Lögberg - 16.02.1950, Síða 1
PHONE 21 374
A
* S A Complele
Cleaning
Insliíution
a
64. ÁRGANGUR
PHONE 21 374
U
t^e<
t[ox&
ereT*
jerei * _^o'P-r
LaU f'Ö'fr S A Complete
Cleaning
Tnstitution
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. FEBRÚAR, 1950.
NÚMER 7
Látið ekki undir höfuð leggjast að fjölmenna á ársþing þjóðræknisfélagsins
Einn æðsti atomfræðingur
Breta kommúnista njósnari
Síðastliðna viku var einn af
fremstu atomfræðingum Breta,
Dr. Klaus Fuchs tekinn fastur,
fyrir það að láta Rússum í té, í
mörg undanfarin ár, mikilvægar
upplýsingar um aðferðir við til-
búning atom og hydrogen
sprengjanna. Fucks hefir haft
aðgang að öllum leyndustu upp-
götvunum varðandi þessar ægi-
legu sprengjur, bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi síðan
1943, en nú hefir það uppljóstr-
ast að hann hefir tilheyrt kom-
múnistaflokknum leynilega í
átta ár.
Leynilögregla Bandaríkjanna
komst á snoðir um landráð
Fucks, og svo er starfsemi hans
talin hættuleg öryggi landsins,
að ráðuneytið hélt þegar fund
til að ræða málið.
Klaus Fuchs er 38 ára að aldri,
fæddur á Þýzkalandi; hann var
ofsóttur af nzistum fyrir sósíal-
istískar skoðanir sínar; flúði til
Bretlands og gerðist brezkur
borgari 1942 og gekk þá í komm-
únistaflokkinn, en hann varaðist
að sækja fundi flokksins, hafa
samneyti við þekkta kommún-
ista eða láta skoðanir sínar í
ljósi.
Hann fékk orð á sig fyrir að
vera einn allra hæfasti atom-
fræðingur Breta og var einn í
hóp hinna brezku efnafræðinga,
er fór til Bandaríkjanna 1943
að aðstoða við atomsprengjuna;
brezka stjórnin ábyrgðist trú-
mensku hans. Nú er það orðið
upplýst að meðan að hann var
þar lét hann rússneskum njósn-
urum upplýsingar í té.
Hann var skipaður yfirmaður
við efnafræðisdeildina í Har-
well á Bretlandi 1946, einn af
níu fremstu vísindamönnum
þar. í nokkra síðustu mánuði
hefir lögreglunni þar leikið grun
ur á því, að kommúnistar fengju
vitneskju um ýmislegt, sem
væri að gerast í Harwell varð-
andi sprengjurannsóknirnar, að
síðustu voru menn frá F. B. I.
fengnir og þeir komust að því
að einhver meðal lærðustu efna-
fræðinganna hlaut að vera svik-
ari; böndin bárust að Fuchs og
nú hefir hann játað á sig sektina,
að hann hafi verið í stöðugu
sambandi við kommúnista í sjö
ar og látið njósnurum þeirra í
té ekki einungis sínar eigin
efnafræðilegu uppgötvanir, held
nr og félaga sinna og allar aðr-
ar upplýsingar, er hann hélt að
gasti komið þeim að gagni.
í hinni skriflegu játningu
sinni kveðst Fucks vera kominn
að raun um hve starfsemi hans
hafði verið siðferðislega rög og
hann aðhyllist ekki lengur
sfefnu kommúnista og sagðist
hafa verið hættur að gefa þeim
uPPlýsingar.
Hann kvaðst ekki vita nöfn
rússnesku njósnaranna, sem
fengu upplýsingar hans, en
þekkja þá í sjón. Lögreglulið
Bretlands og Bandaríkjanna
gera nú alt sem í þeirra valdi
stendur til þess að hafa upp á
þeim.
Langfcrðabíll koll-
veltist 37 mílur
vestur af Winnipeg
Þann 8. þ. m. veltist langferða
bíll Greyhoundfélagsins út af
No. 1 bílveginum um 37 mílur
vestan við Winnipeg og festist í
snjóskafli eitthvað tólf fet fyrir
neðan; um leið kviknaði í hon-
um og hann brann til ösku inn-
an tveggja klukkustunda; því
er viðbrugðið hve bílstjórinn
gekk rösklega fram í að bjarga
l'arþegunum; tuttugu og sjö far-
jegar sluppu óskaddaðir, en
ellefu voru fluttir á sjúkrahús
til læknisaðgerða; þar, sem slys-
ið vildi til, var slík flughálka á
akveginum, að bílstjórinn fékk
eigi rönd við reist.
Manitobaþingið sett
Síðastliðinn þriðjudag var
fylkisþingið í Manitoba sett með
venjulegri viðhöfn og að mikl-
um mannfjölda viðstöddum; nú
eiga sæti á þingi 57 þingmenn
eða tveimur fleiri en í fyrra; til
forseta var kjörinn W. G. Miller
fyrverandi fylkisritari.
I boðskap stjórnarinnar til
þingsins, er gert ráð fyrir mikl-
um vegalagningum, svo og víð-
tækri útfærslu raforkukerfisins
út um sveitir.
Liberalframbjóðandi vinnur
aukakosningu í Saskatchewan
J. TH. BECK, jorstjóri
J. Th. Beck forstjóri
ó fimtugsafmæli
Þann 9. þ. m. átti hr. J. Th.
Beck forstjóri The Columbia
Press Limited fimtugsafmæli
hann er fæddur á Svínaskála-
stekk í Reyðarfirði 9. febrúar ár-
ið 1900, sonur þeirra Hans Kjart-
ans Beck og eftirlifandi ekkju
hans Vigfúsínu Vigfúsdóttur,
sem búsett er í þessari borg. Mr.
Beck er frábær starfsmaður
eins og Dr. Richard bróðir hans
þó starfsí'erill þeirra hafi legið
á mismunandi sviðum.
Mr. Beck er kvæntur Svan-
hvít Thorsteinsdóttur, hinni
mestu dugnaðarkonu; þau eiga
fjögur börn, þrjá sonu og eina
dóttur, er þau hafa komið til
æðri menta.
Lögberg flytur Mr. Beck inni-
legar hamingjuóskir i tilefni af
þessum merka áfanga í ævi hans.
Samningar um
skuldgreiðslu
Mr. James Sinclair, Liberal
þingmaður fyrir Coast Capilano
kjördæmið í sambandsþinginu,
dvelur í Evrópu um þessar mund
ir að tilhlutan sambandsstjórn-
ar; hann var um tíma í Júgó-
slavíu til þess að semja um
greiðslu á skuld, að upphæð
$225,000, er Júgóslavía stóð í við
Canada; samningum lauk með
því, að Canada gaf eftir $75,000
skuldarinnar. Mr. Sinclair hitti
Tito að máli, er tók honum með
virktum; frá Júgóslavíu fór Mr.
Sinclair flugleiðis til Rómaborg-
ar til að semja um skuldalukn-
ingu ítala við Canada; þess er
vænst, að Mr. Sinclair verði kom
inn til Ottawa fyrir þinsetningu.
Njosnarar að verki
í Canada
Að því er dómsmálaráðherr-
anum Stuart S. Garson segist
frá, eru engin smáræðis brögð
að njósnarastarfseminni í þessu
landi; eru með þessu tilraunir
gerðar til að lítilsvirða stjórnar-
háttu landsins, en gylla rúss-
neskt einræði.
Mr. Garson kvað stjórnina við
því búna að vinna á móti slíkum
óvinafagnaði, þótt hún vegna ör-
yggisástæðna léti ekkert uppi
um þær aðferðir, sem beitt kynni
að verða.
Við nýlega afstaðna aukakosn-
ingu til fylkisþingsins í Saskat-
chewan, sem fram fór í North
Battlefordkjördæminu, urðu úr-
slit á þann veg, að frambjóðandi
Liberalflokksins, James Maher,
gekk sigrandi af hólmi. Þingsæti
þetta losnaði við fráfall Paul
Prince, er lézt á öndverðum
vetri; en hann var í vor sem
leið, kosinn af hálfu Liberala.
Þrír frambjóðendur voru í kjöri
í áminstu kjördæmi. Mr. Maher
var kosinn með 147 atkvæða-
meirihluta umfram frambjóð-
anda C. C. F.-sinna; frambjóð-
andi íhaldsins tapaði tryggingar-
fé sínu.
Kosning þessi var sótt af
geisilegu kappi, einkum af hálfu
Douglas forsætisráðherra' og
Mr. Coldwells, er ferðUðust um
kjördæmið nótt sem nýtan dag
og fluttu ógrynni af ræðum. Mr.
Gardiner heimsótti og kjördæm-
ið, auk þess sem foringi Liberala
í Saskatchewan, Mr. Walter
Tucker, gekk fram fyrir fylking-
ar.
Sambandsþing-
maður látinn
Á miðvikudaginn hinn 8. þ. m.,
lézt á sjúkrahúsi í Toronto,
Thomas Langdon Church, einn
hinna mikilhæfustu þingmanna
íhaldsflokksins á sambands-
þingi, maður hraðmælskur og
mikill fyrir sér; var í mörg ár
borgarstjóri í Toronto, og átti í
aldarfjórðung sæti í sambands-
þinginu; hann var 77 ára að aldri
og ókvæntur alla ævi.
Never Dies The Dream
By R. A. THORGRIMSON
Never dies the dream when you are winter old,
Of viewing another Spring, the joys untold,
The slow ripening hud, new grass so green,
Peeping through melted snow, fragrance unseen.
Never dies the dream of ripening fields of corn,
The happiness shared in a life new horn,
Autumn leaves are falling, the earth and I content,
Together we have shared a dream well spent.
Mr. Samuel Freedman, K.C.
who will speak an „Half a Cen-
tury for Canada" at the Iceland-
ic Canadian club concert, Mon-
day evening at the First Luther-
an church.
in
Auk
blýframleiðsla
Að því
er nýjustu fregnir
herma jókst blýframleiðslan í
Júgóslavíu árið, sem leið um
freklega 15 af hundraði; innflutt
ur vélakostur, þar á meðal frá
Bandaríkjunum, stuðlaði mjög
að hinni auknu framleiðslu úr
blýnámum landsins.
Úr borg og bygð
Mr. John Freysteinsson frá
Churchbridge, Sask., var stadd-
ur í borginni seinnipart fyrri
viku; kom hann hingað í kynnis
för til systur sinnar, Mrs. J. J.
Thorvardson. Mr. Freysteinsson
var glaður og gunnreifur að
vanda og lét vel af högum al-
mennings í bygðarlagi sínu;
lann hélt heimleiðis á föstudags
kvöldið.
☆
Fimtudaginn, 9. feb., voru
þau Kristján Allan Backman og
Ivy Moriel Sigurdson, bæði til
heimilis að Oak Point, Man.,
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að 80.0
Mr. og Mrs. Kirt von Trostorff
Á fimtudaginn þann 9. þ. m., voru gefin saman í hjónaband í
Fyrstu lútersku kirkju þau Miss Barabara Johnson héðan úr borg
og Mr. Kirt von Trostorff frá Los Angeles, Californiu; þessi ungu
hjón eru víðkunn vegna frækni á vettvangi skautaíþróttarinnar.
Brúðurin er dóttir þeirra Mr. og Mrs. J. J. Johnson 634 Simcoe
Street hér í borg og hefir unnið Canadian Figure Skating fyrir
dans og íþróttir á skautum.
Hraðfrétt af íslandi
I bréfi frá Reykjavík er þess
getið, að við nýafstaðnar prests-
kosningar í Reykjavík í Frí
kirkjusöfnuðinum þar í borginni
hafi séra Þorsteinn Björnsson,
prestur á Þingeyri, verið kosinn
eftirmaður séra Árna heitins Sig
urðssonar, sem lézt s.l. haust.
Séra Þorsteinn er fæddur ár-
ið 1909 í Miðhúsum í Garði; var
vígður 1936, en hefir þjónað
Þingeyri síðan 1944.
Prestsembætti þetta er talið
meðal hinna glæsilegustu á ís-
landi, og hefir að undanförnu
verið skipað miklum hæfileika-
mönnum. Margir prestar sóttu
um það í þetta sinn, og mun
miklu kappi hafa verið beitt frá
ýmsum hliðum. Er þess getið
einnig í bréfinu að söfnuðurinn
hafi klofnað við kosninguna, og
að nýr söfnuður sé myndaður
um einn umsækjendanna, sem
beið lægra hlut, cand. theol.
Emil Björnsson, starfsmann Rík-
isútvarpsins. Eftir því að dæma
verða framvegis tveir fríkirkju-
söfnuðir í Reykjavík.
Lipton St.. Þau voru aðstoðuð
af Andrey Katie Sigurdson,
systur brúðarinnar, og George
Geviris Scharf. — Heimili brúð-
hjónanna verður að Oak Point.
☆
Þann 9. janúar síðastliðinn
lézt að heimili sonar síns í
Blaine, Wash., Rósa Ingibjörg
Johnson 82 ára að aldri; hún átti
lengi heima í Winnipeg, en var
nokkur síðustu ár búsett hjá E.
S. Johnson syni sínum í Blaine;
hennar verður nánar minst síðar
hér í blaðinu.
☆
Dont miss the Annuál Concert
of the Icelandic Canadian club,
First Lutheran church, Monday,
Feb. 20, at 8,15 p.m.
It will certainly be one of our
best ever!
Samuel Freedman, K. C. one
of Western Canada’s most bril-
liant and entertaining speakers,
will give an address on: „Half
a Century for Canada“.
A fine variety of musical
numbers will be heard: Ken-
neth Brown, accordion; Miss
Corrine Day, piano solos.
You will hear the delightful
Daniel Mclntyre Operette group,
bigger and better than ever, in
two groups of song from, their
gay repertoire of operettas.
Admission only 50 c.
☆
Venju samkvæmt efnir Kven
félag Fyrsta lúterska safnaðar
til afmælisfagnaðar Betels, og
fer samkoman fram í kirkju safn
aðarins þann 1. marz næstkom
andi; þetta er fagur siður, og
verður það seint fullþakkað,
hversu Kvenfélagið hefir jafnan
hlúð að þessari þörfu og mikil-
vægu stofnun sólsetursbarnanna
á Gimli; undirbúin hefir verið
vönduð skemtiskrá, sem aug-
lýst verður í næstu viku.
Úr borg og bygð
Hr. Helgi Ingólfur Gíslason,
kaupsýslumaður frá Reykjavík,
var staddur hér í borginni
nokkra daga í fyrri viku; hann
kom flugleiðis frá Keflavík til
New York; hann lét Lögbergi
þær dapurlegu fréttir í té, að
þann 30. janúar síðastliðinn
hefði farist á leið frá íslandi til
Englands togarinn Vörður, eign
þeirra Jóhannessonsbræðra á
Patreksfirði; fimm menn fórust
en fjórtán varð bjargað.
☆
Leiðrétting
1 minningarorðunum um frú
Valgerði J. Erlendson, sem birt-
ust í Lögbergi þann 2. þ. m.,
urðu eftirfarandi skekkjur:
Elzti sonur hennar heitir Gustav
en ekki Gestur. Fimta lína að
neðan í þriðja dálki, átti heima
í næsta dálki og er á þessa leið:
Eftir því sem árin liðu urðu
breytingar, járnbraut austan
Manitobavatns o. s. frv.
☆
f greininni um lestrarfélagið
Vestri í Seattle, sem birt var í
fyrri viku hér í blaðinu, eru frá-
sagnar villur, sem Lögbergi er
ekki um að kenna, því þær stöf-
uðu frá frumritinu, en þar er
sagt að Jón Magnússon sé for-
seti félagsins. H. E. Magnússon
er forseti þess, en Jón Magnús-
son bókavörður þess og ritstjóri
blaðsins Geysir, er það gefur út.
☆
Síðastliðinn fimtudag lézt á
St. Boniface sjúkrahúsinu Mrs.
Guðrún Gunnlaugsson frá Bald-
ur, 75 ára að aldri, ekkja eftir
Sigvalda B. Gunnlaugsson, sem
látinn er fyrir rúmu ári; hún var
ættuð úr Kræklingahlíð í Eyja-
fjarðarsýslu, vinsæl kona og vel
metin, er lætur eftir sig átta
mannvænleg börn. Útförin fór
fram á Baldur á laugardaginn.
Séra Valdimar J. Eylands jarð-
söng.
☆
The Womens Association of The
First Lutheran Church Victor
St., will hold a regular meeting
in the Church parlor Tuesday
Feb. 21st at 2 p.m. followed by
a handicraft shower.
Málshöföun fyrirskipuð
Dómsmálaráðherra sambands-
stjórnar, Stuart S. Garson, hefir
lýst yfir því, að málsókn verði
hafin gegn gleriðnaðarfélögun-
um*í Quebec og Ontario, er liggi
undir grun um að hafa stofnað
til innbyrðisverðlagssamtaka, er
komið hafi í veg fyrir heilbrigða
verzlunarsamkepni varðandi
sölu glerframleiðslunnar.