarformað-
ur Landssímans, segir Flosa hafa
verið ágætan stjórnarmann. Frið-
rik segist ekki kannast við trúnaða-
brest á milli sín og Flosa. „Hann
hefur rétt á því að hafa sínar skoð-
anir á því hvernig stjórn fyrirtæk-
isins er hagað. Ég óska honum vel-
gengni á hans pólitísku braut,“ seg-
ir Friðrik.
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
kennari á Sauðarkróki, er varamað-
ur Flosa í stjórn Landssímans. ■
Góðráð Friðriks Pálssonar:
Unniðfyrir
aðra en Símann
síminn Friðrik Pálsson, stjórnar-
formaður Símans, segir að fyrir-
tæki hans, Góðráð, hafi ekki bara
unnið fyrir Símann heldur einnig
nokkur önnur fyrirtæki. Hann
vildi þó ekki nafngreina þau eða
tiltaka nákvæmlega hversu mörg
þau væru. Friðrik segir að veru-
legur hluti rekstrartekna Góðráðs
frá stofnun þess í maí 1999 hafi
komið til vegna viðskipta þess við
önnur félög en Símann. Hann vildi
ekki tilgreina nánar hversu fyrir-
ferðarmikill sá hluti starfseminn-
ar hafi verið í tveggja og hálfs árs
sögu Góðráðs. ■
Breyttu reglum fyrir
stjómarformanninn
Landssíminn breytti reglum sínum svo unnt væri að tengja stjórnarfor-
mann félagsins við breiðbandið. Ibúar við götu formannsins grófu sjálf-
ir upp garða sína og Síminn lagði breiðbandið í hús þeirra. Fram-
kvæmdastjóri hjá Símanum segir tilraunina ekki hafa gefist nógu vel svo
þessi leið sé lokuð öðrum.
landssÍMInn Reglum um lagningu
breiðbands Landssíma fslands
var sérstaklega vikið til hliðar
svo unnt yrði að verða við óskum
Friðriks Pálssonar, stjórnafor-
manns Landssímans, og ná-
granna hans um
tengingu að íbúð-
„Þetta var arhúsum þeirra á
geysilega Vesturbrún.
skemmtileg Friðrik fór
uppákoma. þess á leit við
Nágrannarnir Landssímann að
voru þarna fá tengingu að
hver um ann- heimili sínu á ár-
an þveran út í inu 2000. Þá var
garði að ekki á dagskrá að
grafa." tengja húsin við
Vesturbrún við
breiðbandið enda
var hvorki um að ræða nýtt hver-
fi né var verið að grafa upp göt-
una af öðrum ástæðum, svo sem
vegna endurnýjunar hitaveitu-
lagna.
Úr varð að Landssíminn bauð
íbúum Vesturbrúnar að leggja
breiðbandið að húsi þeirra ef þeir
græfu sjálfir fyrir línunni.
„Ég ræddi þetta við tækni-
mennina niður á Síma og það
varð að ráði að við myndum
prófa það að íbúarnir sjálfir
myndu grafa í gegn um garðana í
stað þess að brjóta sundur götur
og gangstéttir," sagði Friðrik í
gær.
Friðrik sagði að á Kleifarvegi,
sem er neðan við Vesturbrún,
hafi verið búið að leggja breið-
bandið samfara öðrum fram-
kvæmdum sem höfðu verið í göt-
unni. Þar hafi verið tenging rétt
neðan við garða húsanna á Vest-
urbrún sem hægt hafi verið að
setja í samband við.
„Þetta var geysilega skemmti-
BREIÐBAND í HVERFIÐ
Friðrik Pálsson stjórnarformaður og nágrannar hans tóku fram
skóflurnar í desember 2000 og grófu breiðbandinu leið inn I
hús sín eftir að Síminn ákvað að gera tilraun og verða við
óskum íbúanna um að fá breiðband heim til sín þótt það væri
annars ekki á áætlun fyrirtækisins.
leg uppákoma. Nágrannarnir
voru þarna hver um annan þver-
an út í garði að grafa,“ sagði Frið-
rik. Landssíminn boraði síðan
fyrir kaplinum inn í hús fólkins.
Þór Jes Þórisson, fram-
kvæmdastjóri breiðbandssviðs
Landssímans, sagði fyrirtækið
hafa viljað leita leiða til að ná
niður miklum kostnaði af breið-
bandstengingum.
„Þetta var tilraun sem gekk
svo sem bærilega. En fljótlega á
eftir kom upp bilun á lóð hjá ein-
um þátttakandanum. Þá vorum
við í þeirri stöðu að þurfa að fara
inn á einkalóð sem er óþægilegt
fyrir okkur. Þannig að við eigin-
lega settum þessa aðferðarfræði
í biðstöðu," sagði Þór Jes. Hann
tók þó fram að Landssíminn sé
enn opinn fyrir raunhæfum ósk-
um þeirra sem vilja taka þátt í
kostnaði við lagninguna.
Þegar rætt var við Þór Jes í
gær sagðist hann ekki hafa tiltæk
gögn um kostnað vegna breið-
bandstengingarinnar á Vestur-
brún. „En okkur fannst hann þó
vera í efri mörkunum," sagði
hann.
gar@frettabladid.is
Stjórnun Landssímans til umræðu á Alþingi:
I skjóli leyndar þrífst spillingin
alþingi Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
gagnrýndi harðlega að Sturla
Böðvarsson skyldi neita að svara
fyrirspurn hennar varðandi ráðn-
ingar- og starfslokasamninga
fyrrum forstjóra Landssímans á
Alþingi. Sturla vísaði til þess í
skriflegu svari sínu að samkvæmt
hlutafélagalögum væri honum
ekki skylt að greina frá þessum
upplýsingum. Þá áréttaði hann að
stjórnsýslan hafi verið í samráði
við Ríkisendurskoðun.
Fjölmargir stjórnarandstöðu-
þingmenn tóku undir gagnrýni Jó-
hönnu sem sagði engu líkara en
ráðherrann hefði eitthvað að fela.
„Við sjáum hvernig subbuskapur-
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
Jóhanna og fjöl-
margir aðrir þing-
menn stjórnar-
andstöðu gagn-
rýndu samgöngu-
ráðherra á þingi (
gær fyrir að neita
að upplýsa um
ráðningar- og
starfslokasamn-
inga forstjóra hjá
Símanum.
inn þrífst í skjóli þessara hlutafé-
lagalaga sem ráðherrar hlaupa í
skjól í. Þar sem stjórnendur
skammta sér laun og hlunnindi og
sjálftökuliðið lifir góðu lífi á opin-
bera spenanum," sagði hún.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar benti á
að Sturlu væri einungis heimilt að
halda til baka upplýsingum ef þær
gætu skaðað hagsmuni Símans.
„Ef hæstvirtur samgönguráð-
herra hefur rétt fyrir sér í þessu
efni, er það eingöngu vegna þess
að hann væri að leyna hér upplýs-
ingum úr starfslokasamningi við
fyrrverandi forstjóra sem ber-
sýnilega gætu skaðað hagsmuni
félagsins," sagði hann.
Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður Vinstri-grænna,
spurði hvað það væri sem ekki
þyldi dagsins ljós. „í skjóli leynd-
arinnar þróast spillingin, eins og
dæmin sanna,“ sagði hann. ■
Blóðugur sólarhringur:
22 fallnir í
bardögum
erlent Sex fsraelsmenn féllu og
einn særðist í árás Palestínumanna
á eftirlitsstöð nærri þorpinu Ein
Arik á Vesturbakkanum í gær-
kvöldi. Það þýðir að a.m.k. tólf
Palestínumennn og tíu ísraelsmenn
hafa fallið á einum og sama sólar-
hringnum, sem er sá blóðugasti í 17
mánaða átökum ísraela og Palest-
ínumanna.
Tveir Palestínumenn féllu og
fjórir særðust alvarlega þegar
ísraelsher skaut flugskeytum á
höfuðstöðvar klofningshóps Hamas
samtakanna á Gasasvæðinu í gær-
morgun. Þá skutu hersveitir ísraela
þrjá Palestínumenn til bana í flótta-
mannabúðum á Gasasvæðinu í gær-
morgun í hefndarskyni fyrir sjálfs-
morðsárásir þeirra. Tveir Palest-
ínumenn létust fyrr um morguninn
í skotbardaga við ísraelsher. ■
Bílastæðahús undir
Tjörninni:
Skiptar
skoðanir hjá
R-listanum
skipulag Skiptar skoðanir eru innan
R-listans um þá áform borgaryfir-
valda að byggja bílastæðahús undir
Tjörninni með pláss fyrir 230 - 280
bíla. í bókun sem Sólveig Jónas-
dóttir einn af fulltrúum R-lista í
umhverfis- og heilbrigðisnefnd
lagði fram á síðasta fundi hennar
varar hún við tillögum um fram-
kvæmd og röskun á Tjarnarsvæð-
inu vegna bílastæðahússins. Hún
bendir á að framkomnar tillögur
um þessa bygg-
ingu stangast al-
gjörlega á við
umræður um
þetta svæði á
seinni tímum.
Þar á meðal
hugmyndir um
friðlýsingu
vesturbakkans
og verndun
fuglalífs. í bók-
uninni mótmæl-
ir hún einnig þeim vinnubrögðum
að umhverfismálin verði afgreidd
með skipulagstillögunni í stað þess
að ráðast í sérstakt umhverfismat.
Sólveig segir að með þessari
bókun vilji hún benda á að það sé
ekki rétta leiðin til að leysa úr bíla-
stæðaskorti í miðborginni með því
að róta til í Tjörninni. Aðspurð
hvort hún bjóði upp á annan valkost
segir hún að það megi skoða ýmsar
aðrar leiðir eins og t.d. í tengslum
við byggingu tónlistarhússins við
Faxaskóla. Hún segir að það eigi að
láta Tjörnina vera í friði fyrir þess-
um framkvæmdum. Tjörnin sé
hjarta og sál borgarinnar. Á fundin-
um óskaði Sólveig eftir upplýsing-
um um áhrif fyrirhugaðra fram-
kvæmda á fuglalíf og lífríki Tjarn-
arinnar. Einnig eftir því hvaða áhrif
bygging Ráðhússins hafði á þessa
þætti á sínum tíma og um nýtingu
bílastæðahúsa í miðborginni. ■
RÁÐHÚSIÐ
Fulltrúar Reykjavíkur-
lista f umhverfis- og
heilbrigðisnefnd eru
ekki á eitt sáttir um
byggingu bilastæða-
húss í Tjörninni.