Fréttablaðið - 20.02.2002, Page 6
SPURNING DAGSINS
Hræðist þú að ganga um göt-
ur borgarinnar, eftir að morð-
ið á Víðimel var framið?
Þetta var tilefnislaus áraás. Auðvitað er ég
orðin varkárari. Maður hugsar sig tvisvar
áður en lagt er af stað.
Kristín Kjartansdóttir
er verslunarmaður í Vero Moda.
FRETTABLAÐIÐ
20. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
Óskar Bergsson fráfarandi varaborgarfulltrúi:
Alþýðulýðveldið Buna:
Námsmenn
styrktir til
Kinaferðar
nám Stjórnvöld í Kína ætla að
styrkja tvo íslendinga til náms í
Alþýðulýðveldinu á næsta skóla-
ári. Menntamálaráðuneytið hér á
landi hefur milligöngu með um-
sóknir um styrkinn. Umsóknar-
frestur rennur út 20. mars næst
komandi.
Heiður Reynisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka íslenskra
námsmanna erlendis (SÍNE), seg-
ir ekki algengt að íslenskir náms-
menn fari til Kína. Fjarlægðin frá
landinu gerir það erfiðara auk
tungumálaörðugleika. Heiður seg-
ir mjög jákvætt ef fjöldi íslend-
inga sem sæki þekkingu þangað
aukist.
Hún segir að þessi styrkur hafi
verið veittur af kínverskum
stjórnvöldum í nokkur ár, svo hún
best viti. Þó íslenskir námsmenn í
Kína séu á hverjum tíma teljandi
á fingrum annarrar handar fara
þeir í framhaldsnám í t.d. stjórn-
málafræði. Einn er núna á skrá
SÍNE í Kína og er hann að læra
kínversku. ■
| INNLENT I
Vestmannaeyjar hafa bæst í hóp
þeirra sveitarfélaga sem hafa
óskað eftir að taka þátt í verkefni
um rafrænt samfélag. Tillaga þessi
efnis var lögð fram á fundi bæjar-
ráðs Vestmannaeyja á mánudag.
Samkvæmt byggðaáætlun munu
þrjú sveitarfélög taka þátt í verk-
efninu.
j UTANRIKISMÁL [
I^gær afhenti Benedikt Jónsson,
sendiherra, Eduard A. Shevar-
dnadze, forseta Georgíu, trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra ís-
lands í Georgíu. Benedikt var
fyrir og verður áfram sendi-
herra þjóðarinnar í Rússlandi,
með aðsetur í Moskvu, þar sem
hann verður áfram.
Vantar lýðræðislegar umbætur í Framsókn
fwaiviboðsiviál Óskar Bergsson
fráfarandi varaborgarfulltrúi
R-listans segist ætla að berjast
fyrir lýðræðislegum umbótum
innan Framsóknarflokksins í
borginni. Af þeim sökum sé
hann ekki á leið út úr flokknum.
Hann segist vera tilbúinn að
vinna áfram innan R-listans
verði eftir því leitað. enda sé
hann stuðningsmaður hans.
Hann aftekur með öllu að hann
sé á leið í framboð fyrir aðra
eins og t.d. Frjálslynda flokk-
inn. Sem kunnugt er ákvað hann
að draga framboð sitt til baka
hjá Framsóknarflokknum
vegna óánægju með aðferða-
fræðina við val fulltrúa á kjör-
skrá og hvernig flokkurinn ætl-
ar að velja frambjóðendur sína
á R-listann. Hann segist hafa
látið forystu flokksins í borg-
inni vita af þessari ákvörðun
sinni áður hún var gerð opinber
Hann hefði m.a. rætt málið við
Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúa.
Hann segir að framsóknar-
menn í borginni verði að fara að
tileinka sér lýðræðislegri
vinnubrögð við val á frambjóð-
ÓSKAR BERGSSON
Segir að takmarkað fulltrúalýðræði skaði
flokkinn og ímynd hans.
Poindexter aftur
kominn á toppinn
Einn höfuðpauranna í Iran-Contra hneykslinu gerður að yfirmanni
njósnadeildar bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Hefur undanfarin
ár verið að þróa tölvuforrit handa leyniþjónustunni.
BANDARÍKIN í síðasta mánuði var
John M. Poindexter gerður að yf-
irmanni nýrrar njósnadeildar á
vegum bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins. Deildin var stofnuð
í kjölfar hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum 11. september. Banda-
ríkjaforseti kom því til leiðar að
nokkrar nýjar stofnanir yrðu sett-
ar á laggirnar í tilefni af hryðju-
verkunum. Hlutverk þeirra allra
er að efla öryggi bandarísku þjóð-
arinnar, hver með sínum hætti.
„Information Awareness Office“
nefnist deildin sem Poindexter
veitir forstöðu. Hlutverk hennar
er bæði að safna saman og greiða
úr gríðarlegu magni af upplýsing-
um um fólk í Bandaríkjunum,
einkum í þeim tilgangi að auð-
velda leyniþjónustunni og stjórn-
völdum að koma auga á hætturnar
af hryðjuverkum í tæka tíð.
Poindexter var öryggisráð-
gjafi Ronalds Reagans Banda-
ríkjaforseta þegar bandarísk
stjórnvöld seldu eftir vel földum
krókaleiðum vopn til írans í skipt-
um fyrir bandaríska gísla í Lí-
banon. Hagnaður af vopnasölunni
var að hluta sendur til Contra-
skæruliðahreyfingarinnar í Ník-
aragúa.
Bandaríkjaþing haföi þá sam-
þykkt bann við því að Contra-
skæruliðarnir fengju fjárstuðn-
ing frá Bandaríkjunum. Poindext-
er viðurkenndi síðar að hafa sjálf-
ur án vitundar Reagans forseta
gefið heimild til þess að veita
fénu til Níkaragúa. „Ég tók vísvit-
andi ákvörðun um að spyrja ekki
forsetann til þess að geta útilokað
hann frá ákvörðuninni og gera
JOHN POINDEXTER
Poindexter var öryggisráðgjafi Reagans Bandaríkjaforseta á tímum Iran-Contra hneykslis-
ins. Hann er nú kominn aftur til æðstu metorða í Bandaríkjunum.
Hæstiréttur Bandaríkjanna neit-
aði að taka málið fyrir.
Nokkrum árum síðar var
Poindexter ráðinn aðstoðarfor-
stjóri hjá tæknifyrirtækinu Syn-
tek, sem er rekið í tengslum við
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið. Þar vanri hann að þróun tölvu-
búnaðar sem á að auðvelda yfir-
stjórn hersins og starfsmönnum
leyniþjónustunnar að safna sam-
an viðamiklum upplýsingum um
samtök og einstaklinga. Afrakst-
urs þessa starfs er meðal annars
eins konar njósnaforrit fyrir PC-
tölvur, sem nefnt hefur verið
„leitarvél á sterum“. ■
honum þannig kleift að neita öllu
síðar meir ef þetta spyrðist út,“
sagði Poindexter árið 1987.
Árið 1990 hlutu Poindexter og
þáverandi aðstoðarmaður hans,
herforinginn Oliver North, dóm
fyrir afbrot í tengslum við íran-
Contra'málið. Voru þeir sakfelldir
fyrir samsæri, fyrir að hafa tvis-
var sagt Bandaríkjaþingi ósatt og
fyrir að hafa tvisvar hindrað
rannsóknir þingsins á málinu.
Árið eftir felldi áfrýjunardóm-
stóll niður dómana yfir þeim báð-
um, aðallega vegna þess að fram-
burður vitna þótti ekki marktæk-
ur af tæknilegum ástæðum.
endum í stað þess að binda það
við takmarkað fulltrúalýðræði.
Það sé ekki gott fyrir flokkinn
og ímynd hans. í því sambandi
bendir hann á að flokkurinn
hefur oft lent í hremmingum í
framboðsmálum þegar hann
hefur beitt álíka aðferð og nú
við val á frambjóðendum.
Sem dæmi minnir hann á að
mikil átök og klofningur hefði
átt sér stað þegar sótt var að
Guðmundi G. Þórarinssyni með
þessari aðferð á sínum tíma.
Þetta takmarkaða fulltrúalýð-
ræði hefði einnig verið notað
þegar farið var gegn Ástu R. Jó-
hannesdóttur. ■
James Bond stíflar
Jökulsárlón og breytir
landslaginu:
Tré flutt frá
Hallorms-
stað aðjök-
ulsárlóni
höfn Kvikmyndatökulið sem er
hér að taka upp nýja bíómynd um
njósnarann James Bond hefur nú
lagt undir sitt mest allt hótelrými
frá Skaftafelli austur á Höfn í
Hornafirði.
Bond-myndina
Tökur
eiga að
fyrir
fara
fram á Jök-
ulsárlóni og á
Skálafellsjökli.
Affall lónsins
hefur verið
stíflað til að
frysti í lóninu.
Að sögn lög-
reglu á Höfn er
þegar kominn
um 20 senti-
metra þykkur
ísáinnanverðu plERCE BROSNAN
loninu. Kvik- sjá|furJamesBond
myndagerðar- |eikarinn Pierce
mennirmr munUBrosnan sést enn ekki
hins vegar vilja í Austur-Skaftafells-
enn þykkari og sýslu.
tryggari ís svo
hann haldi örugglega þeim sjálf-
um með öllum búnaði.
Bond-fólkið hefur tekið hæð í
gamla kaupfélagshúsinu á leigu.
Þá hafa nokkrir jeppamenn úr
hópi Hafnarbúa verið munstraðir
með farartæki sín í leiguakstur
vegna kvikmyndatökunnar.
Til stendur að fella nokkur
hundruð tré austur í Hallormsstað
og koma þeim fyrir við Jökulsár-
lónið. Trén verða hluti leikmyndar
sem nú er í smíðum.
Auk umsvifanna við Bond hafa
Hornfirðingar í nógu öðru að snú-
ast. Stærstur hluti loðnuflotans er
í mokveiði utan við Stokksnes
með tilheyrandi verkefnum fyrir
m.a bæjarbúa á Höfn. ■
■»; , -í, ,t
jM^r^rnT iiU
y "
m
'
Að afloknu prófkjöri Samfylkingarinnar leyfí ég mér aó þakka þeim kjósendum sem
ákváðu með þálttöku sinni að hafa áhrif á framboð Reykjavíkurlistans í vor. Sömuleiðis
þakka ég starfsfólki próíkjörsins óeigingjama vinnu \ið framkvæmdina og meðfram-
bjóðendunt mínum baráttuna. Loks þakka ég sérstaklega stuðningsinönnum mínum
ómetanlega samstöðu og traust í prófkjörinu.
Ungur ökumaður sviptur ökuleyfi og sektaður:
Var á 150 km
hraða í kappakstri
pómsmál Nítján ára
gamall Bolvíkingur
var í fyrradag sviptur
ökuréttindum í eitt ár
í Héraðsdómi Vest-
fjarða og dæmdur til
að greiða 80.000 krón-
ur í sekt fyrir ofsa-
akstur. Sannað þótti
að maðurinn hefði
ekið bifreið sinni,
Mitsubishi 3000 Tur-
bo, á 150 km hraða þar sem leyfi-
legur hámarkshraði var 50. Hann
var í kappakstri við félaga sinn og
missti stjórn á bílnum sínum með
þeim afleiðingum að hann hafnaði á
grjóti á umferðareyju og kastaðist
þaðan á ljósastaur og eyðilagðist.
Ökumaðuri hinnar bifreiðarinn-
ar, sem var af gerðinni Pontiac
Firebird Ti-ans Am,
var sýknaður þar sem
of mikill vafi þótti
leika á því hvað hann
hefði ekið hratt. At-
burðurinn átti sér
stað í ágúst árið 2000,
en þá var hinn dasmdi
nýorðinn 18 ára. Öku-
mennirnir óku vestur
Sandveg frá brúnni
yfir Ósá í átt að Bol-
Ökumaður
BOLUNGARVÍK
Ökumaður sportbíls ók hægra
megín fram úr annarri bifreið og
missti við það stjórn á bílnum
sem lenti á grjóti og kastaðist á
Ijósastaur.
ungarvíkurkaupstað.
Mitsubishi bifreiðarinnar ók hægra
megin fram úr hinni bifreiðinni og
missti stjórn á henni á móts við
síldarverksmiðjuna Gná. Bremsu-
för Mitsubishi bifreiðarinnar
mældust 127 metrar og þykir það
hafa gefið til kynna að hún hafi ver-
ið á 150 km hraða. ■