Kirkjublaðið - 01.01.1892, Blaðsíða 14

Kirkjublaðið - 01.01.1892, Blaðsíða 14
14 En skírnarinnar helgi sáttmáli er í því fólginn: a?) afneita öllu illu og óguðlegu í hugrenningum, orðum og gjörhum; að trúa á Guð íöður, son og heilagan anda. A að skíra harnið upp á þessa afneitun og þessa trú? Að sjálfsögðu yrði fermingin að breytast í samhljóðun við skírnina. Orðunum til guðfeðgina viidi fundurinn víkja við eptir tillög- um Kirkjúbl. Spurningar við hjónavígslu vildi fundurinn hata að eins tvær, neínliega um »einlægan vilja« til að ganga í hjónabandið og »alvarlegan ásetning« að hreyta vel í því. Sömuleiðis vildi fund- urinn sleppa ritningarköflunum, sem lesnir eru upp á eptir hjóna- vígslunni. Þeir sjera Magnús Jónsson í Laufási og sjera Pjetur Jónsson á Hálsi vildu fá einhverja ritningarlesning í staðinn. Sömu voru móti breytingu á skírnarsáttmálanum. Orðunum »sannur« og »sannarlogur« vildi fundurinn sleppa við útdeilingu. Mikið og margt var rætt um það, að prestar með aðstoð sókn- amefnda stunduðu sem hezt uppfræðslu barna, og ályktaði fundur- inn, að prestar skyldu framvegis í hveiri sólm halda árlegt próf í maímánuði yíir öllum börnam 12—16 ára, sje sóknarnefndin þar viðstödd og geíi ásamt prestinum vitnisburð um kunnáttu barn- anna í kristindómi og öðrum námsgreinum. Skýrsla um próflð sendist prófasti. Pundurinn kenndi það hinum óhentuga tíma, hvað marga vant- aði, og samþykkti að leita álits hiskups um það, hvort fáanlegt væri, að hjeraðsfundur þar í prófastsdæminu yrði haldinn að vorinu. Þd athugasemd verður hlaðið að gjöra, að harla varhugavert er að hreifa við sjálfum skírnarsáttmálanum, þessu erfðalje kristninn- ar frá postulatímanum, — játning samfara afneitun. Þetta tvennt, af- neitunin fyrst og síðan játningin — iðrunin og trúin — eru hin óaðskiljanlegu skírnarskilyrði frá allra-elztu tímum. Afneitunin er sýnanleg og sannanleg frá miðri 2. öld, en eflaust eldri. Það tjáir með engu móti, að setja hana á bekk með særingunni, sem fyrst kom á 3. öld, og var alls enginn óaðskiljanlegur hluti skírnarinnar, og er því með rjettu farin, þó að Lúther hjeldi fast í hana, til að minna á erfðasyndina. Skírnarsáttmálinn finnst mjer og í annan stað óhugsanlegur, nema farið sje með hina postullegu trúarjátn- ingu alla og orðrjetta. Yæri hjer um nokkra breytingu að ræða vildi Kirkjuhlaðið helzf gjörast talsmaður þess, að hverfa frá hinni »endurskoðuðu« handbók tíl hinnar eldri og taka upp beinu spurn- ingarnar: Afheitar þú? Trúir þú? Eldri prestar, sem skýrt hafa eptir báðum formálunum, munu væntanlega kannast við, að beinu spurningarnar gjöra athöf'nina áhrifameiri (jeg hef reynt það við að skýra eptir dönsku handbókinni), og það sem mestu varðar:

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.