Lögberg - 16.02.1950, Síða 9
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. FEBRÚAR, 1950.
9
Sigurður Indriðason
F. 14. júlí 1863 — D. 25. nóv. 1949
Svo er um ævi
öldunganna
sem um sumar —
sól fram runna:
hníga þeir á hausti hérvistardags
hóglega og blíðlega
fyrir hafsbrún dauða.
Stríð er starf vort
í stundar-heimi,
berjumst því og búumst
við betri dögum;
sefur ei og sefur ei
í sorta grafar
sálin — í sælu
sést hún enn að morgni.
(Jónas Hallgrímsson)
Ekki verður hér reynt að
rekja ætt Sigurðar langt fram,
þótt nokkur gögn til þess séu
fyrir hendi; en traust og gott
fólk virðist að honum standa í
báðar ættir. Föðurfaðir Sigurð-
ar var Jón Jónsson er bjó á Núpi
Sigurður Indriðason
í Laxárdal, en amma hans var
Ingibjörg Þorsteinsdóttir frá
Stórugröf Ingjaldssonar. Sonur
þeirra, Indriði, faðir Sigurðar
kvæntist Súsönnu dóttur Jó-
KOL, KOL, KOL!
Hrein, hitamikil og vel útilátin. Pant-
anir afgreiddar fljótt og skilvíslega.
WINDATT COAL CO., LTD.
“The Old Reliable”
506 Paris Bldg., Winnipeg Phone 927 404
Kallið Jón Ólafsson umboðsmann félagsins í síma, til
þess að vera viss. Símanúmer hans heima er — 37 340
HAMINGJUÓSKIR
»
til íslendinga á 31.
> þjóðræknisþingi
þeirra.
í fullan aldarfjórðung hafa
Winnipegbúar notið hins ljúf-
fenga Purity Ice Cream, eins
og annara heilsustyrkjandi
City Dairy mjólkurafurða.
SÍMI 87 647
Innilegar árnaðaróskir
til íslendinga á þrítugasta
og fyrsta afmæli
þjóðræknisfélagsins
A.S. BARDAL
Funeral Service
843 SHERBROOK ST„ WINNIPEG
Phone 27 324
hanns bónda Jónssonar á Holta-
stöðum og konu hans Medóníu
Guðmundsdóttur frá Móbergi.
Hálfbræður Súsönnu voru Krist-
ján ríki í Hólsseli á Hólsfjöllum,
Lárus, fyrrum sjómaður, en síð-
ar trúboði; enn á lífi í Reykja-
vík, háaldraður, og Jónas pré-
dikari í Winnipeg, er andaðist
þar á unga aldri. Bróðir Jóhanns
á Holtastöðum móðurafa Sig-
urðar hét Jónas, en sonur Jón-
asar Hjálmar að nafni var faðir
Jónasar Leó, föður séra Hjartar
J. Leó. Meðal barna Jóhanns á
Holtastöðum var einnig Sigur-
laug gift Halldóri Jónssyni, þau
fluttu vestur um haf og bjuggu
í Winnipeg.
Indriði og Súsanna foreldrar
Sigurðar bjuggu á Ytri-Ey, var
Indriði góður búhöldur talinn.
Tvær systur Sigurðar eru á lífi:
Ingibjörg (Thorarinsson) Thor-
son, ekkja í Vancouver, B.C.
og Sigurlaug Indriðadóttir á Is-
landi.
Sigurður ólst upp hjá foreldr-
um sínum og varð snemma dug-
legur og þróttmikill, eins og
hann átti kyn til. Ungþroska
fluttist hann til austurhluta
Bandaríkjanna og dvaldi þar um
10 ára bil, lengst af í Boston.
Á þessum árum stundaði hann
aðallega sjómensku, á fiskiskip-
um frá Gloucester, en um lengri
tíma frá Boston á stórum drátt-
arbátum, er sigldu með strönd-
um, milli Boston og New York
og fjarri staða. Á dvalarárunum
vestra að þessu sinni, varð hann
íslendinga lítt var; oft hef-
ir hann þá einmana verið
að hætti ókunnugra manna
í framandi landi. Um nokkra
hríð varð hann að dvelja
á sjúkrahúsi, og átti við
heilsubrest að stríða nokkra
hríð. Mun dvölin hafa þjálfað
hann í margri merkingu. Á þess-
um árum náði hann góðum tök-
um á ensku máli. Að 10 árum
liðnum hvarf hann heim til Is-
lands. — Þar kvæntist hann ár-
ið 1902 Þuríði Sigfúsdóttur Odd-
sonar frá Meðalnesi í Fellum í
Norður-Múlasýslu. Árið 1904
fluttu þau til Canada; þau sett-
ust að í Selkirk, Man. Konu sína
misti hann í apríl 1905. Þann 1.
ág. 1911 gekk hann að eiga Guð-
rúnu Sigríði Pálsdóttur Jónsson-
ar frá Kjarna í Geysisbygð í
Nýja íslandi, lifir hún mann
sinn. Börn hins látna eru hér
talin eftir aldursröð:
Súsanna Ingibjörg, d. 20.
marz 1936; Indriði Jón, kvæntur
Björgu Magnúsdóttur Jóhannes-
sonar, New Westminster, B.C.;
Aðalheiður, Mrs. J. Bjarnason,
Gimli; Pálína Sigríður, Mrs. B.
Walterson, Selkirk; Wilhelm
Reginold, kvæntur Iren Carson,
Selkirk; Lárus Thorgrímur, og
Raymond Sigurjón, báðir heima
hjá móður sinni.
Af nærri 10 ára allnáinni kynn
ingu af Sigurði dylst mér ekki
að hann hafði náð miklum og
haldgóðum þroska 1 reynslu-
skóla lífsins. Ævi hans hafði ver
ið nokkuð breytileg og hafði
þroskað hann mörgum mönnum
framur. Hugarafstaða hans og
framkoma bar einkenni hins
heilsteypta og þjálfaða aldur-
hnigna íslenzka manns; en ekki
er það ávalt að hófstilt rósemi
fylgi fullorðins og elliárum.
Dvölin heima á íslandi hafði
orðið styttri en hann hafði til
ætlast að hún yrði. Virtist hon-
um þar færri vegir opnir til fram
sóknar, en hugur hans hafði
þráð og eftir vonað.
Er vestur kom að öðru sinni
settist hann að í Selkirkbæ, og
átti hér óslitna dvöl í full' 45 ár.
Hann þekti baráttu þess manns,
sem sviptur er ástvini og einn
stendur uppi með móðurlaus
börn. Þegar hann efndi til heim-
ilis á ný, var hann tekinn að
kenna lífsþreytu er fullorðins ár-
in færa. Hann eginaðist góða
konu og indælan lífsförunaut.
Hún varð börnum hans, jafnt og
þeirra eigin börnum góð og um-
hyggjusöm móðir. Það var hlýtt
og bjart um heimili þeirra; —
heimilið aðlaðandi, andi þess
vonglaður og öruggur þrátt fyrir
sjúkdómsföll er stundum báru
þar að dyrum. Þar áttu öldruð
tengdaforeldri hans athvarf ár-
um saman. Vinir og kunningjar
áttu þar góða komu jafnan vísa.
Bæði hjónin áttu sins þátt í því
að gera heimilið aðlaðandi. Þau
voru ávalt auðug af þeim verð-
mætum, sem samúð, trygð og
bróðurhugur skapar . Börn
þeirra urðu þeim gott samverka
fólk og þeim til gleði. Samband-
ið í stækkandi ástvinahópi var
jafnan óvenjulega traust og
hjartfólgið.
Sigurður var gæddur prakt-
ískum starfshæfileikum, og hvar
sem hann vann ávann hann sér
tiltrú manna. Ýms störf hafði
hann með höndum á sinni löngu
dvöl hér í bæ. Um mörg ár starf-
aði hann á Selkirk Mental
Hospital og gat sér þar góðan
orðstír fyrir trúmensku og skiln
ing á störfum sínum.
Það var óvenjulega bjart um
hann á efri árum hans, enda
fann maður naumast til þess að
hann væri maður aldurhniginn,
olli því karlmenskulaund hans
og hugarró, en jafnframt sam-
úðarfull og óþrotleg umönnun
konu hans; börn hans og tengda
fólk gerði sitt til að auka á
gleði hans. Hann las allmikið og
fylgdist af áhuga með því sem
var að gerast. Hann átti góða
greind, var hagorður, þótt lítið
á bæri; átti glöggt innsýni og
skilning á öðrum mönnum, var
glaður og vinsamlegur, en fast-
ur fyrir og lét ógjarnan af skoð-
un sinni. Hann átti mjög glögga
kímnigáfu, er hann þó beitti
með mestu varúð. Hann hafði
unun af blómum og lagði rækt
við þau, átti jafnan góðan garð,
er hann ræktaði með alúð og
umhyggjusemi. Hann var vel
hagur; á efstu æviárum smíðaði
hann mikið af haglega gerðum
fuglabúrum, er hann óspart gaf
vinum sínum yngri og eldri. Ó-
beygður og karlmannlegur gekk
hann til hinztu stunda. Hin síð-
ari ár leið hann af hjartasjúk-
dómi, er hann hafði gengið með
í 40—50 ár, þótt lítt á bæri þar
til á efri árum. Svo kom burt-
fararstundin, þögul og fyrirvara
laus eins og leiftur, án rúmlegu
eða langra þjáninga. Útförin fór
fram þann 29. nóv. frá Langrills
útfararstofu og kirkju Selkirk-
safnaðar, að viðstöddum hans
nánustu og fjölda fólks. Indriði
sonur hans hafði komið flug-
leiðis frá Kyrrahafsströnd til að
vera viðstaddur útför föður síns.
S. ÓLAFSSON
CANADIAN WESTERN BOX
COMPANY LIMITED
Wooden Box Manufacturers and Producers of
Woodex Insulation
Bjóða gesti og erindreka á þrítugasta og fyrsta þjóð-
ræknisþing íslendinga í Vesturheimi velkomna til
Winnipeg.
LOUIS HATSKIN, president
Phone 201 185-6
835 MARION ST. ST. BONIFACE
STERKASTA VÍGI EVRÓPU
Gíbraltar-vígið er ekki lengur
sterkasta vígi í Evrópu. Annað
sterkara vígi er til og það er í
Noregi, gert af Þjóðverjum á
stríðsárunum og kallast Tron-
denes-vígi. Umhverfis aðalvígið
eru 357 önnur vígi, fallbyssu-
stöðvar og skothreiður. Þar eru
svo að segja endalaus neðanjarð-
argöng og skotfærageymslur
neðan jarðar. Þar eru einhverj-
ar hinar stærstu fallbyssur í
heimi og með þeihn er hægt að
skjóta 20 sprengikúlum á hverri
mínútu og vegur hver sprengi-
kúla smálest.
Þessar mkilu víggirðingar eru
svo vel faldar, að þær sjást ekki
tilsýndar. Fallbyssurnar eru
faldar í hellum, sem höggnir
hafa verið inn í fjöll og kletta.
Víggirðingarnar ná yfir alt nes-
ið. Það var áður nafnkunnugt
fyrir gamla og fagra kirkju. Hún
stendur ennþá, en kirkjugarður-
inn er stórbreyttur frá því sem
áður var. Fyrir sjö árum voru
þarna aðeins nokkur leiði, en nú
eru þar þúsundir grafa á stóru
svæði. Sumt eru fjöldagrafir.
Þarna hvíla þeir, sem unnu að
bygingu þessara miklu víggirð-
inga. Það voru aðallega rússnesk
ir herfangar.
Það var blandin ánægja fyrir
Norðmenn, litla og friðsama
þjóð, að eignast þetta vígi að
ófriðnum loknum. Bæði var það
þeim ofviða og svo gera menn
ráð fyrir því að það verði til
þess að Norðmenn hljóti þegar
að dragast inn í næstu styrjöld
— ef hún skellur á.
Þýzka herstjórnin lét reisa
þessar víggirðingar á árunum
1941—1944 til varnar Narvík, því
hún var altaf hrædd um að
bandamenn mundu gera þar
árás. Ef litið er á landabréf Nor-
egs sést fljótt hve tröllauknar
víggirðingarnar eru. — Þær
byrja á eynni Röervik, sem er
rétt norðan við heimskauts-
baug. Þar eru fjórar stórar og
langdrægar fallbyssur. Þaðan
liggur virkjakerfi norður að
Framhald á bls. 11
Við óskum íslendingum til
hamingju með þrítugasta
og fyrsta þjóðræknisþing
þeirra
Vér höfum orðið þeirra
forréttinda aðnjótandi,
að eiga viðskipti við
íslenzka fiskimenn yfir
lengsta tímabil í sögu
Manitobafylkis. Þokk
fyrir drengileg viðskipti
ARM STR0NG-GIMII
FISHERIES LIMITED