Lögberg - 22.12.1938, Qupperneq 14
14
LÖGBERG, FIMTUDAGrlNN • 22. DESEMRER 1938
Campbell River,
B.C.
Eins og eg hefi getið um áður,
þá lagði eg af staÖ frá Van-
couver til Campbell River, þann
2i. nóvember kl. ii f.m. me8
skipi til Nanaimo á austurströnd
Vancouver-eyjunnar, og svo það-
an með fólksflutningabíl til
Campbell River. Var eg kominn
þangað kl. 5 e. h. samdægurs.
Er fargjaldið $4.25. Öll flutn-
ingstæki á þessari ferð, eru svo
þægileg og góð, að það fer eins
Jólaóshir til Vorra
íslenzku Vina
City Dairy’s Nýju
Cream-Top Flöskur
Tryggja yður hagnað
og vernd,
Hin fullkamnu áhöld i
vorri n ý j u verksmiðju
tryggja yður gæði og ör-
yggí.
Til þess að fá sent heim
City Dairy Products and
Purity lce Cream
Kallið upp 87 647
vel um ferðamanninn eins og
hann sæti heima hjá sér í hæg-
indastól.
Það er ein íslenzk fjölskylda
búsett þrjár mílur frá Campbell
River. Til þeirra var ferð minni
heitið. Þar býr Kristján Ei-
riksson, kona hans og tveir full-
orðnir synir, ógiftir, Carl( og
Þórarinn. Svo er þar hjá þeim
ungur maður, frændi þeirra,
Gordon Eiriksson, sem hefir á-
kvarðað að setjast þar að. Mr.
Eiríksson kom hingað síðastlið-
inn júni; hafði hann áður búið
í Comox, 20 rnílur sunnar á
ströndinni, þótti þeim feðgum
sem hér væri fegra útsýni, betri
jarðvegur og líka betur sett fyrir
laxveiðar. Keyptu þeir feðgar
sér strax 2 ekrur á ströndinni
fast við sjóinn, og eru þeir bún-
ir að koma sér upp húsi, og að
mestu leyti búnir að hreinsa
þetta land sitt, sem þó var skógi-
vaxið og stofnótt. Ágætt lind-
arvatn fær hann uppi í dálítilli
hæð, semi er á bakparti eignar-
innar, og leiðir hann það í pípu
inn í húsið, og hefir þar renn-
andi vatn. Líður þeim öllum vel,
og kemur aldrei til hugar að
flytja aftur austur í Kuldann.
Mig minnir að hann segði mér,
að þeir hafi komið frá Mani-
toba. 1
. Eg hafði fengið nokkur bréf
frá Mr. Eiríksson, þar sem hann
var að svara ýmsum spurningum
sem eg hafði lagt fyrir hann
viðvíkjandi Campbell River hér-
aðinu; og var alt það, sem hann
hafði skrifað mér unt það, sann-
HATIÐAKVEÐJUR
Gleðileg Jól
OG
Farsœlt Nýjár
#tmlt Cíjeatre
IF. YOUNG, framkvæmdarstj.
[ Njótið Gleðilegra Jóla /
Haldið heimilinu hlýju með
WINNECO COKE I
f ENOINN REYKUR
EKKERT SÓT \
■ í
:
ENOINN ÚBGANGUR
“Hreinasta aðferðin við að brenna kolum”
Símið eldsn eytis-kaup m an mnum
WINNIPEG ELECTRIC COMPANY
1
.1
■:)
i
leikur og engar ýkjur. Bygðin
hér á austurströnd eyjarinnar er
altaf að færast norður á bóg-
inn, og byggist altaf fyrst á
ströndinni sem næst sjónum.
Alt land með fram sjónum er
selt í ekrutali, og er útmælt
þannig, að hver lóð er á undir-
lendinu sem er fram með sjón-
um, og hver ekra nær upp í hæð,
sem er á bak við, svo breidd
lóðanna fer eftir því hvað undir-
lendið er breitt eða mjótt. Ekki
munu neinar þessar lóðir eða
ekrur vera nnjórri en fimtíu fet
á breidd, og ná þau öll að sjón-
um. Alt land er hér skógivaxið,
en allur sá skógur sem nothæfur
hefir verið til sögunar, hefir ver-
ið tekinn burtu, og standa þar
eftir stofnarnir, smærri skógur,
og svo nýgræðingsskógur. Fer
verðið á þessum ekrum eftir því
hvað erfitt er að hreinsa landið,
og koma því í rækt. Er verðið
nú á þessum ekrum við sjóinn
frá $75.00 og upp í $150.00,
eftir gæðum. Á öllu þessu
svæði í kringum Eiríkssons er
sama hæðin á bak við, og nægi-
legt vatn, og er alstaðar hægt
að veita þvi inn í hús undir
brekkunni, eins og þeir hafa
gjört.
Útsýnið hér er það fegursta,
sem eg hefi séð í þessu landi,
enda er þetta Campbell River
hérað alþekt fyrir þá óviðjafn-
anlegu fjallasýn, sem þar er. Það
má vel likja þessu héraði við dal,
því i öllurn áttum sér til hárra
fjallatinda, hvítum af snjó, nema
í suðurátt. 1 austri sézt fjall-
garður þakinn snjó að ofan,
eins langt og augað eygir til suð-
urs og norðurs. En að vestan
er fjallgarður sá, sem liggur frá
suðri til norðurs eftir allri eyj-
unni. Sagði Mr. Eiríksson mér,
að á sumrin hverfi allur snjór
úr fjöllunum alt í kring, nema á
einum stórum hnjúk í norð-
vestri, sem væri með hvítan
skallann árið í kring. Sýndist
mér þessi stóri hnjúkur líkjast
Skjaldbreið, “fjallinu allra liæða
val,” þó hefi eg aldrei séð
Skjaldbreið nema á myndum,
svo eg skirði þennan hnjúk
“Skjajdbreið.”
Fjörðurinn, eða öllu heldur
sundið, sem þessi bygð er við,
er þrjár núlur á breidd. Mér
sýndist hann væri ekki meira en
míla á breidd, þvi þessi “blá-
móða fjalla” sem er svo áber-
andi hér alstaðar, villir manni
sjónir, alt sýnist nær manni en
er. Þar fyrir austan tekur við
stór skógi vaxin eyja, svo að
fjöllin í austri sjást aðeins yfir
eyjuna. Eftir þessu sundi ligg-
ur aðal skipaleiðin til Prince
Rupert og alaska. Svo þar sjást
á ferð daglega skip af öllum
stærðum, frá herskipum og ofan
til tveggja manna fara. Dýpi í
þessu sundi er frá 100 fet til
1100 fet, því var þetta sund mælt
út fyrir aðal skipaleið norður.
Á þessum firði er gott til
fiskjar; mest af þorski og laxi.
þó margar aðrar fisktegundir
veiðist. Eg sá marga smábáta
vera að fiska fáa f^ðma fyrir
utan landsteinana. En þeir sem
mótorbáta eiga og stunda fisk-
veiðar í stærri stil, fara lengra
út.
Þjóðvegurinn frá Victoria
liggur altaf með ströndinni til
Campbell River þorpsins; er
hann eins sléttur og góður eins
og beztu göturnar i Vancouver,
og ganga þar farþegaflutnings
bílar á milli Victoria og Camp-
bell River daglega fram og til
baka.
Verð á öllum vörum hér er
mjög líkt og i Vancouver, og
gjöra það hinar auðveldu sam-
göngur, og ódýrt flutningsgjald
með skipum. Allur húsabygginga
viður er ódýr, því sögunarmyll-
ur eru hér margar. Alt land við
sjóinn er á förum, þó talsvert
sé hér ennþá af landi til kaups
á ströndinni. Svo ef nokkrir
af þeim, sem lesa þessar línur
hafa í huga að flytja vestur á
strönd, þá vil eg benda þeim á
þetta pláss í Campbell River, að
sjá það, áður en þeir setjast að
annarsstaðar. Eg get ekki hugs-
að mér neitt annað pláss, sem
væri betra eða hentugra fyrir
gamalt fólk, sem vill geta lifað
það sem eftir er, rólegu lífi. Út-
sýnið hér mundi minna margan
íslending á fjöllin á Fróni. Það
væri gaman að geta hugsað til
þess að hér gæti orðið dálítil
islenzk bygð. Eg efast ekkert
um það, að íslendingar mundu
kunna þar vel við sig. Þar hafa
þeir fjöllin og sjóinn, sem þeir
þekkja svo vel, og svo sumar-
bliðu veður alt árið um kring.
Ekki álít eg ráðlegt fyrir gam-
alt fólk að flytja hingað, nema
það hafi einhver efni, eða inn-
tektir að einhverju leyti, til að
PALLISER HOTEL
T. C. Whelan, Manager
CALGARY, ALTA.
I samræmi við heimsviðurkenningu Canadian
Pacific með tilliti til þæginda á ferðalagi,
fullnægja þessi nýtízku hótel öílum kröfum
ferðamannsins.
Qatta&iaM.
Við fœrum
JÓLA
KVEÐJUR
VINUM Ofí VIÐSKIFTA VINUM
VESTANLANDS
Megi Nýja árið flytja yður margvíslega
blessun í skaut.
ROYAL ALEXANDRA HOTEL
llugh C. Macfarlane, Manager
WINNIPEG, MAN.
IIOTEL SASKATCHEWAN
J. J. Mcfíuire, Manager
REGINA, SASK.