Lögberg - 22.12.1938, Page 16

Lögberg - 22.12.1938, Page 16
16 LÖGBERG, FIMTUDAGrlNN 22. DESEMBER 1938 Jónas Jónsson kominn heim úr Ameríkuferðinni Jónas Jónsson forinaður Framsóknarflokksins, kom heim úr Ameríkuför sinni síÖastli'ðiÖ þriöjudagskvöld. Voru þá liðn- ir 4^2 mánuÖir síÖan hann lagði af stað. Tíðindamaður Tímans náði stuttu viðtali við Jónas Jónsson í gær og fékk hjá honum laus- legt yfirlit um ferðalag hans Var þá hjá honum margt gesta og hafði hann ekki úíma til fyllri frásagnar að sinni. Mun hann líka sjálfur segja lesendum Tím- ans nánar frá Vestur-íslending- um og áhugamálum sínum i sam- bandi við þá, áður en langt um liður. ' Jónas lagði af stað héðan til jAmeríku 8. júlí og var kominn til Winnipeg um næstu mánaða- mót. í byrjun ágústmánaðar voru haldin hin venjulegú há- tíðahöld að Gimli og Hnausum og voru þau fjölmennari en nokkru sinni fyr. Komu sam- tals á báða staðina um 6ooo manns, víðsvegar að úr Kanada og Bandaríkjunum. Á þessum stóru samkomum flutti Jónas ítarleg erindi. Síðan hófust ferðalög hans. Var ákveðið að fresta ferð hans um- Manitoba og Dakota, þar sem fslendingar eru fjölmennastir, meðan upp- skeran stæði sem hæst, og heim- sótti hann því fyrst þrjár fs- lendingabygðir vestur í landinu. Er ein þeirra, þar sem Stephan G. Stephansson bjó, vestur í Klettaf jöllum, og fylgdi séra Rögnvaldur Pétunsson honum þangað. Þaðan fór Jónas vest- ur til borgarinn^r Vancouver á Kyrrahafsströnd og ferðaðist suður eftir ströndinni alla leið til landamæra Mexico. Heim- sótti hann íslendinga í þessum borgum: Vancouver, þar sem 6o0—700 íslendingar eru búsettir, Blaine, þar sem 700—800 íslendingar eru búsettir, Seattle, þar sem 600—700 íslendingar eru búsett- ir, Bellingham, þar sem 60—70 Ísiendingar eru búsettir, Port- land, þar sem um 50 íslendingar eru búsettir, San Francisco, þar sem eru um 200 íslendingar, Los Angeles, þar sem eru um 300 íslendingar, og San Diego, þar sem um 150 íslendingar eru búsettir. Auk þessa heimsótti hann íslenzka bygð, sem nefnist Tanginn og er á landamærum Kanada og Bandaríkjanna. Frá Los Angeles fór hann til Salt Lake City, en þar er elzta bygð íslendinga í Ameríku. Eru landar þar um 150 og voru þeir nýlega búnir að reisa minnis- merki um 80 ára landnám sitt. Er það viti með víkingaskipi. — Þaðan fór Jónas til hins mikla þjóðgarðar, Yellowstone Park, og síðan beina leið aftur til Winnipeg. Eftir að hafa haft -þar skamma viðdvöl, hóf hann ferð sína um bygðir íslendinga í Manitoba og Dakota og hélt þar marga fundi og var aðsókn alls- staðar góð. Þegar þeirri ferð var lokið, heimsótti hann landa í ýmsum borgutn Bandaríkjanna eins og t. d. Grand Forks, Minneapolis, Washington, New York, Boston o. fl. Skamt frá Minneapolis er íslenzk bygð, í Minneota, sem eingöngu er bygð af Austfirðingum. Kom Jónas þangað og hélt þar fyrirlestur. Nokkru áður en Jónas lauk þessum ferðalögum, þurfti hann að fara aftur vestur í Kletta- fjöll í sérstökum erindagerðum. f New York varði hann nokkr- um tíma til að^ kynnast heims- sýningunni, en hann á sæti í íslenzku sýningarnefndinni. í lok októbermánaðar lagði hann af stað frá Ameríku eftir næstum því stöðug ferðalög þar í þrjá mánuði. Ferðaðist hann aðallega með járnbrautum að næturlagi, til þéss að geta notað tímann á daginn til að halda fundi og heimsækja menn. Auk þessara ferðalaga, sem hér hafa verið talin, fór hann i ýms smærri ferðalög um nágrenni borganna, því landar vildu sýna honum sem mest af hinum nýju KAUPIÐ AVALT LUMBER hja THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARCYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 Önnur jól í aðsigi. Hjörtun fylfast góðvilja og fögrum hugsunum, er menn mæna vonaraugum til hátíðanna með glaðværð í geði. Hátíðakveðjunum fylgja þær óskir, að Jólin verði yður ánægjuleg og Nýárið færi yður ham- ingju og velgengni í garð. CITY HYDRO Látið kassa á ís nú þegar heimkynnum sínum. Er það ekki ósennilegt, að enginn ís- lendingur hafi ferðast meira á jafn skömmum tíma og Jónas Jónsson á þessum þremur mán- uðum. Jónas lét svo ummælt i lok samtalsins, að erfið fjárhags- kreppa hefði undanfarið þrengt hag Vestur-íslendinga, einkum þeirra, sem stunda landbúnað, en miðað við almenna afkomu þar vestra mættu kjör þeirra yfir- leitt téljast frekar góð og ættu þeir það dugnaði sínum að þakka, enda væru þeir taldir meðal hinna allra atorkusömustu innflytjenda í Vesturheimi. SAMSÆTIÐ Framsóknarfélögin í Reykja- vik héldu Jónasi samsæti í gær- kvöldi og sóttu það um 460 manns. Bauð Hermann Jónas- son forsætisráðherra heiðurs- gestinn velkominn heim og færði honum þakkir Framsóknar- manna fyrir hina erfiðu för, sem hann hefði farið til að skapa aukið bróðurþel og sam- vinnu milli fslendinga austan hafs og vestan. Sagði hann m. a., að Austur-fslendingar hefðu ekki átt kost á öðrum fulltrúa æskilegri til slikrar ferðar. Jónas Jónsson hefði ekki látið sér nægja að halda marga fyrir- lestra til að kynna land og þjóð og skapa aukna samstarfsmögu- leika á þann hátt. Hann hefði reynt að ná tali af sem allra flestum löndum vestra og slik heimsókn hefði áreiðanlega ver- ið þeim kærkomin, því enginn maður væri jafn fjölfróður um atburði seinustu ára eða menn hér heima, sem hann. Þessa viðkynningu hefði hann ekki sízt notað til að vekja áhuga fyrir samvinnu íslendinga beggja megin hafsins og þeir, sem þektu lægni Jónasar í þeim efnum, efuðust ekki um árangurinn. Jónas Jónsson svaraði með At^rv n>fi’i itf i*r ■! langri ræðu. Rakti hann fyrst sögu ferðalagsins í stórum drátt- um. Endaði hann ræðu sína með þeim ummælum, að hann væri stoltur af Vestur-íslend- ingum. Auk þessa héldu stuttar ræður Eysteinn Jónsson, Sigfús Hall- dórs frá Höfnum, Þórarinn Þórarinsson og Guðbrandur Magnússon.—Tíminn 24. nóv. ÍNNILEGA R HATIÐARKVEÐJUR Vér óskum öllum vorum mörgu, íslenzku viðskiftavinum gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Fyrsta flokks v'örur Fyrsta flokks afgreiðsla á, Is og Eldsneyti Arctic Ice Companý) Ltd. 156 BELL AVE., Winnipeg, Man. SÍMI 42 321 Islenzkir byggingameistarar velja Ten/Test í allar sínar byggingar Þessi Insulating Board skara fram úr að gæðum . . . Seld og notuð um allan heim-— Fyrir nýjar byggingar, svo og til aðgerða eða endurnýjunar fullnægir TEN/TEST svo mörgum kröfum, að til stórra hags- muna verður. Notagildi þess og verð er ávalt eins og vera ber. Og vegna þess að það kemur í stað annara efna, er ávalt um aukasparnað að ræða. TEN/TEST hefir margfaldan tilgang sem unsulating board. Það veitir vörn fyrir of- hita eða kulda, og tryggir jöfn þægindi hvernig sem viðrar. Þess auðmeðförnu plötur tryggja skjótan árangur og lækkað innsetningarverð. 1 sumarheimiluim eða borgarbýlum, skrif- stofum, fjölmennisíbúðum, útvarpsstöðvum, samkomusölum og hótelum, tryggir TEN/ TEST lífstíðraþægindi, útilokun hávaða, og fylgir yfirleitt fyrirmælum ströngustu byggingarlistar. Útbreiðsla og notkun um allan heim gegn- tffl viðurkenda viðskiftamiðla, er trygging yðar fyrir skjótri, persónulegri afgreiðslu. Ráðgist við næsta TEN/TEST umboðs- mann, eða skrifiö oss eftir upplýsingum. IILÝJAR SKREYTIR ENDURNÝJAR Insufiating Wall Board LÆKKAR KOSTNAÐ VIÐ HITUN INTERNATIONAL FIBRE BOARP LIMITED, OTTAWA DISmBUTORS: ARMSTRONG DISTRIBUTORS LTD., Winnipeg, Man. I

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.