Fréttablaðið - 20.02.2002, Side 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
20. febrúar 2002 MIÐVIKUDACUR
Hverjum Síminn hringir
I Kí I IAKI Al )ID
Útgáfufélag: Fréttablaðíð ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeíld: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: Ip-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Visir.is
Fréttablaðinu er drerft ókeypis til allra heimila á hö-
fuðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu fomni og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS]
Miðbær-
inn nota-
legur
Örn skrifar:
g er einn af þeim sem versla
oftast á Laugaveginum og geri
það vegna þess að miðbærinn hef-
ur upp á margt að bjóða sem
Kringlan og Smáralind hafa ekki.
Undanfarnar vikur hafa raddir
forsvarsmanna kaupmanna við
Laugaveginn um að þar þurfi að
rífa gömul hús og byggja glæsileg
verslunarhús orðið æ háværari. I
þessum efnum tel ég að þeir séu á
villigötum. Flestir þeir sem versla
í miðbænum gera það vegna þess
að þeim finnst notalegt að versla í
umhverfi sem á sér einhverja
sögu og er öðruvísi en þessar
stóru verslunarmiðstöðvar. Sú
röksemdafærsla að það hafi dreg-
ið úr verslun í miðbænum vegna
þess að það sé svo mikið af ljótum
gömlum húsum og að það megi
ekki gera neitt verður að teljast
fáránleg og það er orðið löngu
tímabært að við förum að sýna því
sem er gamalt þá virðingu sem
það á skilið í stað þess að rífa
alltaf allt og henda. Það að marka
sér sérstöðu hefur löngum þótt ár-
angursríkara en að fara að keppa
við aðra á sama grundvelli og ekki
vantar sérstöðuna í miðbæinn. Þó
verðum við að gera okkur grein
fyrir því að við erum ekki nema
um 290.000 og ekki er endalaust
hægt að bæta við verslunum án
þess að verslun dragist saman
einhvers staðar. ■
LAUCARDACUR 16. FEBRÚAR
Fram kemur að Landssíminn hélt
áfram að borga bensín á bíl Þórar-
ins V. eftir að gengið var frá starfs-
lokasamningi. „Það var hluti af
þessum díl karlinn minn,“ segir
Þórarinn við Reyni Traustason
blaðamann DV. Friðrik Pálsson,
stjórnarformaður kannast ekki við
þann díl. Sama dag spyr Hreinn
Loftsson: „Hvað voru mennirnir að
gera?“ Vísar þar til kaupa Lands-
símans á hlutabréfum í @IPbell
sem kostaði fyrirtækið fúlgur fjár.
SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR
„Ég var að efna fyrirheit sem
Þórarni voru gefin," segir Sturla
Böðvarsson um ráðningu Þórarins
í forstjórastól Símans. Sturla segir
Halldór Blöndal hafa gefið Þórarni
fyrirheit um forstjórastólinn.
Halldór hefur ekki svarað
spurningum um hvort þetta sé
rétt. Þórarinn neitar þessu. Segir
málið hafa verið rætt, en ekkert
bindandi samkomulag gert.
MÁNUDACUR 18. FEBRÚAR.
Landssíminn hefur keypt ráðgjöf
af einkahlutafélagi í eigu Friðriks
Pálssonar, stjórnarformanns
fyrirtækisins. Heildarviðskipti
síðasta árs nema 7. 619.900.
Stjórnarmenn í fyrirtækinu koma
af fjöllum. Þórarinn V. neitar að
hafa gert samningin við Friðrik,
enda ekki haft umboð til slíks.
Sturla neitar að tjá sig um málið.
Stjórn Símans sendir frá sér yfir-
... skRIFAR: T~
:Eoisaga
Stöðugt er ausið úr gnægtarbrunni mái-
efna Símans. Dag hvern koma fram nýjar
upplýsingar um samskipti og vinnubrögð
æðstu manna fyrirtækisins. Menn keppast
við að vísa frá sér ábyrgð.
lýsingu þar sem upphæð
reikninga er talin eðlileg. Stjórnin
telur hins vegar óeðlilegt að hún
hafi ekki verið upplýst um samko-
mulag stjórnarformanns og
samgönguráðherra.
ÞRIÐJUDACUR 19. FEBRÚAR
Sturla segir að Friðrik og
Þórarinn hafi átt að upplýsa
stjórnina um málið. „Þetta er stór-
mannlegt af Sturlu og undir þessu
get ég ekki setið,“ segir Þórarinn
um þau. Sturla þvertekur fyrir að
hafa gert samning við Friðrik, en
upplýsir ekki hvar sá samningur
hafi verið gerður. Samkvæmt
hlutafélagalögum getur hluthafi
ekki skuldbundið hlutafélag.
Ráðuneytisstjóri skrifaði upp á
reikningana og Síminn borgaði
þá. ■
INNHERJAR |
Galdra-
karlar komn-
ir á kreik
Hljótt hefur verið um fyrirtæk-
ið Oz að undaförnu. Þetta fyr-
irtæki var um tíma afar vinsælt
umræðuefni á Innherjum á visi.is.
Viðtal við Skúla Mogensen í
Morgunblaðinu vakti á ný umræð-
ur á viðskiptaspjallþræðinum.
„Samkvæmt Morgunblaðinu er
bjart framundan hjá Oz, viðbótar-
tekjufærsla upp á 800 milljónir
hlýtur að gefa góðar vonir og
samningaviðræður í gangi við
nokkur fyrirtæki. Þetta slær
kannski á gagnrýnisraddirnar,"
segir einn sem er greinilega feg-
inn jákvæðum fréttum af fyrir-
tækinu.
Efasemdarmenn eru ekki langt
undan. „Breytir þetta nokkru,
þeir eru enn með sömu vöruna
sem er aðallega instant messen-
ger, sem ekkert hefur gengið að
selja,“ bætir annar við til að slá á
bjartsýnina. Sá segir spurninguna
sem mestu máli skipti, hversu
mikið fé sé eftir í fyrirtækinu til
að fleyta því áfram.
Efasemdarmenn eru á því að
Svíarnir hjá Ericsson séu að losa
sig út úr samstarfinu. Ef þeir
hefðu haft trú á vörunni myndu
þeir halda samstarfinu áfram. Svo
er spakleg fullyrðing sett fram.
„Hugbúaaðarhús eru annaðhvort
á uppleið eða niðurleið." Spurn-
ingin er auðvitað bara hvorum
hópnum Oz tilheyrir.
Innherjar eru umræðuvettvangur á
vefnum visir.is.
Skjálftar heims og lands
Við lifum á mestu brotatímum mannkynssögunnar.
Hálfri öld eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar er
aftur farið að hrikta í heimsmálunum. Heimsveldi
eru að koma og fara, gömul bandalög að riðlast og
ný að myndast. Allt hefur verið á hverfanda hveli í
einn áratug og verður svo annan áratug enn.
Skjálftavirkni mannkynssögunnar varðar hags-
muni íslendinga. Hún breytir eðli samtaka, sem
við tökum þátt í, og samtaka, sem við höfum ekki
tekið þátt í. Hún raðar viðskiptalöndum okkar upp
á nýjan hátt, skapar okkur tækifæri og spillir tæki-
færum okkar. Umhverfi okkar síbreytist hratt.
Landinu hefur lengi verið stjórnað af heimaln-
ingum úr lögfræðideild Háskólans, tregmæltum á
erlenda tungu og áhugalitlum um hræringar um-
heimsins. Þeir búa í sérstöku sólkerfi, þar sem sól-
in heitir Davíð og þar sem verðmætasköpun felst í
reikningum fyrir ráðgjafarstörf.
Starfs síns vegna er utanríkisráðherra eini ráð-
herrann, sem seint og um síðir er farinn að átta sig
á jarðskjálftunum í umhverfinu. Þroskasaga hans
hefur samt verið svo hæg, að hann áttaði sig ekki á
mikilvægi Evrópusambandsins fyrr en það var
búið að taka Austur-Evrópu fram fyrir ísland.
Eftir hálfrar aldar friðsælu kalda stríðsins hófst
skjálftatímabilið með hruni Sovétríkjanna og Var-
sjárbandalagsins fyrir réttum áratug. Bjartasta
efnahagsvon Asíu hvarf síðan um aldamótin, þegar
Japan missti fótanna í fjármálum. Á sama tíma
varð Evrópa að nýju að efnahagslegum risa.
Nýjasti skjálftinn er tilkall Bandaríkjanna á
þessum vetri til heimsyfirráða. Þau hafna föstum
bandamönnum öðrum en ísrael, hafna fjölþjóða-
samningum, heyja stríð og hóta að heyja fleiri slík,
og neita kerfisbundið að láta takmarka á nokkurn
hátt svigrúm sitt til aðgerða um allan heim.
Allir þessir skjálftar og margir smærri hafa
áhrif á tilveru og afkomu íslendinga, þótt þjóðin sé
nú nær hjara veraldar en hún var á blómaskeiði
kalda stríðsins. Umhverfi viðskipta, efnahags og
„Allir þessir skjálftar og margir smærri
hafa áhrif á tilveru og afkomu
Islendinga, þótt þjóðin sé nú nœr
hjara veraldar en hún var
á blómaskeiði kalda stríðsins. “
hernaðar er orðið breytt og verður innan skamms
gerbreytt frá dögum kalda stríðsins.
Einu sinni voru Bandaríkin stærsta viðskipta-
land okkar og einu sinni var Japan bjartasta út-
flutningsvon okkar. Hvort tveggja er liðin tíð.
Smám saman hefur Vestur-Evrópa mjakast í þá
stöðu að skila okkur öllum þorra útflutningstekn-
anna, án þess að landsfeður okkar hafi áttað sig.
Áður en skjálftavirknin hófst fyrir rúmum ára-
tug var Atlantshafsbandalagið hornsteinn að til-
veru okkar. Nú stefnir allt í óefni hjá því bandalagi,
því að Bandaríkin eru á hraðri siglingu frá Evrópu
sem bandamanni, af því að Evrópa mun harðneita
að taka við tilskipunum hernaðarrisans.
Evrópa hefur sérhæft sig í hægfara útþenslu til
austurs og efnahaglegum framförum, hægum að
vísu, en þó hraðari en í Bandaríkjunum að undan-
förnu. Jafnframt hefur Evrópa orðið að hernaðar-
legum dvergi, sem getur ekki tekið og vill ekki
taka marktækan þátt í heimsvaldabaráttu.
Evrópa og Bandaríkin munu á þessum fyrsta
áratug nýrrar aldar í auknum mæli reyna að sinna
hernaðarlegum þörfum sínum utan Atlantshafs-
bandalagsins til að forðast árekstrana, sem þar
verða óhjákvæmilegir. Evrópúsambandið mun
sjálft yfirtaka staðbundnar stríðsþarfir.
Undir stjórn heimalnin'ganna ratar island í þá
stöðu að halda stíft í gamla hornsteina á borð við
Atlantshafsbandalagið og Evrópska efnahags-
svæðið, sem bila í jarðskjálftum heimsmálanna.
Jónas Kristjánsson
NIDUR FYRIR
RAUÐA STRIKID
Við ItítjyJum okknr af morkuiii til íið haldcr v<;rAbOltjunni
niör í oy voitui11 4% afíiliilt itf vOkfuru biliun.
Renault Laguna II
fólksbHI
23.449
Bílalán, aftxvgun á mán.
Rekstrarieiga: 39.299
Veröáður 2.090.000
Verðnú 2.006.000
Renault Mégane Berline
fólksbíll
18.332
Bílalán, afborgun á mán.
Rekstrarieiga: 31.731
Veröáður 1.630.000
Verðnú 1.565.000
Renault Scénic
fólksbíll
23.008
Bílalán.afborgunámán.
Rekstrarieiga: 38.627
Verðáður 2.050.000
Verðnú 1.968.000
Grjóthóls 1 • Sími 57S 1200
Söludeild 575 1220 ■ www.bl.is
llBkslirtiliilyaiici III .*■ nijiii ,m u vifi Vll lKIII km a úil mj uiIbikIii itiyiifJtTnri. ItKholinilciija ci cíWtj í (h)ð
lillalóu inHVml vift ’ttni iiUmiijiui <ni IM mcn icMillllliU Allai lOlm cm ilwft vok mbtMWM rif
ORÐRÉTT
SAKLEYSIÐ
UPPMÁLAÐ
„Ég hringdi í
Karadzic og
hann sór og
sárt við lagði
að hann vissi
ekkert um þau.
Nú hvort hann
vissi það eða
vissi ekki vil ég
ekki fara út í en það sem ég er að
skýra ykkur frá er sannleikur.“
Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, ber af sér fyrir stríðsglæpa-
dómsstólnum f Haag að hann hafi vitað
nokkuð um fjöldamorðin í Srebrenica fyrr
en eftir að þau áttu sér stað. Fréttablaðið
19. febrúar.
NÚ REYNIR Á
TRÚGIRNINA
„Ég er klumsa
og spyr hvað
verður næst.
Maður hefur
ekki undan þvi
að trúa.“
Sverrir Her-
mannsson, formað-
ur Frjálslynda
flokksins um mál Friðriks Pálssonar,
stjórnarformanns Símans.
BORGUNARMAÐURDAGSINS
„Við Friðrik fórum reglulega yfir
þessa reikninga og ég skrifaði
síðan upp á og Síminn borgaði....
Einhver varð að borga honum.
Sem eigandi Símans var eðlilegt
að við semd-
um við Frið-
rik. Sá máti að
gera þetta
svona var
ræddur við
Ríkisendur-
skoðun sem
var sammála
því.“
Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri í
samgönguráðuneytinu útlistar hvernig
staðið var að því að greiða Friðrik Páls-
syni, stjórnarformanni Símans, fyrir ráð
Góðráða ehf. til Landsímans. DV,
19. febrúar.
SKILN INCSRÍKUR
SÝSLUMAÐUR
„Við göngum samt langt í því að
skilja fólk.“
Rúnar Guðjónsson, sýslumaðurinn í
Reykjavík, um þá staðreynd að útlending-
ar sem nota þurfa þjónustu embættisins
eiga ekki rétt á túlkaþjónustu.
Fréttablaðið 19. febrúar.
SKÁLMÖLD
„Manni er illa brugðið vegna hins
hörmulega og tilefnislausa morðs
á Víðimel. Það er illt til þess að
hugsa að saklaus borgari sem er
á leið heim úr vinnu sé veginn af
slíkri grimmd. Maður veltir fyrir
sér hörkunni í borgarlífinu, hvað
þar virðist vera mikið af úti-
gangsmönnum, eiturfíklum og
drykkjurútum."
Egill Helgason ( pistli sínum á strik.is
20. febrúar.