Lögberg - 16.02.1950, Blaðsíða 4

Lögberg - 16.02.1950, Blaðsíða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. FEBRÚAR, 1950. HÖQtocrg MAN. Oeflf Ot hvern flmtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 696 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 696 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram rhe ijberg" is printed and published by The Columbia Press Ltd. 696 Sargent Avenue, Winnipeg. Manitoba, Canada. tuihorized as Second Class Mail, Post Office Department. Ottawa Hvernig horfir til um þjóðræknismálin? Eins og þegar hefir verið kunngert kemur saman til funda næsta mánudag hér í borginni þrítugasta og fyrsta Ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vestur- heimi; við slík tímamót er það ofur eðlilegt, að menn spyrji sjálfa sig: „Höfum vér gengið til góðs götuna frameftir veg?“ Svarið hlýtur að verða jákvætt, því þó eitt og annað megi vafalaust réttilega að starfsemi Þjóðræknisfé- lagsins finna, verða þó naumast deildar meiningar um það, að í megin atriðum hafi það unnið dyggilega að stefnuskráratriðum sínum með þjóðræknislegu trúboði út um hinar dreifðu bygðir íslendinga í þessari álfu; það hefir lagt íslenzkunni lið með starfrækslu laugar- dagsskólanna og útgáfu vandaðs tímarits, og það hefir blásið málinu um stofnun kenslustóls í íslenzkri tungu og íslenzkri bókvísi við Manitobaháskólann byr í segl. Það hefir ennfremur leitast við, eftir því, sem föng stóðu til, að treysta andlega menningarsambandið við ísland, og hafa gagnkvæmar heimsóknir á þeim vett- vangi miklu góðu til vegar komið; og alt það, sem áunn- ist hefir er því að þakka, að það fólk, sem beitt hefir sér fyrir málaforustu, hefir gert það í fullri einlægni og af ást við menningarerfðir okkar, sem orpið hafa bjarma á íslendingsnafnið í meir en þúsund ár. „íslendingar unna hugástum“, sagði Einar Bene- diktsson í ræðunni, sem hann flutti fyrir minni íslands í þessari borg sumarið 1921. Það eru hvorki varajátningar né yfirborðsástir, sem viðhalda íslenzkri tungu og íslenzkri menningu í Vesturvegi; slíkt megna aðeins hugástir og hreinrækt- að hjartalag. Og þá er góðum málum jafnan bezt borg- ið, sé að þeim unnið af innri þörf vegna þeirra sjálfra. Hver, sem upphefur sjálfan sig mun lítillækkaður verða; þeir, sem sækjast eftir mannaforráðum eða málaforustu í eigingjörnum tilgangi, eða til að svala hégómadýrð sinni, verða vegnir og léttvægir fundnir. Þjóðræknisfélagið er ekkert stórgróðafélag og verð- ur það víst aldrei, enda var það ekki stofnað í þeim til- gangi; ef félagið hefði haft meira fé handa á milli, myndi útbreiðslustarfsemi þess hafa orðið áhrifaríkari en raun er á; engu að síður væri það ranglátt, að van- þakka það, sem á hefir unnist og hitt miklu drengilegra og nærtækara, að hefjast handa um aukinn stuðning við félagið og starfsemi þess. Sigursæll er góður vilji. Það liggur í augum uppi hve mikils það sé umvert, að þjóðarbrot okkar, fáment og dreift eins og það er, vinni í fullri einlægni að áhugamálum sínum; það má ekki við tvískiptum, hvað þá margskiptum kröftum, eigi það að ná því takmarki, sem því er ætlað; það má ekki undir neinum kringumstæðum sætta sig við undanhald, þó það sé þeim auðveldara, sem lítið vilja á sig leggja; hitt er karlmannlegra og skyldara ó- sýktu norrænu eðli, að þreyta fangbrögð við erfiðleik- ana og styrkjast við hverja raun. Heillyndir menn köma til þings með það fyrir aug- um, að ráða ráðum sínum, og leysa að beztu vitund þau vandamál, er til úrslita koma í þann og þann svip- inn; sízt ber það að lasta, þó ýmis mál séu tíðum sótt af nokkuru kappi sé þess gætt, að sjálft markmiðið hverfi ekki í orðaflóði, því þá væri ver farið en heima setið; allur málaflutningur skyldi jafnan bygður á rök- um til öryggis þeim málstað, sem fyrir er barist. Við Vestmenn eigum heilög vé að verja þar sem í hlut eiga i hin tigna tunga okkar, Eddurnar, íslendingasögurnar og ljóðin; það var virðingin fyrir þessum verðmætum og þekkingu á þeim, er brynjaði íslenzka frumherja í þessu landi til sigursælla fangbragða við hverskonar mannraunir og skapaði þeim ný útsýni, ný og vegleg markmið; á þessa eðlisþáttu .í skapgerð íslendingsins kom Dufferin lávarður brátt auga, eigi aðeins í heim- sókn sinni til íslands, heldur og engu síður, er hann vitjaði hinna íslenzku landnema á Gimli, er þeir voru einna sárast leiknir í tvísýnni baráttu fyrir tilveru sinni; þeir tóku snemma ástfóstri við hið nýja kjörland sitt, og urðu í hinni fegurstu og beztu merkingu hollir og heiltrúaðir Canadamenn, þótt þeir hvorki gleymdu upp- runa sínum né tungu; og svo er það jafnan með menn, er þekkja sinn vitjunartíma og eitthvað raunverulegt er í spunnið; hinir falla grályndri gleymsku í skaut, er vegna dægurdýrðar skreyta sig með lánuðum fjöðrum. Hvernig horfir til um þjóðræknismálin? Ekki að öllu leyti vel, og heldur ekki að öllu leyti illa. Enn eru margir menn og margar konur á ferð, sem unna hugástum hinum margþættu menningarerfðum okkar og vilja nokkuð á sig leggja þeim til fulltingis; og meðan svo er, sýnist ástæðulítið eða jafnvel ómannlegt, að örvænta um framtíðina varðandi þjóðræknismálin. Halldór Jóhannsson SEXTUGUR: Halldór Jóhannsson Sextíu ára er í dag, 22. des- ember Halldór Jóhannsson frá Haugi í Miðfirði, nú til heimilis á Hvammstanga. Hann er sonur hjónanna Jóhanns bónda Ás- mundssonar á Haugi og síðari konu hans, Arndísar Halldórs- dóttur, og var hann einkabarn þeirra. Halldór er fjórði maður, í beinan karlegg, frá séra Bjarna Jónssyni á Mælifelli, sem lézt árið 1809, en frá þeim presti eru miklar ættir komnar. Jóhann á Haugi átti nokkur börn með fyrri konu sinni, og fóru þau systkin til Ameríku. Af hálf- bræðrum Halldórs þar varð nafnkunnastur Ásmundur P. Jó- hannsson, fasteignasali í Winni- peg, sem nú er um það bil hálf- áttræður að aldri. Halldór ólst upp í föðurgarði við venjuleg sveitastörf. Innan við tvítugsaldur fór hann til náms í Flensborgarskóla og var þar einn vetur, 1908—1909. Hæfi- leikar hans til náms voru ágætir, námið mun hann hafa stundað að af mestu alúð og með prýði- legum árangri. En skóla gangan varð ekki lengri. Mun það hafa stafað af því, að faðir hans lézt haustið 1909 og tók Halldór þá við búsforráðum með móður sinni, í stað þess að halda áfram skólanámi. Fáum árum síðar kvæntist hann ágætri konu þar í sveitinni, Guðrúnu Jónasdóttur. Hún er elzt af börnum hjónanna Jónasar Jónssonar og Önnu Kristófersdóttur á Syðri-Reykj- um, sem bæði eru enn á lífi, og áttu þau 60 ára hjúskaparafmæli á síðastl. sumri. Halldór og Guðrún bjuggu á Haugi til ársins 1947, en þá létu þau af búskap og fluttust til Hvammstanga. Þó að þau hefðu ekki stórt bú, var búrekstur þeirra á margan hátt til fyrir- myndar. Meðferð á öllum skepn- um var þar ágæt, og því góður arður af búinu. Jörð sína bættu þau til muna og öll umgengni var þar mjög góð, jafnt utan bæjar sem innan. Eigi varð þeim hjónum barna auðið, en þau hafa alið upp nokkur fósturbörn og þar að auki hafa börn og ungl ingar oft dvalið á heimili þeirra um lengri eða skemmri tíma. Á heimili þeirra er gott að koma, þar er öllum gott að vera, og margir hafa notið hjálpfýsi og greiðasemi þeirra hjóna. Halldór Jóhannsson er sérstakt prúðmenni í allri framkomu, starfhæfur í bezta lagi og nýtur fyllsta trausts allra, sem hann þekkja. Honum hafa því verið falin mörg trúnaðarstörf fyrir sveit sína og sýslu, sem hann hefir rækt af mestu vandvirkni og samvizkusemi. Hann er hag leiksmaður og skrifar svo góða rithönd að - tæpast munu aðrir honum þar fremri. Af þeim mörgu störfum, sem hann hefir þurft að sinna utanheimilis, skal það eitt hér nefnt, að hann átti um langt skeið sæti í stjórn Ámi: — Hvernig líður Sveini? Bjarni: — Vel, en ég gæti þó trúað, að hann yrði nokkuð lengi á spítalanum. Árni: — Því heldurðu það, sástu lækninn? Bjarni: — Nei, ég sá hjúkrunar- konuna. Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151 Rovaizos Flower Shop Our Speelalties: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS BUu K. Christie, Proprietress Formerly with Robinson & Co. 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA 1950's THE YEAR FOR PIONEER Bred from Production CHICKS You can depend on good, strong, vigorous chicks that wiU develop into good pro- duceis of eggs and poultry meat, when you start with Pioneer Chicks—bred to pro- duce, from selected and proven stock. You’U get eggs to market, early and in quantity, and be sure of the best prices. Place your order now for early delivery. R.O.P. SIRED Unsexeti 100 50 Pullets 100 50 35.00 18.00 33.00 17.00 33.00 17.00 17.25 9.10 W. Leg. 18.25 9.60 B. Rocks 18.25 9.60 N. Hamp APPROVED 19.75 10.40 Lt. Sussex 34.00 17.50 16.75 8.85 N. Hamp 30.00 15.50 100% Live Arr. G’t’d. Pullets 96% Acc. PIONEER HATCHERY 416 Corydon Ave., Winnipeg, Man. Froducers o£ High Quality Chicks Since 1910. WEEK-END DRY-CLEANING SPECIAL Any SUIT (2 pc. 3 pc.) COAT DRESS (Plain) CLEANEÐ BY OUR MOST EXCLUSIVE #/PERCARE/# MANNER Ph. 722404 ílde CLEANERS & DYERS LTD, 291 SHERBROOK STREET Kaupfélags Vestur-Húnavetn- inga og var lengi formaður fé- lagsstjórnarinnar. Með störfum sínum þar hefir hann unnið því félagi mikið gagn, enda er hann einlægur samvinnumaður og til- lögugóður við lausnir allra mála. Eg vil ljúka þessum fáu orðum með því að flytja Halldóri Jó- hannssyni kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum tíma, og óska honum og heim- ili hans gæfu og gengis á kom- andi árum. Skúli Guðmundsson Aths. Grein þessi er endur- prentuð úr síðasta blaði vegna^ línuruglings, er þar kom fyrir. — Ritstj. Innilegar kveðjur til íslendinga í tilefni af þrítugasta og fyrsta ársþingi þjóðræknisfélagsins. Á þessu vingjarnlega gistihúsi, er gott að búa og gaman að hittast. ☆ OXFORD HOTEL 216 Notre Dame Avenue — Sími 926 712 JOSEPH STEPNUK President S. M. HENDRICKS Manager BIGGÁR BROS. LIMITED Highway Freighting • Fuel Dealers • Local Cartage 425 GERTRUDE AVE. PHONE 42 844 Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta og fyrsta ársþing þjóðræknisfélags fslendinga í Vesturheimi, 1950. O. K. HANSSON PLUMBING AND HEATING Sími 722 051 163 SHERBROOK ST. WINNIPEG Innilegar kveðjur til . . . ÍSLENDINGA HVARVETNA Þér hafið rækilega stutt að viðgangi vorum, alt frá upphafi vorra vega 1914, er vé höfðum aðeins tvo menn í þjón- ustu vorri, og fram til þessa dags, 1950, er vér höfum nú tvær prýðilegar verzlanir og 21 innanbúðar þjóna er allir eru reiðubúnir og fúsir að veita yður þjónustu. Prescription Specialists K. G. HARMAN R. L. HARMAN SARGENT PHARMACY L I M I T E D Sargenl og Toronto Street WINNIPEG MANITOBA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.