Fréttablaðið - 20.02.2002, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
20. febrúar 2002 M4ÐVIKUDACUR
Milosevic spyr fyrsta vitni saksóknarans:
Hörð orðaskipti
um fjöldamorð
Nýr formaður sam-
keppnisráðs:
Edrstín Þ. Flyg-
enring tekur við
SAMKEPPNISYFIRVÖLD Kirstíll Þ.
Flygenring, hagfræðingur, hefur
verið skipuð formaður samkeppnis-
ráðs. Háskólaprófessorinn
Brynjólfur Sigurðsson óskaði lausn-
ar sem formaður ráðsins þegar
hann varð starfandi forstjóri Happ-
drættis Háskóla íslands. Þeir sem
sitja í samkeppnisráði skulu vera
óháðir samtökum og fyrirtækjum
sem samkeppnislög taka til.
Samkeppnisstofnun undirbýr
mál sem lögð eru fyrir samkeppn-
isráð. Ráðið á meðal annars að sjá
til þess að farið sé að samkeppnis-
lögum og framfylgja bannreglum
laganna. ■
haac. ap Slobodan Milosevic fékk í
gær tækifæri til þess að leggja
spurningar fyrir fyrsta vitni
ákærenda stríðsglæpadómstólsins
í Haag. Spurningar hans reyndust
vera hnitmiðaðar og gjörólíkar tiu
klukkustunda langri opnunarræðu
hans, þar sem farið var um víðan
völl.
Vitnið var Mehmet Bakali, al-
banskur kosovobúi sem nú situr í
stjórn héraðsins. í vitnisburði sín-
um á mánudag sagðist Bakali
hafa hitt Milosevic árið 1998.
Hann hafi kvartað við hann út af
því að serbneska lögreglan hafi
myrt meira en fjörutíu manns úr
sömu fjölskyldunni snemma árs
1998. Þá hafi hann fengið þetta
svar frá Milosevic: „Við gáfum
þeim tveggja stunda frest til þess
að yfirgefa húsið.“ Bakali sagði
greinilegt á öllu að Milosevic hafi
verið fullkunnugt um þetta fjöl-
damorð.
Milosevic brást við í gær með
því að spyrja Bakali hvort hann
hafi vitað að „þeir vildu ekki gef-
Einkavæðingarnefnd:
Ætlar að sýna TDC tölurnar
si'minn Einkavæðingarnefnd hefur
ekki gefið upp á bátinn að samn-
ingur náist við TDC um kaup á
kjölfestuhlut Símans. Jón Sveins-
son, varaformaður nefndarinnar,
segir að fundur sé ráðgerður síðar
í þessari viku eða þeirri næstu þar
sem danska félagið fái að sjá tölu-
legar upplýsingar um rekstur og
efnahag Símans á síðasta ári.
Hann segir að ekki verði um
formlegan samningafund að
ræða. Endurskoðaður ársreikn-
ingur liggur ekki fyrir og því
verður auk þess um bráðabirgða-
tölur að ræða.
„Þetta verður í raun kynning-
arfundur. Að honum loknum er
SfMINN
Vonast er eftir þvi að ársreikningurinn
glæði áhuga TDC.
gert ráð fyrir að endanlegar
ákvarðanir verði teknar um fram-
haldið.“ Jón sagðist reikna með
því að starfsmaður nefndarinnar
ásamt öðrum frá Símanum færi til
Danmerkur með upplýsingarnar í
farteskinu. Síðasti eiginlegi samn-
ingafundur við TDC var haldinn í
London í janúarmánuði. Skömmu
síðar lýsti forstjóri TDC því yfir
að hann vildi ekki kaupa fyrir 10
milljarða sem samkvæmt ríkis-
stjórn er lágmarksverð.
„Það er ekkert á döfinni í því
eins og staðan er,“ sagði Jón þeg-
ar hann var spurður um hvort ein-
hverjar viðræður væru ráðgerðar
við aðra en Danana. ■
Gróðurmold
149
Græna þruman
9
olkSfftQuciI
Pottatilboð
Verð frá
199
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Veríð
rottæk
Nú er rétti tíminn til að umpotta
MEHMET BAKALI
Bakali var leiðtogi Kommúnistaflokksins í Kosovo síðustu árin sem Josip Broz Tito
stjórnaði Júgóslavíu.
ast upp og skutu á lögreglumenn."
Hann spurði Bakali einnig hvort
hann hafi vitað að „þeir sem komu
út voru ekki drepnir."
Bakali svaraði því til að honum
væri ekki kunnugt um atburðinn í
smáatriðum. Hins vegar sagði
hann að konur og börn hafi verið
á meðal þeirra sem létust.
Saksóknarar dómstólsins
munu á næstu mánuðum kalla
hundruð vitna fyrir dómstólinn.
Milosevic fær tækifæri til þess að
spyrja öll vitnin að vild. ■
Dreymdi
Davíð
Oddsson
Snorri Ásmundsson hefur stofnað stjórnmála-
ílokkinn, Vinstri, hægri, snú. Hann segir mark-
miðið að stjórna með hjartanu en ekki festa sig í
klafa kerfisins.
stjórnmál „Ég ætla mér að bjóða
fram við borgarstjórnarkosningar í
vor og er að vinna því að velja með
mér á fólk á listann, „ segir Snorri
Ásmundsson myndlistarmaður um
„Ég er opinn í
alla enda.
Stefnur eru yf-
irleitt fyrir fólki
og ég mun
áskilja mér all-
an rétt til að
skipta um
skoðun ef svo
ber undir.
stofnun nýs stjórn-
málaflokks sem ber
heitið Vinstri,
hægri, snú. Snorri
segir að það sé ým-
islegt sem hann
vilji leggja áherslu
á. „Meðal annars
finnst mér að það
þurfi að vinna í að
gera miðborgina að
fýsilegum kosti
fyrir ferðamenn."
hafa það fram yfir
að
Hann segist
Björn og Ingibjörgu Sólrúnu
vera ekki hefðbundinn kerfiskarl.
„Ég get því tekið ákvarðanir með
hjartanu og látið brjóstvitið ráða í
stað þess að vera fastur í klafa
kerfisins. Spillingarmál eru að
tröllríða öllu í þjóðfélaginu og það
veitir ekki af að fá ferskt blóð til að
taka á því.“ Snorri segist ekki hafa
verið virkur í stjórnmálum og að-
spurður um hvað olli þessum
skyndilega áhuga nú segir Snorri
draum hafa ráðið því. „Mér fannst
ég sitja og spjalla við Davíð Odds-
son og vorum við að komast að ein-
hverju samkomulagi. Það furðu-
lega var að þegar ég vaknaði fór
hugmyndin um framboð að gerjast
í höfðinu á mér. Síðar um daginn
las ég stjörnuspána mína og þar
stóð að ég ætti eftir að taka fárán-
lega ákvörðun og það myndi leiða
gott af sér. Þá var ekki aftur snúið.
Á þeirri stundu ýtti ég á enter og
þar með var ég komin af stað.“
Snorri segist telja að ungt fólk
muni fylkja sér að þessu framboði.
Einkum verði það fyrrum flokks-
systkini í Sjálfstæðisflokknum sem
standa muni með honum. „Ég er op-
inn í alla enda. Stefnur eru yfirleitt
fyrir fólki og ég mun áskilja mér
allan rétt til að skipta um skoðun ef
svo ber undir. Það er sorglegt þeg-
ar stjórnmálamenn eru að berjast
við að halda í eitthvað sem þeir fyr-
ir lifandi löngu vissu að var rangt.
Aðeins vegna þess að þeir geta ekki
viðurkennt að þeir vita betur“
Lögreglumanni dæmdar bætur:
Varð fyrir árás
fimmtán ára drengs
dómsmál Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi íslenska ríkið til að
greiða lögreglumanni 70.000
krónur í miskabætur
vegna líkamsárásar sem
hann varð fyrir í starfi.
Atbui-ðurinn átti sér
stað fyrir utan skemmti-
staðinn Inferno í Kringl-
unni haustið 1998. Lög-
reglan var kvödd á stað-
inn vegna óláta um 40
unglinga. Hún tók fimm
manns inn í lögreglubíl
Lögreglumaðurinn gekk að
manninum, sem reyndi að flýja en
féll. Lögreglumaðurinn náði hon-
um því og handtók hann.
Þegar hann var að hand-
járna manninn vatt
fimmtán ára drengur sér
úr þvögunni, sem fylgd-
ist með átökunum, og
sparkaði í síðu lögreglu-
mannsins. Lögreglumað-
urinn var frá vinnu í sex
daga. Samkvæmt lögum
ber ríkissjóði að bæta
HÉRAÐSDÓMUR
REYKJAVÍKUR
og hugðist færa þá niður Ríkið dæmt til að greíða lögreglumönnum lík-
á lögreglustöð. Þeir veit- lögieglumanni 70 amstjón og munatjón
tu mikla mótspyrnu og pusund kronur. gem þeir verga fyrjr f
komust út tveir út úr bifreiðinni. starfi og því var ríkinu gert að
Annar þeirra sem slapp út gekk að greiða lögreglumannirum 70.000
lögreglubílnum og kallaði ókvæð- krónur í miskabætur auk máls-
isorð að lögreglumönnunum. kostnaðar. ■