Fréttablaðið - 17.05.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 17.05.2002, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KIÖRKASSINN 17. maí 2002 FÖSTUDACUR Flestir lesenda vísis.is telja að stokka verði upp innan Byggða- stofnunar ef leysa eigi þær deilur sem þar eru. Er hægt að leysa deilur í Byggðastofnun með óbreytt- um mannskap? Niðurstöður gærdagsins i www.visir.is m_____________________ i5% Nei Spurning dagsins í dag: Skiptir Geldinganesið miklu máli í kosn- ingabaráttunni í Reykjavík? Farðu inn á vísi.is og segðu þlna skoðun J Haraldur Örn á toppi Everest fjalls Setti heimsmet með komunni á toppinn FJAUGANGA Haraldur Örn Ólafsson komst á topp Everest fjalls, hæsta fjall heims, rétt eftir klukkan fimm í gærmorgun. Hann var um þrettán tíma að ganga síðasta spölinn, úr fjórðu búðum og upp á topp. Haraldur Örn er þriðji mað- urinn til að ganga sjö hæstu tinda heims og á báða pólanna. Hann setti heimsmet þegar hann náði á toppinn því enginn hefur afrekað að klífa fjöllin og ganga á pólana á svo skömmum tíma, á fjóru og hálfu ári. „Sæl, þetta er Haraldur Örn á þaki heimsins," sagði afreksmað- urinn í símaviðtali við Davíð Odds- son, forsætisráðherra, og fleiri sem safnast höfðu saman í verslun Útilífs í Smáralind í gærmorgun. Haraldur Örn stoppaði stutt á tind- inum þar sem súrefnisbirgðir hans nægðu aðeins í fimmtán klukku- stundir. Hann komst aftur niður í fjórðu búðir við góða heilsu eftir fjögurra og hálfa klukkustunda göngu. Von er á Haraldi niður í grunnbúðir seinnipartinn í dag. ■ HARALDUR ÖRN ÓLAFSSON Komst á topp Everest í gær en áður hafði hann klifið fjöllin Denali, Elbrus, Kilimanjaro, Kosciuszko, Vinson og Aconcagua. INNLENT Ekki er ljóst hvers vegna Svan- borg SH fórst undan Svörtu- loftum á Snæfellsnesi í desember. Rannsóknarnefnd sjóslysa telur vísbendingar um að sjór hafi átt greiða leið að loftinntaki aðalvélar og stíflað loftsíu þannig að vél Svanborgar stöðvaðist. Ríkisút- varpið greindi frá. Einn framboðslisti við sveitar- stjórnarkosningar hefur farið fram á að kjósendur greiði sér ekki atkvæði að því er kom fram á RÚV. Það er listi ungs fólks í Hveragerði sem ætlaði að lífga upp á pólitíkina. Þegar þau vildu draga framboð sitt til baka var þeim tjáð að það væri of seint. Það kemur kannski ekki á óvart í því ljósi að framboðið heitir Tossalistinn. Ábyrgð á stórbruna sett á Isfélagið sjálfit Brunamálastofnun segir eigendur Isfélagsins í Vestmannaeyjum bera mesta ábyrgð á stórbrunanum árið 2000. Þeir hafi ætlað að sparar fé með því að leggja ekki í nauðsynlegustu brunavarnir. Stjórnarformaður Isfélagsins sakar Brunamálastofnun um dylgjur og krefst skýringa. BYGGINGAR ÍSFÉLAGSINS EFTIR BRUNANN Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Tryggingarmiðstöðvarinnar og Isfé- lagsins segir harðorða skýrslu Brunamálastofnunar um stórbrunann í ísfélagi Vestmanna- eyja engu breyta um tryggingarbætur. Mynd úr skýrslu Brunamálastofnunar. Misnotaði níu ára stúlku: Dæmdur í 18 mánuða fangelsi dómsmál Karlmaður var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Hæstarétti íslands í gær fyrir kynferðislega misnotkun á níu ára gamalli stúlku. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða henni 600 þúsund krónur í miskabætur. Talið er sannað maðurinn hafi sett fingur sinn inn í kynfæri stúlkunnar þann 27. desember árið 1999 svo það blæddi úr henni. Þótt Hæstiréttur hefði sýknað manninn af hluta ákæruefnis, sem sakfellt hafði verið fyrir í héraðs- dómi, var refsiákvörðun héraðs- dóms staðfest og manninum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði. Ákærði var í nóvember 1993 dæmdur í Hæstarétti í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. ■ -...... Bröndukvísl: Eigandi rífur þak á skýli skipulagsmál Eigandi umdeilds skýlis við Bröndukvísl mun hafa náð samkomulagi við byggingar- fulltrúann í Reykjavík um að rífa sjálfur þak af skýlinu. Skipulags- stofnun hafði gefið húseigandanum lokafrest til verksins til 15. maí. Hann hefur að auki sett fram til- lögu um tengingu efri og neðri lóð- ar. Sú útfærsla verður tekin til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum. Fáist tilllagan samþykkt verður bundinn endir á áralangar deilur í Bröndukvísl vegna skýlisins. ■ I ERLENT I Lögreglan í Karachi í Pakistan fann í gær lík sem talið er að sé af Daniel Pearl, blaðamanni Wall Street Journal sem var myrtur fyrr á þessu ári. brunamál Brunamálastofnun seg- ir forsvarsmenn ísfélagsins í Vestmannaeyjum bera mestu ábyrgðina á stórbrunanum sem hjá fyrirtækinu árið 2000. Þeir hafi ætlað að sparar fé með því að leggja ekki í nauð- synlegustu bruna- varnir. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son er bæði for- maður stjórnar ís- félagsins og for- maður stjórnar tryggingarfélags ísfélagsins; Trygg- ingarmiðstöðvar- innar hf.. Hann segir skýrslu Brunamálstofnunar með ólíkind- um: „Þeir eru að ýja að því að það sé sök eigandans að það hafi hugs- anlega verið kveikt í.“ í nýrri skýrslu Brunamála- stjóra segir að líklegast sé að upptök brunans hafi verið á raf- magnsverkstæði. Þaðan hafi eld- urinn borist í nýja tengibygg- ingu. Eigendur ísfélagsins hafi að mestu hunsað að fylgja fyrir- mælum um brunavarnir. Þess vegna hafi eldurinn orðið að stór- bruna. Gunnlaugur segir óþolandi að eigendur ísfélagsins fái fyrst vit- neskju um tilvist og innihald skýrslu Brunamálastofnunar í fjölmiðlum. „Það eru dylgjur í skýrslunni í garð eigenda félags- ins. Við höfum óskað eftir fundi með Brunamálastofnun og viljum fá skýringar á þessum gjörningi. Slík skýrsla hlýtur eiga að fjalla um efnisatriði en ekki vera hug- leiðingar einhverra starfsmanna um afleiðingar af slíkum stór- brunum í sjávarplássum," segir Gunnlaugur. Björn Karlsson brunamála- stjóri segir stofnun sína standa við skýrsluna. „Það eru einhverj- ir í sjokki yfir þessum niðurstöð- um. Það skil ég ekki því þetta eru ekki byltingarkenndar niðurstöð- ur. Brunavarnir ísfélagsins voru einfaldlega ekki í lagi þó ýmis- legt hafi verið gert til lagfæring- ar,“ segir Björn. Að sögn Björns er ástand brunavarna í frystihúsum al- mennt sérstaklega slæmt. Það sé hins vegar þungt ferli að loka at- vinnuhúsnæði. „Samkvæmt lög- um er það algerlega ábyrgð eig- enda að sjá til þess að brunavarn- ir séu í lagi. En í þessu tilfelli stóð slökkviliðið sig mjög vel og bjargaði umtalsverðum eignum," segir hann. Að sögn Gunnlaugs breytir skýrsla Brunamálastofnunar engu um uppgjör brunatrygg- inga. Endurtryggjendur Trygg- ingarmiðstöðvarinnar erlendis beri nær allt tjónið. Fulltrúar þeirra hafi farið til Vestmanna- eyja. Þeir hafi lagt mat á málið og greitt bætur að því loknu. gar@frettabladid.is ---♦---- Eigendur ísfé- lagsins hafi að mestu hunsað að fylgja fyrir- mælum um brunavarnir. Þess vegna hafi eldurinn orðið að stór- bruna. Tengdu þig Regkjavíkurlistanum WWW.R0KKIREYJAVIK.IS WWW.XR.IS • XR@XR.I5 Líttu við á www.xr.is. Þar finnurðu allt um stefnu, áherslur, frambjóðendurog árangur Reykjavíkurlistans. Ásamt fréttum, tilkgnningum um við- burði, skoðunum og pistlum. REYKJAVÍKURLISTINN Fjarðarbyggð og stóriðja: Komum að form- legum viðræðum stóriðja Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar á Austurlandi, segir að sveitarfé- lagið muni koma að samningum bandaríska álfyrirtækisins Alcoa við stjórnvöld ef formlegar við- ræður hefjist. Þá muni verða rætt um hafnarmál og annað slíkt sem snýr að aðgerðum sveitarfélag- anna fyrir austan vegna álvers- framkvæmda. Hann veit ekki hvort eða hvenær af því verður. Hann segir mikinn áhuga á þessu máli nú fyrir sveitastjórn- arkosningarnar og gott væri ef eitthvað yrði ákveðið fyrir þær. Þó sé þetta enn á höndum stjórn- valda en ekki sveitastjórnar- manna. „Þetta hefur sinn gang,“ segir Guðmundur. Hann veit ekki hvort tímasetningar muni stand- FJARÐARBYGGÐ Umræða um hvort álver rísi fyrir austan fléttast inn í sveitastjórnarkosningar. ast. Miðað er við að ákvörðun um hvort Alcoa fari í formlegar við- ræður við stjórnvöld verði ljós fyrir 24 maí. „Við sýnum forsvarsmönnum Alcoa bara samfélagið hér fyrir austan og sannfærum þá um að við getum tekið á móti þeim,“ seg- ir Guðmundur. Það sé þeirra hlut- verk. ■ HERMENN Breskir friðargæsluliðar í Afganistan heim- sóttu bækistöð Norðurbandalagsins norð- vestur af flugvellinum í Kabúl fyrir skömmu. Skoðuðu þeir m.a. riffla þeirra bandalagsmanna auk þess sem myndir voru teknar fyrir Ijósmyndaalbúmið. Sex breskir hermenn fluttir heim: Fengu vírus- sýkingu í Afganistan STRÍÐ GEGN HRYÐJUVERKUM Flogið hefur verið með sex hermenn til Bretlands eftir að þeir fengu dul- arfulla vírussýkingu við störf sín í Afganistan. Alls hafa 18 menn sem starfað hafa á hersjúkrahúsi við Bagram herstöðina fengið vírusinn. Einn af hermönnunum sex er talinn alvarlega veikur. Tveir menn sem voru illa haldnir eru nú á batavegi. Ekki er vitað um hvers konar vírus er að ræða en verið er að einangra þau tilfelli sem þegar hafa komið upp. Varnarmálaráðuneyti Bret- lands segir ólíklegt að efnavopna- árás hryðjuverkamanna hafi kom- ið vírusnum af stað. ■ .♦.. Tveggja. ára fangelsi fyrir nauðgun: Ruddist inn á konu og barn dómsmál Fertugur karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Hæstarétti íslands í gær fyrir að hafa nauðgað konu, sem hann hafði áður átt í sambandi við. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 500 þúsund krónur í miskabætur. HÆSTIRÉTTUR fSLANDS Við ákvörðun refsingar var litið til þess að mað- urinn ruddíst inn á konuna og son hennar og braut gegn henni þótt hann vissi af barninu á heim- ilinu. I lok júní á síð- asta ári ruddist maðurinn ölvaður inn á heimili kon- unnar og átta ára sonar hennar. Ilann braut húsmuni og reyndi að þröngva henni til kynmaka í eldhúsinu en það tókst ekki þar sem manninum stóð ekki. Síðar dró hann hana inni í svefniherbergi, reif af henni nærbuxurnar og þröngvaði henni til holdlegs sam- ræðis á meðan átta ára sonur henn- ar var sofandi í öðru herbergi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn ruddist inn á konuna og son hennar og braut gegn henni þótt hann vissi af barn- inu á heimilinu. Hæstiréttur stað- festi niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um tveggja ára fang- elsisrefsingu. ■ J

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.