Lögberg - 22.12.1938, Page 20
20
LÖGKBERGr, FIMTUDAGINN 22, DESEMBEB 1938
Tvö ítölsk skáld
Frá öndverðu hefir ítalía ver-
ií5 land lista og skáldskapar, og
sérstaklega hefir verið litið á
höfuðborg landsins, Róm, sem
miðstöð fyrir listamenn, er hafa
viljað fullnuma sig í list sinni
og hljóta frægð og frama. Meða!
þeirra mörgu, sem dvalið hafa i
Róm í þessum tilgangi, má
nefna hinn fræga, áslenzka
myndhöggvara Albert Thor-
valdsen.
ítalía hefir átt marga fræga
málara, myndhöggvara og söngv-
ara, en hún hefir líka skipað
virðulegt sæti á sviði bókment-
anna. Þrír ítalíir hafa t. d.
hlotið bókmentaverðlaun Nobels,
G. Carducca árið 1906, Grazia
Deledda 1926 og Luigi Piran-
dello 1934.
Meðal jæss, sem aukið hefir
vinsældir Dvalar hjá fróðleiks-
fúsu fólki, er, hve hún hefir
kynt þar marga helztu rithöf-
unda, sémi vakið hafa mikla at-
hygli úti í heimi, þó að þeir
hafi verið að mestu ókunnir ís-
lenzkri alþýðu. Að þessu sinni
skal leitast við að kynna les-
endum Dvalar tvo af frægustu
rithöfundum ftaliu, þá Luigi
Pirandello og Gabriele D’Ann-
unzio. Eftir hinn fyrnefnda
hefir Dvöl birt nokkrar sögur
áður, en nú mun verða skýrt í
stuttu máli frá æfi þessara
tveggja heimsþektu höfunda, til
fróðleiks fyrir lesendurna.
Gabriele D’Annunzio er fædd-
ur árið 1863. í æsku stundaði
hann skólanám í Róm, og þegar
hann var sextán ára, gaf hann
út sína fyrstu ljóaðbók. Síðan
rak hver bókin aðra og urðu
uni| þær miklar deilur, sem fóru
vaxandi þegar höfundurinn tók
að semja skáldsögur, semi unnu
mikla hylli almennings, þrátt
fyrir óblíða dóma. Einnig skrif-
aði D’Annunzio fjölda smá-
sagna, og sótti hann efni sitt í
líf hinnar hraustu, ljálf-viltu al-
þýðu, sem býr í fjallahéruðun-
um í landi hans. Loks fór hann
að semja leikrit, sem hvarvetna
fengu mikið lof og voru sýnd á
stærstu leikhúsum ítalíu, við
mikla ’aðsókn. D’Annunzio varð
nú frægur maður, sem lifði í
auði og allsnægtum og naut lífs-
ins í hóflausum munaði í ýms-
um stórborgum, mitt í hinum
harðvítugu deilum um verk hans.
En hamingjan er stundum
hverful, og árið 1910 flæktist
hann til Frkaklands, nær eigna-
laus. Þar hóf hann aftur rit-
störf sín og skrifaði bæði á
frönsku og ítölsku. Svo kom
heimsstyrjöldin. Þá var eins og
D’Annunzio vaknaði af svefni.
og skrifaði nú hverja æsingar-
og hvatningargreinina á fætur
annari til þjóðar sinnar, um að
endurreisa hið forna Rómaveldi
og færa út landamæri Italíu.
Svo fór hann heim til ættlands
sins og hélt áróðursstarfinu á-
fram þar. Hann átti ef til vill
mestan þátt i því, að ítalía varð
með í heimsstyrjöldinni og hafði
áhrif á hvoru megin hún stóð.
í sjálfum ófriðnum tók hann
þátt, fyrst sem riddaraliðsfor-
ingi, en síðan í skotgröfunum,
sjóhernum og lofthernum. í ó-
friðnum misti hann annað aug-
að. — Síðan var hann útnefnd-
ur sem fursti af Monte Névoso.
þar sem ríkið gaf honum fagra
höll til að búa í. Þar lifði hann
síðustu ár æfi sinnar, einangr-
aður og hálfgleymdur, en sí-
skrifandi, þrátt fyrir ellilaksleika
og sjóndepru. D’Annunzio and-
aðist 1. marz s.l., 74 ára gam-
all. Skömmu fyrir andlát hans
var lokið við skrautútgáfu á öll-
um ritverkum hans fyr og síðar.
Eru það 49 bindi og kosta um
7300 lírur.
Gabriele D’Annunzio er vafa-
laust einn allra frægasti rithöf-
undur þjóðar sinnar, en þó er
hann sennilega frægastur fyrir
það, þegar hann tók borgina
Fiume herskildi, og hélt henni á
annað ár, þrátt fyrir það, að
búiðí væri að úrskurða, að borg-
in tilheyrði t Jugoslavíu. En D’-
Annunzio vildi að ítalir fengju
borgina, og gerði þetta dirfsku-
verk hann að átrúnaðargoði
þjóðar sinnar.
-f
Luigi Pirandello er fæddur 28.
júní 1867 í borginni Girgenti á
Sikiley. Faðir hans var brenni-
steirisnámureigandi. Pirandello
stundaði nám í Róm og síðan í
Bonn, þar sem hann hlaut dokt-
orsnafnbót. Fór hann svo til
Róm aftur og gerðist kennari
við kvennaskóla þar í borginni.
Átján ára gamall byrjaði hann
að fást við ritstörf og gaf út
ljóðabækur, en brátt hætti hann
því og tók að rita skáldsögur,
smáar og stórar. I fyrstu var
hann mjög undir áhrifum sam-
landa síns, rithöfundarins Verga,
en brátt fór hann þó að fara
sínar eigin götur og skrifa
sjálfstæðara. Meðan á heims-
styrjöldinni stóð bjó Pirandello í
litlu sólríku herbergi í útjaðri
Rómaborgar og stundaði ritstörf
jafn'hliða því, sem hann kendi.
Þarna í einverunni fékk hann
gott næði til þess að hugleiða
samlíf mannanna, vanmátt þeirra
og ósjálfstæði á ýmsumi sviðum,
heimsku og ógnir ófriðarins og
hið ósjálfráða líf mannsins í
víðjum siða og venja samtíðar-
innar. Þessar íhuganir gáfu
leikritum hans og sögum hinn
sérstæða gagnrýnandi svip. Þeg-
ar hann var um fimtugt, byrj-
aði hann að skrifa leikrit og
hefir fengist mest við það sið-
an. I fyrsta skifti, sem leikrit
eftir hann var sýnt í Róm, lá
nærri að það orsakaði uppþot, en
höfundurinn varð samstundis
frægur. Eitt af frægustu leik-
ritumi Pirandello er háðleikur-
inn “Enrico 4.,” sem hvarvetna
hefir vakið mikla athygli. Árið
1925 stofnaði hann sitt eigið
leikhús í Róm. Síðan ferðaðist
hann víðsvegar ym Evrppu og
skrifaði leikrit á ferðalögum
sínum. Lagði hann leið sína
aðallega um Frakkland, Þyzka-
land og England, altaf sískrif-
andi og leitandi að nýjum við-
fangsefnum. Árið 1934 hlaut
hann bókmentaverðlaun Nobels,
og hafa aðeins tveir Italir hlot-
ið þá viðurkennigu áður. —
Pirandello er enn í fullu fjöri,
og á síðastliðnum vetri var hann
kjörinn forseti ítalska Aka-
demísins.
Þessi tvö skáld, Luigi Piran-
dello og Gabriele D’Annunzio
voru næstum því jafnaldra. Þeir
eru báðir heimsfrægir menn fyr-
ir ljóð sín, sögur og leikrit. En
stíll þeirra og viðfangsefni eru
mjög ólik.
D’Annunzio var mikill dýrk-
andi hermensku og hetjuskapar.
Hann hataði alla hálfvelgju, og
enda þótt hann oft allberorður í
Ijóðum sínum og sögum, jafn-
vel þó um viðkvæm mál væri að
ræða. Karlmenska, hreysti og
festa voru i hans augum mikils-
verðir eiginleikar. Alt meðalhóf
of lítilmannlegt, en hið óhófs-
lega, óstjórnlega, æsandi líf
nautna, munaðar og stríðs var að
hans skapi. Sérstaklega söng
hann nautnum og munaði lof i
ljóðum sínurn, en í sögunum og
leikritunum ber meira á hetju-
dýrkuninni og hernaðarhyggj -
unni.
Pirandello fer hægara í sak-
irnar. Hann notar hæðnina og
fyndnina sem aðalvopn sitt í
baráttunni við þröngsýni og
galla samtiðar sinnar. Hann
ræðst á hinn steingervingslega
aldaranda og hinn þrönga ramma
lifsvenjanna sem maðurinn verð-
ur að lifa innan við til að verða
ekki fyrir aðkasti. Stíll hans ér
fjörugur og fyndni hans er
markviss, enda mun mörgum
hafa sviðið undan hinum hvössu
örvum hæðninnar, sem hann átti
í svo ríkum mæli. Einn ritdóm-
ari lýsti skrifum Pirandello á
þessa leið:
“Umbúðirnar eru hlægileg
fyndni og svíðandi hæðni, en
kjarninn er djúp alvara.” Betur
er ekki hægt að lýsa Pirandello í
fáum orðum.
En þrátt fyrir sín ólíku við-
horf og yrkisefni hafa þessir
tveir menn, þjóðhetjan og fræði-
maðurinn, -báðir aukið hróður
lands síns og lagt merkilegan
skerf til heimsbókmentanna.
E. Bj.
—Dvöl.
Hún: I auglýsingunni stendur,
að húsið sé aðeins steinsnar frá
bankanum.
Hann: Menn snara nú stein-
um mislangt.
COAL-COKEWOOD
HONEST WEIGHT
PROMPT DELIVERY
PHONES—23 811-23 812
McCURDY SUPPLY C0. LTD.
1034 ARLINGTON ST.
25 oz. $2.15
40 02. $3.25
G&W
OLD RYE
WHISKY
(Gamalt kornbrennivíi))
GOODERHAM & WORTS, LIMITED
Stofnsett 1832
Elzta áfengisgerö í CanadA
Thls advertisement is nít inserted by the Government Idquor Control Com-
misslon. The Commission is not responsible for statements made as to quality or
products advertlsed.
Vér sendum vorum mörgu islenzku vinum
hugleikar Jóla- og Nýárs-kveðjur
Það Er Til
INTERNATIONAL TRUCK
Fyrir Það Sem Flytja Þarf
HALF-TON PICK-UPS * - PANEL DELIVERY
og Trucks, sem bera upp í 15 smálestir
International MotorTrucks
917 PORTAGE AVE.
SIMI 37 191
Innilegar hátíðarkveðjur
FURNITURE
DISTRIBUTORS
599 HENRY AVENUE
WINNIPEG
j
Verksmiðju-umboðsmenn fyrir
EASTERN FURNITURE, LTD.
BEACH FURNITURE, LTD.
THOMAS ORGAN & PIANO CO., LTD.
‘ ‘ ROYALOHROME ’T FURNITURE
i
\
'l
\
h