Lögberg - 22.12.1938, Page 15
LÖG-BERG, FIMTUDAGINN 22. DESEMBER 1938
15
geta sett sig ni'ður, meS því að
kaupa landblett, koma sér upp
húsi, o. s. frv.
Hér er ennþá nóg landrými,
ef fariÖ er eitthvað frá strönd-
inni, og er hægt aÖ kaupa þar
alt það land sem hver vill, með
mismunandi verði, eftir gæðum.
Þeir sem fyrstir koma, hafa bezt
tækifærið til að velja sér það
bezta. Hér sjást víða bænda-
býli með dálítið ræktað land,
og gripir og kindur á beit. Eg
átti tal við suma af þeim, þeir
eru ánægðir, segja að ein rækt-
uð ekra hér sé þeim arðmeiri en
margar ekrur í Sléttufylkjunum.
Daginn áður en eg kom til
Eiríkssons, kom hópur af grinda-
hvölum inn á fjörðinn og busl-
aði alveg upp í landsteinana hjá
Eiríksson. Greip Þórarinn riff-
il sinn og fór að skjóta á þá.
Ekki varð það neinum þeirra að
bráðum bana, en allur hópurinn
snéri til baka út allan fjörð, svo
langt sem þeir sáu til þeirra.
Eitthvað af lóðum í kringum
Mr. Eiríksson hafa verið keyptar
af Islendingum í Manitoba, sem
búast við að setjast þar að strax
og þeir geti selt eignir sínar þar.
Ef einhvern vantaði að fá frek-
ari upplýsingar um þetta hérað,
þá veit) eg að Mr. K. Eiríksson,
Box 7, Campbell River, mundi
viljugur að gefa þær, að svo
miklu leyti sem hann getur. Það
er líka hverjum óhætt að reiða
sig á það, að alt sem hann segir
þeim um það sé rétt og satt.
Líka er eg, semi þetta rita, reiðu-
búinn til að gefa allar þær upp-
lýsingar sem eg get, þessu við-
víkjandi. Helzt vil eg ráðleggja
öllum þeim, sem flytja vestur
á Strönd, eða hafa það í huga,
að sjá sig um í Campbell River,
áður en þeir setjast að annars-
staðar.
1531 Hampshire Rd.
Vicoria, B.C.
.S". Guðmundson.
Jólahugleiðing 1 938
Horfi eg í anda unn himin bólin,
helzt til lengist mitt tírnans ról;
er nú full lækkuð æfi sólin
við áttugustu og sjöttu jólin.
Að enduðu voru æfiskeiði
opin stendur oss lífsins braut,
til himna oss engill ljóssins leiði
lausnara vors í dýrðarskaut.
Þá mun frelsarans friðarsólin
oss fögur skína um himnatorg,
hvar útvaidir halda eilíf jólin
við engla hirð í ljóssins borg.
Gleðileg jól oss gefi sjóli hæða
Lausnarans góða ljósin skær
lýsi þjáðum, nær og fjær.
Magnús Einarsson.
Piktar og
Móseyjarborg
I nýútkominni bók Fredriks
prófessors Paache, “Land hinna
dökku skipa,” eru lýsingar á
víkingaferðum Norðmanna í
Vesturveg og þjóðum Bretlands-
eyja. Þar er m. a. minst á þjóð-
flokk, sem bygði Bretlandseyjar
á undan Keltumi og litlar sögur
fara af, en sem látið hefir eftir
sig allmiklar minjar. Þjóðflokk-
ur sá er nefndur “Piktar.”
þeirra handaverk er m. a. turn
einn á Mósey á Hjaltlandseyj-
um, er stendur enn í dag, og er
hér mynd af “borg” þeirri, eins
og hún er nú. En þar hafði
Björn Brynjólfsson höldur vet-
ursetu, eftir að hann fór frá
Noregi, og hafði numið á brott
með sér Þóru hlaðhönd.
Segir svo í Egilssögu:
“Þeim byrjaði illa og höfðu
réttu stóra, og velkði lengi í hafi,
því at þeir váru öruggir í því at
firrask Nóreg sem mest. Þat
var einn dag, at þeir sigldu aust-
an at Hjaltlandi hvasst veðr ok
lestu skipit í landtöku við Mósey,
báru þar af farminn ok fóru í
borg þá er þar var, ok báru
þangat allan varning sinn ok
settu upp skipit ok bættu. er
brotit var . . . En þegar er hann
(Björn) hafði komit til Hjalt-
lands, gerði hann brúðkaup til
Þóru, sátu þau urn veturinn i
Móseyjarborg.”
Um Móseyjarborg og Piktana
segir Fredrik Paasche:
“Borgin stendur þar enn, sí-
valur mikill steinturn. Bygging
þessi er éldri, en siglingar Norð-
rnanna til Hjaltlands. Þetta er
einn af turnum Pikta, en þeir
erú margir á Shetlandseyjum og
á Skotlandi sjálfu. Eru eða
voru því tiltölulega litlar leifar
eftir af þeim. Englendingur, sem
heimsótti Hjaltland árið 1834, og
ferjaður var milli eyjanna í ram-
bygðum norskum bát rneð þrenn-
um árum,” segir frá eyðilegg-
ingunni, sem þar hafi átt sér
stað. Hann skýrir frá einni
S'líkri borg, sem uppi stóð fyrir
fáum árum, en jarðeigandinn
þurfti á grjóti að halda. Af-
ganginn hirtu “hinir beljandi
stormar í vetur sem leið,” sjór-
inn gekk upp í borgina og skol-
aði burt miklu af hinum fornu
múrveggjum . . .
Það er margt dularfult við
Pikta. Tunga þeirra er glötuð.
Voru þeir KeLtar eða eigi? Á
12. öld var sagt á Orkneyjum,
en þær voru þá fyrir löngu
Norðmannabygð, að petarnir
(piktarnir), sem þar hefðu ver-
ið, væri dvergaþjóð. Á kvöldin
og snemma á morgnana voru
þeir á ferli úti við, og unnu þá
að byggingum hinna merkilegu
borga sinna, en á daginn földu
þeir sig í jörðu. Svo er sagt
frá norskri bygð í Suðureyjum
að þar hafi verið dvergar eða
ennþá smávaxnara fólk, og í
skozkri heimild frá 16. öld er
talað um örsmá mannabein, sem
séu í “dverga kir.kjunni” á eynni
Ijewis . • > I þeim héruðum, þar
sem Pikta-turnarnir eru, voru
lika eldgömul jarðhús, þar sem
var mjög lágt undir loftið. íbú-
ar þerira höfðu auðsjáanlega
verið lágir í loftinu.
Elztu heimildir skýra frá ætt-
flokkum Pikta, sem voru illir
viðureignar. Snemma á miðöld-
um var blómaöld þessa þjóð-
flokks. Voru Piktarnir á Norð-
ur-Skotlandi og Shetlandseyjum
plága fyrir Breta og íra.
Talað er um uppvöðslusama
sjóræningja frá Orkneyjum. En
meginlandsþjóðin hafði nægan
fíota til þess að kúga frænd-
urna á eyjunum. Þeir “eyddu
Orkheyjum,” segir í írskri heim-
ild frá 682. Mannsaldri síðar
er enn ófriður við Orkneyinga.
Og máske var þar fátt um
manninn, er Norðmenn komu
þangað. Orkneyjar og Hjalt-
land urðu norrænar bygðir, með
norskri tungu og norskum ör-
nefnum.
Ókunnugt er, hvað varð um
Ey-Pikta. Það kann að vera,
að þeir hafi blandast aðkomu-
þjóðinni. En eins getur verið,
að þeir hafi flúið, eða þeim hafi
verið útrýmt. I Noregssögu frá
því um 1200 segir, að norskir
víkingar, sem fóru til Orkneyja
á dögum Haraldar hárfagra, hafi
lagt undir sig bygð Pikta og
Papa, sem þar voru, og útrýmt
þeim með öllu. En ekki er hægt
að leggja mikið upp úr svo ungri
heimild. En um Papana er
miklu eldri heimild, þar sem
Dicuil segir 825: “Á Færeyjum
eru ekki lengur írskir einsetu-
menn, vegna sjóræningja, Norð-
manna.”
■f
Hér lýkur frásögn Fredriks
Paasche um Pikta. Sú kemur
tíð, að einhverjir góðir menn
taka sér fyrir hendur að rann-
saka hellana hér austanf jalls, sem
sumir halda enn í dag að séu að
minstu leyti mannaverk.
En úr því þjóð hefir verið
uppi hér á næstu grösum að
heita má, sem búið hefir að
nokkru leyti í hellum, er eðlilegt,
að mönnum leiki forvitni á að
fá úr því skorið, hvort mögulegt
sé að hugsa sér, að þetta fólk
hafi lagt leið sína hingað til
lands.—Lesbók 20. nóv.
GLEÐILEG JÓL !
ENGLISH TAILOR SHOP
Repairing, Pressing and Dry Cleaning
Sækjum föt og sendum heim
677 Sargent Ave.
GLEÐILEG JÓL og FARSÆLT NÝAR
I
Eitt altra fullkomnasta hljóðfærahús Winnipegborgar
YOU actually pay less £or good
liglit when you use EDISON MAZDA
Lamps. They prevent costly waste of
current and give you full value for
the current consumed.
BETTER LIGHT
BETTER SIGHT
\
383 PORTAGE AVE.
WINNIPEG, MAN.
S
I
I
|
Northern Etectríc Compafty \
LIMITED * 9
LAMPS
P.$etur2is:on2|arbtoare Co.
Clectrícal Contractorö
706 Simcoe Street
Phone 86 755