Fréttablaðið - 10.05.2002, Síða 6
SPURNING DAGSINS
FRETTABLAÐIÐ
10. maí 2002 FÖSTUDAGUR
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Rauðsíðu á Þingeyri:
Akærður fyrir ljársvik
ÞINGEYRI
Fyrrum framkvæmdastjóri Rauðsiðu afhenti ekki 15 tonn af þorsk-
hnökkun sem hann hafði fengið greitt fyrir.
dÓmsmál Fyrrverandi
framkvæmdastjóri fisk-
vinnslufyrirtækisins
Rauðsíðu ehf. í Bolungar-
vík hefur verið ákærður
fyrir fjársvik og brot á
tollalögum. Efnahags-
brotadeild Ríkislögreglu-
stjóra rekur málið gegn
manninum fyrir Héraðs-
dómi Vestfjarða.
Samkvæmt ákæru-
skjalinu er framkvæmda-
stjóranum gefið að sök að
hafa í mars 1999 svikið út
um 6,5 milljónir króna sem
greiddar voru fyrir 15 tonn af
þorskhnökkum. Rauðsíða afhenti
aldrei þorskhnakkana en fram-
kvæmdastjórinn notaði féð til
rekstur fiskvinnslufyrirtækisins.
Maðurinn er einnnig ákærður
fyrir að hafa á árunum 1998 og
1999 sem framkvæmdastjóri
Rauðsíðu og sem fram-
kvæmdastjóri Bolfisks
ehf. flutt inn til landsins
á ólöglegan hátt ríflega
eitt þúsund tonn af fryst-
um þorki og rúmt tonn af
frystri ýsu. Það hafi
hann tekið tekið ótollaf-
greitt til vinnslu í fisk-
verkunum fyrirtækj-
anna án heimildar tollyf-
irvalda.
Ríkislögreglustjóri
gerir kröfu um að fram-
kvæmdastjórinn verði
dæmdur til refsingar. Þá
er þess krafist að hann endur-
greiði áðurgreinda fjárhæð með
dráttarvöxtum auk lögmanns-
þóknunar kröfuhafans. ■
Bandarísk rannsókn:
Brjósta-
mjólk eflir
greindina
chicago. /yp Brjóstagjöf hefur góð
áhrif á vitsmunaþroska barna. Þau
sem fá móðurmjólk að drekka
verða greindari á fullorðinsárum
en hinir, sem enga fá móðurmjólk-
ina. Svo segja að minnsta kosti vís-
indamenn í Bandaríkjunum sem
gert hafa rannsókn á þessu. Niður-
stöður rannsóknarinnar birtust í
tímariti bandarísku læknasamtak-
anna á miðvikudaginn.
Munurinn er þó ekki gífurlegur
en þó munar nokkrum stigum á
greindarvísitölunni. ■
Sigurjón Tracey, leigubílsstjóri.
Sultartangalína 3
Umhverfisáhrif sögð ásættanleg
Átakshópur heilbrigðisráðherra:
Bætt ímynd þjónustu
við aldrað fólk
heilbrigðismál „Það er einlæg von
mín að augu manna muni opnast á
hve gefandi er að starfa með
öldruðum," sagði
Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra,
þegar átaksverkefni
um bætta ímynd
eldri borgara var
kynnt í Gerðubergi.
Átakshópur á vegum
heilbrigðisráðherra
og sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæð-
inu hefur unnið að
því að finna úrlausn-
ir vegna vaxandi eft-
irspurnar á starfs-
fólki í öldrunarþjón-
ustu. Markmið hóps-
ins er að vekja at-
ÍMYNDARHERFERÐ
ELDRI BORGARA
Anna Birna Jensdóttir, formaður
átakhópsins, opnaði formlega
heimasíðu tengda verkefninu.
Slóðin er www.ellismellir.is.
hygli ungs fólks á atvinnutæki-
færum í þágu aldraðra og hefur
hann leitað óhefðbundna leiða.
Opnuð hefur verið
heimasíða tengd átak-
inu og mánudaginn 13.
maí verður sýnd mynd
sem ber heitið Lífið
heldur áfram. Þar ber
að líta sögur úr lífi
eldri borgara og er
varpað ljósi á langanir,
væntingar og þarfir
þeirra.
Eldri borgarar eru
nú um 32 þúsund tals-
ins en hlutfall þeirra
mun aukast á næstu
árum. Um 60% þeirra
búa á höfuðborgar-
svæðinu. ■
Britax
BÍL
STOLLINN
sem verndar barnið
Færanlegur höfuðpúði
Þrenns konar hallastilling
Þykkt sterkt áklæði
Mjúkir axlapúðar
Hert með einu handtaki
^ tffppurLnn/ í/ útíx/Lit
n
Lögreglumaður
er til rannsóknar
Hvað stendur upp úr í
kosningabaráttunni?
Það er nú ekki gott að segja. En jú mér
finnst broslegt að Björn Bjarnason sé að
bjóða gömlu fólki og öryrkjum hækkun
bóta. Ólafur F. var nú í flokknum hjá hon-
um og gekk úr honum þvi hann kom ekki
neinu af slikum málum í gegn.
STÓRiDJA Landsvirkjun telur að
þegar á heildina er litið verði um-
hverfisáhrif vegna Sultartanga-
línu 3 og breytingar á Brenni-
melslínu 1 að teljast ásættanleg.
Sérstaklega að teknu tilliti til
ávinnings af línulögninni og mót-
vægisaðgerða sem milda áhrifin.
Þessi línugerð er sögð vera for-
sendan fyrir frekari stóriðju á
Grundartanga. Landsvirkjun tel-
ur hins vegar ekki koma til
greina að leggja línuna i jörð á 10
kílómetra kafla eins og hags-
munaaðilar á Hvalfjarðaströnd
hafa lagt áherslu á. Það er m.a.
vegna þess að það mundi verða
10 sinnum dýrara en samsvar-
í launadeilu var maður kærður fyrir þjófnað á tölvu. Lögreglan tók
tölvuna og afhenti hana ákærenda án þess að málið færi fyrir dómstóla.
andi loftlína. Þetta kemur m.a.
fram í matskýrslu Landsvirkjun-
ar um umhverfisáhrif þessarar
línulagnar.
Þarna er um að ræða 400
kílówatta háspennilínu frá tengi-
virki við Sultartangastöð að að-
veitustöðinni á Brennimel á
Hvalfjarðarströnd. Þessi há-
spennulína verður 120,4 kíló-
metrar að lengd, og með 345 stál-
grindarmöstur. Hæð þeirra verð-
ur á bilinu 21 - 40 metrar. Áform-
að er að hefja framkvæmdir
næsta vor og verklok í ársbyrjun
2005. Vinna við verkið er áætluð
um 200 ársverk fyrir utan hönn-
un og eftirlit. Kostnaður er talin
„Við
munum leita
skýringa á því
hvers vegna
munirnir voru
afhentir."
lögreglumál Lögreglunni í
Reykjavík hefur borist athuga-
semd frá lögmanni þar sem leitað
er skýringa á því hvers vegna
lögreglumaður á hverfamiðstöð-
inni í Breiðholti blandaði sér í
deilu um eignar-
rétt á tölvubúnaði.
Tveir menn hafa
deilt um hvor
þeirra eigi búnað-
inn. Lögreglumað-
urinn sá til þess sá
deilandanna sem
..♦•••. var með tölvubún-
aði afhenti hann án þess að úr-
skurður lægi fyrir. Síðar fékk
hinn búnaðinn afhentan á lög-
reglustöðinni.
Ingimundur Einarsson, vara-
lögreglustjóri í Reykjavík, segir
málið vera í rannsókn. „Við mun-
um leita skýringa á
því hvers vegna
munirnir voru af-
hentir." Hann hef-
ur óskað eftir
greinagerðum frá
lögfræðingi við
embættið og frá yf-
irmanni rannsókn-
ardeildar auðgun-
arbrota.
Forsaga málsins
er sú að tveir
menn, sem báðir
eru búsettir og
starfa í Mosfells-
bæ, hafa deilt
vegna launamála. Launþeginn
telur sig hafa fengið tölvu og
búnað sem hluta af launum. Hann
er þar að auki skráður eigandi
tækjanna. Þegar hann hætti
störfum tók hann tölvubúnaðinn
með sér í óþökk vinnuveitandans.
Vinnuveitandinn, sem borgaði
fyrir tækin að hluta, kærði laun-
INGIMUNDUR
EINARSSON
Kann ekki að
skýra hvers
vegna málið
kom til kasta
lögreglunnar í
Breiðholti.
LÖGREGLAN f REYKJAVÍK
Varalögreglustjórinn í Reykjavík hefur óskað eftir greinagerð frá lögfræðingi við lögreglu-
stjóraembættið og frá yfirmanni auðgunarbrota.
þegann fyrir þjófnað til hverfis-
stöðvar lögreglunnar í Breiðholti
en ekki hverfamiðstöðvarinnar í
Mosfellsbæ. Ingimundur segist
ekki kunna skýringar á því
hversvegna var kært til lögregl-
unnar í Breiðholti. Samstarf er á
milli stöðvanna.
Lögreglan í Breiðholti bað
launþegann að koma með tölvu-
búnaðinn á stöðina sem hann
gerði. Þar var hann í um hálft ár.
Síðar fékk vinnuveitandinri bún-
aðinn í hendurnar án þess að mál-
ið hefði farið fyrir dómstóla og
búið væri að skera úr um hvor
væri réttur eigandi.
kristjan@frettabladid.is
SULTARTANGALÍNA
Þessi áformaða linulögn verður
rúmlega 120 km löng. Línan mun liggja
frá Sultartangastöð að Brennimel á
Hvalfjarðarströnd.
nema um 4.400 milljónum króna
og um 330 milljónir vegna breyt-
inga á Brennimelslínu. ■