Kirkjublaðið - 01.01.1892, Síða 2
2
Eptir ósk ýmsra verður seinna skýrt frá útbreiðslu
blaðsins í hinum einstöku landshlutum; hún kemur enn
þá töluvert misjafnt niður.
Fram yfir hið fasta upplag, 1000, til kaupenda af þess-
um 1. árg., hafa af hinum 7 blöðum alls verið prentuð 3000
eintök aukreitis, mest til útbýtingar og sýnis; helmingurinn
afþví kemur á jólablaðið; með því áframhaldi vinnast fljótt
upp heimilin. Jeg hef trú á slíkri útbýtingu, hún spillir
eigi fyrir sölunni; nema ef til vill í stað og stað og
rjett í bili. Jeg segi með einum bezta styrktarmanni
blaðsins: »Það er strax betra en ekki neitt, að þeireru
sumir, og það jafnvel velstandandi menn, að spekúlera í
því að fá blaðið gefins«. — En vjer verðum að reyna að
gjöra blaðið þannig úr garði, að heimilin vilji sjá það
optar en einu sinni.
Reykjavík, 31. desember 1891.
Iiit8tj órinn.
Kvöldsálmur.
(Eptir Mattbias Claudius).
Á himni hefst upp máni
og herinn stjarnafráni
á blálopts blikar veg;
á múla myrkrið leiðir
og mjög sig þokan breiðir
um engið hvít og undarleg.
IIve hljóð nú veröld virðist,
þá vafin rökkri kyrðist;
hve friðarljúf um leið,
sem hljóðust hvílustofa,
þar hægt vjer skulum sofa
og gleyma dagsins gremju og neyð.
Sjá tungl á himni háum,
það hálft vjer að eins sjáum,
sem frítt og alfult er;
eins mjög svo margt með röngu