Alþýðublaðið - 13.07.1960, Page 16
41. árg. — Miðvikudagur 13. júlí 1960 — 155. tbl
Myndin er af auglýsingaskilti við Hafnarfjarðaveg.
NEW YORK, júlí.
(UPI).
NÚ ORÐIÐ vita allir,
að „veika kynið“ er sterk-
ara en „sterka kynið“, en
það kemur kannski ein-
hverjum á óvart, að sama
skuli vera uppi á tening-
unum meðal fiskanna. —
Fyrir slysni sannaðist
þetta og virðist nú sem
kvenkynið sé yfirleitt
sterkara en karlkynið í
öllu dýraríkinu.
Slys þetta varð í fiska-
safni og fiskirannsóknar-
stöð háskólans í Suður-
Carolina í Bandaríkjun-
um. Af einhverjum ástæð-
um biluðu liitalagnir
safnsins og vatnið í kerun-
um hitnaði upp úr öllu
valdi. Fiskar þola tiltölu-
lega lítinn hitamismun og
deyja ef mikið bregður út
af.
Þegar einn starfsmaður
safnsins kom á vettvang
voru þrír f jórðu af fiskun-
um dauðir. Hann notaði
þennan atburð tií þess að
bæta við þekkingu manr-a
á fiskum. Það kom í ljós,
að af þeim, sem lifðu voru
81 prósent af kvenkyns-
fiskum höfðu lifað af en
aðeins brot af karlkyns-
fiskunum. Vísindamenn
telja að þetta sé ein af
ráðum náttúrunnar til
þess að halda við tegund-
unum.
iMWWWWIWWWMWWW
SKAMMT norðan við
Hafnarfjarðarkaupstað, á
|ijóðveginum til Reykjavík
ur, liefur verið sett upp all
stórt auglýsingaskilti. Þar
biasa við grannir konu-
leggir og umhverfis lim-
ina er komið fyrir auglýs-
ingum fyrir einhverja
sápu.
ÞETTA slcilti virðist eiga
að vera byrjun á uppsetningu
auglýsingaskilta meðfram
þjóðvegum á íslandi. Hingað
til hafa nálega cingöngu ver-
ið sett upp skilti, sem áminna
ökumenn um varúð, enda þótt
sum þeirra séu sett upp í aug
Iýsingaskini af tryggingafélög
um,
tta nýja skilti er af allt
sauðahúsi. Þar er bein-
verið að draga augu öku-
ía að verzlunarauglýs-
og agnið ekki valið af
verri endanum: naktir stúlku-
fótleggir.
Erlendis, sérstaklega í Ame
ríku, er mikið um auglýsinga-
skilti meðfram þjóðvegu™
Flestir hugsandi menn eru
samála um, að þetta sé land-
plága. Skiltin setja viður-
styggilegan verzlunarblæ á
allt umhverfi þjóðveganna. —
spilla náttúrusýn og trufla
ökumenn.
Það væri mikil afturför, ef
þessi ameríska stefna fengi að
ryðja sér til rúms hér á landi.
Hver vill ekki frekar sjá svip
bæjarins og sólsetur í baksýn,
en risastór skilti um Coca-
Cola, Pepsi, Lux eða annað
Framhald á 14. síðu.
SVÍAR staðhæfa nú að þeir hafi byggt aflmesta járn-
brautarvagn, sem uni getur meðal járnbrautarþjóða, Vagni
þessum er ætlað að draga járngrýti norður fyrir heim-
skautsbaug, til liafnanna Luleá í Svíþjóð og Narvíkur í
Noregi. /Etlunin er að smíða þrjá svona risa-
vagna, en sá fyrsti þeirra hefur þegar farið
reynsluferðina Og- er myndin af honum, Hann
getur dregið nærri fimm þsúund lestir og far-
ið með sjötíu og fimm kílómetra hraða. —
Stærstu vagnar til þessa hafa getað dregið
rúmar þrjú þúsund lestir.