Fréttablaðið - 20.02.2002, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
20. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
GRÁLÚÐA OG KARFI
Á FÁUM HÖNDUM
30 stærstu sjávarútvegsfyrirtæki ársins ráða
yfir 65,5% allra veiðiheimilda þegar þær
eru umreiknaðar í þorskígildi. Staða fyrir-
tækjanna er sterkust þegar kemur að grá-
lúðu og karfa. Þar ráða þau yfir meira en
90 af hundraði veiðiheimilda. Á töflunni
má sjá þær fimm tegundir þar sem sam-
þjöppun veiðiheimilda er mest. Þorskur er
í níunda sæti á lista yfir tegundir. 30
stærstu útgerðirnar ráða yfir 58,2% af
þorskveiðiheimildum.
Heimild Rannsóknarstofa fiskiönadarins
KIRKJUMÚRINN f KIRKJUBÆ
Talið er að kórstólarnir sem Færeyingar end-
urheimta hafi verið ætlaðir í þessa kirkju.
Danir afhenda Færeying-
um forngripi:
Utskorncir
stólahliðar frá
Kirkjubæ
FORNMINJAR Danir hyggjast skila
Færeyingum forngripum á kom-
andi sumri. Ekki er að fullu búið
að ganga frá samkomulagi um
hvaða forngripum verður skilað
en ljóst er að meðal þeirra verða
útskornar stólahliðar úr kirkjunni
í Kirkjubæ. Stólahliðarnar eru frá
fyrstu áratugum 15. aldar og tald-
ar merkustu forngripir Færeyja.
Að sögn Arne Thorsteinsson þjóð-
minjavarðar í Færeyjum verður
fleiri merkum forngripum skilað.
„Stólahliðarnar verða á sýningu í
Kaupmannahöfn nú í mars og í
júlí verða þeir sýndir hér í Fær-
eyjum og afhentir um leið,“ segir
Arne.
Stólahliðar voru í sóknarkirkj-
unni í Kirkjubæ fram á 19. öld og
voru notaðar á enda kirkjubekkj-
anna þótt upphaflega hafi þær
verið á kórstólum. Hliðarnar voru
fluttar á Þjóðminjasafnið í Kaup-
mannahöfn í tengslum við breyt-
ingar á kirkjunni á seinni hluta 19.
aldar en Færeyingar hafa unnið
lengi að því að endurheimta þær.
Danir afhentu íslendingum
talsvert af forngripum sem safn-
ast árið 1930. Þá var gengið frá
samkomulagi um að íslendingar
gerðu ekki frekari kröfur um að
fá afhenta forngripi úr dönskum
söfnum. ■
Héraðsdómur Vestíjarða:
Dæmdur fyrir fólskulega
líkamsárás og fikniefnabrot
dómsmál Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi í fyrradag tuttugu og tveg-
gja ára gamlan mann 1 tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir fíkniefnabrot og líkamsárás.
Maðurinn var einnig dæmdur til
að greiða 90.000 krónur í sekt og
allan sakarkostnað.
Fíkniefni fundust á manninum
þegar lögreglan hafði afskipti af
honum í bifreið hans á Skipagötu á
ísafirði þann 20. apríl í fyrra. Við
húsleit fannst meira magn fíkni-
efna. Lögreglan gerði upptæk 3,64
grömm af hassi, 1,38 grömm af
maríjúana, 0,40 grömm af tóbaks-
blönduðu hassi og 0,62 grömm af
amfetamíni. Einnig voru gerð upp-
tæk áhöld til fíkniefnaneyslu,
plastflaska og tveir verk-
færatoppar.
Ákærði var einnig dæmdur fyr-
ir líkamsárás. í mars í fyrra sló
hann mann margsinnis í andlit og
sparkaði í hann með þeim afleið-
ingum að fórnarlambið hlaut glóð-
arauga beggja vegna með mari
niður á kinnbein og fingurbrotn-
aði. Ákærði, sem játaði brot sín,
hefur áður komist í kast við lögin.
Árið 1997 var hann sviptur öku-
réttindum fyrir ölvunarakstur og
ÍSAFJÖRÐUR
Ungur maður réðst á mann og sló hann
margsinnis í andlit og sparkaði Lhann.
einnig hafði hann gerst sekur um
brot gegn lögum um ávana- og
fíkniefni. ■
Þjóðminjasafn íslands:
Opnað í
fyrsta lagi á
næsta ári
söfn Þjóðminjasafn íslands við
Hringbraut hefur verið lokað
vegna endurbóta á húsnæði þess
síðan 1999. Framkvæmdir standa
enn yfir og ljóst er að safnið verð-
ur ekki opnað aftur fyrr en í fyrs-
ta lagi á næsta ári. „Það er ekki
búið að gefa út formlega opnunar-
dagsetningu," segir Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður.
„Framkvæmdum lýkur ekki fyrr
en í lok þessa árs og þá á eftir að
setja upp sýningar." ■
Sundra fyrirtækjum
eða fella niður tolla
Eftir að Kjarnavörur keyptu framleiðslu á Ljóma smjörlíki ríkir fá-
keppni á smjörlíkismarkaði. Haukur L. Hauksson hefur farið fram á
það við Samkeppnisstofnun að fyrirtækin verði leyst upp. Afnám tolla á
erlendu smjörlíki komi einnig til greina. Innkaupasamband bakara er
dótturfyrirtæki Kjarnavara.
HAUKUR L. HAUKSSON
Það skýtur skökku við að Landssamband bakarameistara skuli ekki beita sér í þessu máli.
SMJÖRLÍKISMARKAÐURINN „Það er
einungis tvennt að gera svo sam-
keppni á þessum markaði sé eðli-
leg; Að stía fyrirtækjunum í sund-
ur, eða fella niður tolla og inn-
flutningsgjöld af innfluttu smjör-
líki,“ segir Haukur L. Hauksson,
eigandi Heildsölu-
bakarís. „Verð á
smjörlíki til bakar-
ía mun ekki hækka
strax. Þegar fram
líða stundir mun
fyrirtækið þó
freistast til þess.
Það mun auðvitað
skila sér beint til
neytenda," segir
Haukur.
Hann hefur
sent Samkeppnis-
stofnun erindi. Þar
kemur fram að
Kjarnavörur hafi
keypt framleiðslu
á Ljóma smjörlíki.
Kjarnavörur séu
því eini framleið-
andi á rúllusmjör-
líki, sem notað er
við bakstur í bak-
aríum. Það sé lang stærsti fram-
leiðandi hrærismjörlíkis. Haukur
segir Landssamband bakara-
meistara hafa dregið lappirnar.
Þeir hafi ekki þorað að taka af
skarið og senda erindið til Sam-
keppnisstofnunar. Ákvörðun var
tekin á stjórnarfundi, að þar sem
ekkert bendi til þess að Kjarna-
vörur ætli að misnota aðstöðu
sína, sé ekki rétt að senda erindi
þess efnis til Samkeppnisstofnun-
ar. Kanna eigi möguleika á afnámi
tolla á innfluttu smjörlíki, í áföng-
um. Rétt sé að bíða viðbragða
stjórnvalda. „Annaðhvort eru toll-
ar afnumdir eða ekki. Þetta er
ekki greiðsludreifing," segir
Haukur. „Ég skil ekki hugarfarið
að baki þessu. Það skýtur skökku
við að þeir skuli ekki beita sér í
þessu máli.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins, er Innkaupasamband
bakara dótturfyrirtæki Kjarna-
vara. Kjarnavörur eiga 51 pró-
senta hlut í innkaupasambandinu.
Því eigi, þeir bakarar sem aðilar
eru að innkaupasambandinu, ekki
hægt um vik að fara fram á sam-
keppni við móðurfyrirtækið.
Hvorki með því að kæra það til
Samkeppnisstofnunar eða krefj-
ast þess að samkeppnin komi er-
lendis frá. Afslættir og verðlag
gæti verið í húfi. „Landssamband
bakarameistara aðhafðist ekkert í
málinu. Ég sendi því erindið til
Samkeppnisstofnunar svo málið
yrði ekki þaggað niður,“ segir
Haukur. „Samkeppnisráð hefur
málið til umfjöllunar. Ég hlýt að
heyra frá þeim á næstunni." ■
HAUGUR AF ÓNÝTUM DAGBLÖÐUM
Þessi maður fékk þann starfa að moka
upp hluta af fimmtíu þúsund ónýtum ein-
tökum dagblaðsins IVIetro.
Okeypis dagblað í
hremmingum:
Óeirðarlög-
regla stóð vörð
um prent-
smiðjuna
pári's. AP Útgáfa ókeypis dagblaða í
Frakklandi hefur ekki gengið átaka-
laust fyrir sig. Á mánudaginn hófu
tvö slík göngu sína. Annað þeirra
nefnist Metro líkt og fleiri slík dag-
blöð sem gefin eru út víða um heim.
Það er gefið út í París og Marseille.
Hitt blaðið heitir Marseille Plus.
Stéttarfélag prentmiðla mót-
mælti útkomu fyrsta eintaks Metro
í Suður-Frakklandi á mánudaginn
með því að hópur fólks mætti í
prentsmiðjuna og eyðileggja fimm-
tíu þúsund eintök. í gær þurfti
óeirðalögregla að standa vörð um
prentsmiðjuna til þess að hægt væri
að prenta blaðið. Engin leið var að
fá blaðið prentað í París vegna and-
stöðu stéttarfélags og starfsfólks í
prentsmiðjum. Parísarútgáfan
þurfti því að semja við prentsmiðju
í Hollandi um að prenta það.
Blöðunum er dreift á járnbrauta-
stöðvum. Fólk sem dreifir blaðinu
hefur orðið fyrir aðkasti.
Tvö stærstu dagblöð Frakklands,
Le Monde og Liberation, líktu í gær
ókeypis dagblöðum við undirboð á
markaði.
„Þessi ókeypis blöð hafa útlit
dagblaða, þau hafa sömu lykt og eru
eins viðkomu og fréttablöð, en
lengra ná ekki líkindin við dagblöð,"
segir í Liberation. ■
—4—
Ákvörðun var
tekin á stjórn-
arfundi Lands-
sambands
bakarameist-
ara, að þar
sem ekkert
bendi til þess
að Kjarnavör-
ur ætli að
misnota að-
stöðu sína, sé
ekki rétt að
senda erindi
þess efnis til
Samkeppnis-
stofnunar.
..f..
fr.i kr.
2700:
á úag
Verð miðast við flokk A eða sambærilegan
Gildir til 31/03/02
Knarrarvogur 2-104 Reykjavík
Verð miðast við flokkA
Lágmarksleiga 7 dagar
w“*“*“*. Ótakmarkaður akstur,
trygging og vsk.
Lögreglan á Hlemmi:
Sóðalegum skemmdar-
vörgum vísað á dyr
ólæti Lögreglan í Reykjavík vísaði
hópi unglinga út úr biðstöðinni á
Hlemmi í fyrradag. Lögreglan sagði
að unglingarnir hefðu verið með
það mikil læti að fólk, sem hefði
verið að bíða eftir strætó, hefði
þurft að standa úti.
Að sögn lögreglu hefur færst í
vöxt síðustu vikur að unglingar hóp-
ist saman á Hlemmi. Gæslumaður á
staðnum sagði að þetta væri yfir-
leitt sami hópurinn um 15 til 20 ung-
lingar. Þeir kæmu á Hlemm eftir
skóla og væru þar fram á kvöld.
Mikil vandamál fylgdu hópnum.
Nokkrir úr honum hefðu brotið tíu
rúður í strætisvögnum sem staðið
hefðu við Hlemm og sex rúður í
byggingunni sjálfri. Þá hefðu þeir
STRÆTISVAGNABIÐSTÖÐIN A HLEMMI
Reka þurfti hóp unglinga út úr biðstöðinni á Hlemmi vegna óláta. Nokkrir úr hópnum
brutu 16 rúður í strætisvögnum og byggingunni sjálfri.
einnig framið skemmdarverk á kló-
settum biðstöðvarinnar.
Gæslumaðurinn sagði ástandið
vera algjörlega óviðunandi. Þessi
hópur gengi mjög sóðalega og væri
hávær. Margir unglinganna reyktu
inni í húsinu og sífellt væri verið að
vísa þeim út. ■