Lögberg - 15.12.1927, Síða 7

Lögberg - 15.12.1927, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. DESEMBER, 1927 Bls. 15. Vængjuð jólaljcð og lag Jólasálmurinn “Heims um ból helg eru jól”, er Dr. Sveinbjörn Egilsson færði að hugsun til, í íslenzkan búning árið 1849, eft- ir þýzkum sálmi, er byrjar á orðunum: “Stille nacht, heilige nacht, er án efa sá jólasálmur kirkju vorrar, sem víðast er sunginn, flestir kunna og taka undir á hverri jólahiátíð, og á sjálfsagt hið ljúfa, yndislega og hátíðlega lag sinn mikla þátt í hylli þeirri og útbreiðslu, sem sálmur þessi hefir náð. Bæði sálmurinn og lagið ber það með sér, að hvorugt er af fordild samið eða til frægð- ar, heldur er hér um að ræða útstreymi í ljóðum og lagi frá fagnandi og lq(fsyngjandi hjört- um trúaðra guðsbarna á hinni blessuð jólahátíð. Það er án efa þess vegna, sem lofsóngurinn og lagið hefir fundið leið að svo mörgum hjörtum, svo að hann er nú sunginn af miljónum manna um allan heim, er orðinn að al- heims lofsöng á alheimshátíðinni miklu, blessuðum jólunum. En af þessum mikla fjölda, sem hefir unað og gleði af því að hafa þennan jólalofsöng yfir, syngja hann og hlusta á ljúfa tóna hans, er hljóma svo laðandi í kvöld- kyrð jólahátíðarinnar, eru þeir t’ltölulega fiáir, er um það spyrja, eða hafa heyrt, hverjir eru höf- undar sálmsins og lagsins. — Sálmurinn og lagið á að því leyti sammerkt við ýmsa aðra andans gimsteina þjóðanna og mannkyns- ins ,að höfundarnir hyljast þoku eða hverfa, en djásnin dýru, sem þeir hafa skapað í kyrð einverunn- ar, dreifast til miljóna manna, verða almennings eign, flytjandi með sér unað og yndi, yl og birtu frá kynslóð til kynslóðar. En það er eins og hulinn verndarkraftur hafi að því stuðlað, að ekki gleymdusb nöfn þeirra félaga, sem lögðu saman í jólalofsöng- inn. Maður sá, sem frásögn þessi er höfð eftir, Jos. Gottlieb að nafni, tók sér fyrir hendur, skömmu eftir aldamótin siðustu, að grenslast eftir ýmsu, er að uppruna lofsöngsins laut í átthög- um hans, þorpinu Arnsdorf í Salz- borg. Þar í þorpinu er skólahús gam- alt; í einu herberginu hangir minningarspjald, og á það letrað vers eða erindi, þar sem tekið er fram, að prestur þorpsins og kennari hafi verið samstarfandi að lofsöngnum þannig, að prest- urinn, Jósep Mohr, lagði til orð- in, en kennarinn og orgaistinn, Frans Gruber, samdi lagið. Jósep Mohr var fæddur 11. des. 1792; dáinn 5. des. 1848. Á að- fangadag jóla 1818 orti hann sálminrí; fór hann samstundis með hann til vinar síns, Frans Gruber, kennara og organista (f. 25. nóv. 17S7, d. 7. júní 1863) og bað hann að gera lag við sálminn. Gruber tók þegar til starfa; hafði hann lokið laginu, sem eftir til- mælum Mohrs var ætlað bæði fyr- ir einsöng og kór, þá um kvöldið; var þá hvorttveggja þegar vígt, og þótti öllum er hlustuðu á, mik- ið til koma. Og eins fór í kaup- staðarkirkjunni í Oberndorf, hið fyrsta sinn er sálmurinn var þar sunginn. Kirkjuorgelið var bil- að; hafði séra Mohr því með sér gítar í kirkjuna til undirspils; höfðu margir af bændafólki, er var statt við kirkjuna, ekki séð það hljóðfæri fyrri, og fanst fátt um. En er séra Mohr og Gruber, er báðir voru raddmenn góðir, höfu sönginn, varð þegar stein- hljóð; hlustuðu allir hrifnir á þennan nýja, fagra jólalofsöng, en sjálfsagt hefir fáa, sem þar voru staddir, órað fyrir því, að hundrað árum síðar mundi þessi sami sálmur með sama lagi hljóma fyrir eyrum miljóna manna um heim allan á hverri jólahátíð, stefnandi hugum þeirra og hjðrt- um til jötunnar í Betlehem og til hans, sem þar fæddist hina fyrstu jólanótt, til frelsis öllu fólki. *—Vísir. Notið frístundirnir. Eftir Louis E. Bisch. Það er næstum ótrúlega mikið, sem hægt er að koma í verk, ef maður notar þann litla tíma á hverjum degi, sem maður hefir eins og afgangB frá sinni dag- legu vinnu. Notir þú þessar mín- útur til að auka þekkingu þína, þá getur þú náð furðulega miklum andlegum þroska á skömmum tíma. Hugsum okkur t. d. að það séu einhverjar bækur, sem þig langar til að lesa, hefir kannske langað til þess árum saman. En þér hef- ir aldrei fundist þú hafa tima til þess; það hefir alt af verið eitt- hvað annað að gera, eða þér hefir nú fundist það. Taktu nú eina af þessum bók- gerði það, þegar hún beið eftir, að kjötið yrði soðið á eldavélinni. Ung stúlka notaði einn klukku- tíma á dag til að búa til og gera við kvenhatta. Fyrir það fékk hún nægilegt fé til þess að ferðast til Evrópu. fyrir ,list|iverk, sem Ihann hefir framleitt, þá sjaldan að honum hefir fallið verk úr hendi, því hann hefir gætt þess, að nota hverja stund í þarfir listarinnar, sem hann gat ekki notað til að vinna fyrir sér. Sumir þeirra hafa að eins notað til þess litla stund á hverju kveldi. Með þessu móti getur maður komið mörgu í verk, sem maður hefir áhuga á og langar til, og jafnvel sumt, sem kalla mætti stórvirki, hafa verið þannig unnin. Eg þekki konu, sem mikið hefir að gera, en samt hefir haft tíma til að auka tekjur heimilisins um nokkur hundruð dali á ári, og hefir hún gert það án þess að van- rækja sín heimilisstörf. Hún bjó tíl pappírsblóm jafnframt og hún söng fyrir börnin sín á kveldin, þegar þau fóru í rúmið, og hún bókaaafn, en hann hafði alt af emhverja þeirra með sér hvert sem hann fór. Þegar hann þurfti að bíða eftir viðskiftavinum sínum, og það kom nokkuð oft fyrir, þá var hann alt af að lesa bækur sínar. Hann varð, og það á tiltölulega stuttum tíma, svo vel að sér í franskri mál- fræði, reikningslist og fleiri fræði greinum, að hann jafnaðist fylli- lega við þá, sem beztu skólament- unar höfðu notið. Þessi maður hafði á engan hátt vanrækt vinnu sína. Hann hafði að eins notað þær stundir, til að menta sig, sem annars mundu hafa farið til ó- nýtis. Það er ótrúlega mikil fræðsla, sem maður getur aflað sér með þessu einfalda móti. Maður heyrir fólk stundum segja, að það langi til að semja kikrit, eða sögu, eða ritgerð um eitthvert efni, en það hafi aldr- ei tíma til þess. En það mundi finna tíma til þess, ef það gætti þess að fara vel með tímann og léti ekki þann tima fara að forgörðum, sem það hefir afgarígs frá sínum raglegu störfum. Maður, sem langar til að rita, getur oftast fundið tíma til að skrifa svo sem tvær eða þrjár blaðsíður á dag, og ef hann gerir það, þá líður ekki á svo mjög löngu, þangað til hann er þúinn að skrifa heila bók. Margar sögur hafa verið skrif- aðar á þenna hátt, og jafnvel vís- indabækur. Margur listhneigður maður, sem hefir orðið að vinna alla daga til að hafa ofan af fjrrir sér, hefir orðið frægur maður Með þessu móti getur þér hepn- ast að lesa heila bók á einni viku, og á heilu ári getur þú lesið marg- ar bækur. Eg þekki mann, hann er lífsá- byrgðarumboðsmaður, sem hefir aflað sér mikillar mentunar á þennan hátt. 1 æsku hafði hann mjög lítillar mentunar notið, en hann setti sér að nota hverja stund, sem hann gat mist frá vinnu sinni, og þá ekki sízt þær stundirnar, sem hann varð að biða eftir öðrum, til að lesa góðar bæk- ur, og hann aflaði sér ótrúlega mikils fróðleiks og mentunar. Hann keypti sér hverja bókina eftir aðra og eignaðist ágætt um og lestu eina eða tvær blaðsíð- ur, eða það sem þú getur, hvenær sem þú hefir tíma til. Þú getur lesið dálítið í strætisvagninum á leið til vinnu, eða úr vinnu, og þú getur lesið dálítið, þegar þú ert að bíða eftir þeim, sem þú hefir mæ'lt þér mót við, þegar hann kemur of seint. Það getur oft staðið svo á, að þér falli verk úr hendi, svo sem tíu eða fimtán mínútur, og þú get- ir ekki komið því við, að halda á- fram með það, sem þú ert að gera í það sinnið, og ekki byrjað á neinu öðru, rétt í svipinn. Mundu þá eftir bókinni þinni og lestu fáeinar blaðsíður í henni. Gefðu nánar gætur að timan- um, sem þú hefir afgangs vinnu þinnar, Þú getur hæglega breytt honum í gull og silfur. Gleðileg Jól og Farsælt Ný; Allar tegundir Álnavöru Svo og fatnaSur fyrir fullorðna menn og drengi, viS afar sanngjörnu verði, gegn peningum út í hönd, eða gegn vægum borgunarskilmálum. MORNING GLORY” kaffið, er mjög umtalað ,og eftirsótt í WÍnnipeg. Reynið það nú þegar! SHEET LEAD - METALS - LOWET CO 621 og 627 Sargent Ave, Þessum skóla hefir lánast það sem hann Þeim sem útskrifast af honum lánast líka bað sem Með hverju ári fjölgar þeim háskóla- og miðskólastúdentum, sem innritast í þennan mikla skóla. Margir þeirra koma frá öðrum fylkjum en Manitoba, svo sem British Colum- bia, Alberíta, Saskatchewan, Ontario, North Dakota og Minnesota. Meiri hluti þeirra, sem ganga á verzlunarskóla í Winnipeg, ganga í Suocess skólann, vegna þeás að vorir stúdent- ar verða betur hæfir fyrir viðskiftalífið, bæði hvað snertir mentun og persónulega framkomu. Einnig vegna ráðninga skrifstofu vorrar, því frá henni fá 1,500 félög félög í nágrenninu, skrifstofufólk sitt. D. F. FERGUSON President and Manager W. C. ANGUS, C.A. Principal 7KS Bextíxmu. nor.e of stívcess BCnoPTOU StOCK Z==7ÍAtAf£J<rTAAA,Cf MAR&LE SrTliE EJNISH cóu '---^TIOKE THAN500 DAY SCHOOL SIUDSNTSNtiACTUAl ATTÆNBAXCÍ, ASSBMBIED JNTHS COLLEdS c-■»“ AODJTORJUH FOR A LECTVXí DEÍJVEREB BYEDWM& rcWKAN OmCJAL OFTJJE GREATNOFJHEKN JWLWAYt- SmOR. TYPEVJRmm DEPAP.TJ1EHT - THEIARCEST J.V CWADA 'BOOKKEEPING &-ACCOUNTJNG DSPARTriEJ/T 'COJ1PTOJ1ETER (rMACHINZ CALCULATING DEPARTTIZJíT ' ‘SPEED DlCTATION, SHOR.THA.tiD DZPAR.TMEHT ^ONE OF OUR. EJOHT SHOP.THAND JtOOMS' 'ENGLISH DEPARTNIÍNT snemma byrjar Þriðjudaginn 3. Janúar Ef þér getið ekki innritast strax, þá getið þér gert það nær sem er. Vér lítum persónulega eftir hverjum stúdent og sjáum um að hann byrji á upphafi hverrar námsgreinar. Gestir eru oss kœrkomnir Slkrifstofa vor verður opin á hverjum degi milli jóla o nýárs. Komið tímanlega, svo þér getið byrjað 3. janúar. Skrifstofu tími: Jólavikuna: Á daginn—9 f.h. til 6 e.h. Á kveldin—Mánudaga og Fimtudaga frá kl. 7.30 til 10 ACCREDITED BY ACCREDITED BY Dagskóli ajCATO/^5 C#r. Portage Ave. and Edmonton St. A8 norðan verðu í Portage Ave. Miðja vegu núlli Eaton og Hudson Bay búðanna. Kvöldskóli ArnuATro VjtCNOOL .JM MHHWiMniimttHmuBnmiHtmHiiuHutMiHiiaitBMimr v' fltifPfflii

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.