Fréttablaðið - 20.02.2002, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 20. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
Siðareglur:
Auka trúnað og traust
stjórnmál „Atburðir síðustu vikna
og missera segja okkur ljóslega
að það er brotalöm í okkar stjórn-
sýslu“, sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir, þingmaður Samfylkingar, á
þingi í gær þegar hún flutti fram-
sögu fyrir þingsályktunartillögur
um siðareglur fyrir stjórnmála-
menn og opinbera starfsmenn.
„Þar er ekki allt sem vera skyldi.
Ábyrgð virðist vera óljós í stjórn-
sýslunni. Það verður að skilgreina
hana miklu betur.“
Jóhanna sagði að víða um lönd
voru settar siðareglur opinberra
starfsmanna og þingmanna.
Mætti þar nefna að þingin í Dan-
mörku, Svíþjóð og Bretlandi
hefðu sett sér siðareglur. Þá hefði
Ríkisendurskoðun kallað eftir því
að stjórnsýslunni hér á landi yrði
settar siðareglur. í máli Jóhönnu
kom fram að siðareglur leystu
ekki allan vanda. Skýrar og leið-
beinandi reglur ættu þó að auka
trúnað og traust almennings til
þingmanna og stjórnsýslu. ■
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Vill siðareglur sem taki
gildi næsta haust.
Laganemi falsaði hluta lokaritgerðar:
Fékk skriflega áminn-
ingu frá háskólarektor
háskóli Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son, laganemi, fékk skriflega
áminningu frá rektor Háskóla
íslands eftir að hann endurinn-
ritaðist í skólann. Þá var búið að
ógilda próf hans frá lagadeild
Háskólans. Páll Skúlason segist
hafa rætt rækilega við prófess-
orinn, sem leiðbeindi Vilhjálmi
við kandidatsritgerð, en ekki
hafi verið tilefni til áminningar.
Spurningar hefðu vaknað hvort
hann hefði sinnt leiðbeiningar-
skyldu sinni af kostgæfni.
Upp komst að stór hluti af
kandidatsritgerð Vilhjálms var
fenginn annars staðar frá án
PÁLL
SKÚLASON,
HÁSKÓLA-
REKTOR
Háskólayfirvöld
fóru strax vand-
lega yfir allar
reglur um rit-
gerðasmlð og
leiðbeininga-
skyldu kennara
þegar þetta mál
kom upp.
þess að heimilda væri getið. Páll
segir að leiðbeinandinn hafi ekki
haft vitneskju um þessi vinnu-
brögð. Vilhjálmi var leyft að
endurinnritast í deildina og skri-
fa aðra lokaritgerð. Rektor gerði
honum grein fyrir að hægt væri
að beita hann viðurlögum vegna
þess að hann hefði gerst brotleg-
ur við reglur Háskólans. Eftir að
Vilhjálmur endurinnritaðist
fékk hann skriflega áminningu.
„Málinu er lokið,“ segir Páll
Skúlason.
Háskólaráð var upplýst um
ferli málsins en það kom ekki til
kasta þess. Prófessorinn, Stefán
Már Stefánsson, er í rannsóknar-
leyfi á yfirstandandi vormisseri.
Páll Sigurðsson, forseti laga-
deildar, vildi ekki tjá sig um
málið og vísaði á rektor. ■
LYFJA
- fyrir útlitið
Kynni
í dag m
Lyfja Lágmúla
Lyfja Spönginni
Fimmtudag kl.14-18
Lyfja Smáratorgi
Lyfja Garðabæ
Föstudag kl. 14-18
Lyfja Setbergi
Lyfja Smáralind
Laugardag kl. 12-16
Lyfja Laugavegi
Þín bíður sýnishorn af því nýjasta
frá Clarins á meðan á kynningu stendur!
Eiginmenn!
Muniö Konudaginn
á sunnudaginn.
Eg er
öryggisvörður
Kauptu bílaöryggísvörur,
ég set þær ókeypis í
RUÐU
. .. "' • v- '
J
jtJ
Champion þurrkublöð
nuouvoRvi rneo siironunm
- öryggi í umferð!