Heimdallur - 01.11.1884, Page 15
175
leið fór til útgjalda fyrir frímerki 2569 kr.
36 aurar, það var fyrir 42,800 frímerki. Á
þessu má jafnframt sjá, hvað maðurinn heldur
nákvæma reikningsfærslu.
Auk þess að búa til þenna bitter sinn fæst,
Mansfeld-Bullner við að búa til í vinnustofum
sínum allar þær vörur, sem hann getur notið
efnafræðis þekkingar sinnar við. I vinnustofu
sinni á'Tagensvei lætur hann búa til öll þau lyf,
er að notum geta orðið við smjörgjörð og ostagjörð,
t. d. smjörlit og kæsi. Hann er jafnan allur í því
að reyna að bæta vörur sínar. Hann segir, að
ekkert sje fullkomið, og að allt megi bæta. Hanner
alstaðar sjálfur í og með, lítur eptir öllu, en
felur þó hverjum einstökum vinnumanni sínum
nokkra ábyrgð á hendur, en geldur líka hverj-
um þeirra sjerstök verðlaun fyrir dugnað og
vinnudyggð, og segir, það borgi sig margfalt,
því menn færi sjaldan úr vist frá sjer, og verði
því æfðari og æfðari.
Auk þess að hann er verzlunarmaður og
iðnaðarmaður, þegar hann er á verkstofu
sinni, gefur hann sig við mörgu öðru, t. d. skáld-
skap; hann hefur ort kvæðasafn dálítið, sem út
hefur komið. Komi maður heim til hans, sjer
maður hið mikla safn hans af fornum skraut-
gripum frá norðurlöndum, afarmikið safn af alls-
konar gömlum myntum frá öllum norðurlöndum frá
ýmsum öldum enda skrifast hann á við ýmsa mynt-
fræðinga, og er heiðursfjelagi í mörgum vísind-
afjelögum. Hann á líka mikið bókasafn, þar á
meðal nokkuð af íslenzkum bókum, sem einkum
mun koma af því, að prófessor Finnur Magnússon
var kvæntur frændkonu hans, og þannig kynntist
ísl. fræðum, þó hann skilji ekki ísl. tungu.
Eins og siá má af myndinni er M. B.
laglegasti maður. I viðmóti er hann og hinn
þægilegasti.
Skrítlur.
Húsfrú ein sagði við vinnukonu sína: „Ilafl jeg
nokkurn tíma sagt einhver ónot við þig, Stína, þá tek
jeg þau aptur,"
Stína: „Frúin þarf þoirra líklega við, til þess að
segja þau aptur.“
* ^ *
*
Kona Jóns fekk flog og missti alvegmælið. Nokkr-
um árum síðar feklc hún aptur flog og fekk við það
mælið aptur.
Við þetta varð bónda bcnnar svo illt, að liann
missti mælið.
Hitt o«- jietta.
Meðan Fjóðverjar sátu um París veturinn T87C—71,
fóru loptför upp úr borg.inni til að bera fregnir um
ástandið út um land; þeim fórst misjafnlega. Á bls.
162, H2. iínu er átt við eitt þeirra, sem kom niður á
fjöllum í Norvegi eptir mikla hrakninga um loptvegu.
Um myndirnar. — Myndinni af Jón Sigurðssyni
fylgir engin æfisaga, því að æfisaga hans hefur verið
rituð svo opt á íslenzku og er öllum kunn. —
Communehospitalet í Kaupmannahöfn stendur í Oster-
farimagsgötu; hann var byggður árið 1863 og
rúmar hjer um bil 800 sjúklinga. Iíommuneho-
spitalet er bæjarspítali Kaupmannahafnar, en auk
hans eru margir aðrir spitalar í borginni og eru helztir
þeirra Friðriksspítali, er Friðrik V. ijet reisa 1756 og
rúmar 400 sjúklinga, almenni spítalinn, stofnaður 1764,
sem í raun og veru er stofnun fyrir sveitarómaga, sem
ekki geta unnið, en tekur einnig við þeim sjúklingum,
sem ekki verða læknaðir; þar að auki eru ýmsir prívatir
spítalar í borginni.
Efnisyfirlit. Jón SigurÓBson (mynd). — Krossgangan, saga
eptir Kristjan EÍster, pýtt hefur stiídent Ólafur Davíösson. —
Communehospitalet í Kaupmannahöfn (mynd).— Mansfeld-Búllner
meö mynd. Skrítlur: Hitt og þetta. Um myndirnar. Auglýsing.