Kirkjublaðið - 01.01.1892, Page 5

Kirkjublaðið - 01.01.1892, Page 5
5 ekki þarlenda tungu. Það er alkunnugt, að íslenzka kirkjufjelagið þar, sem enn má heita frumbýlingur, á við ákafiega mikla erfiðleika að berjast, þar sem það er að reyna að mynda söfnuði og halda þeim saman, svo að fólkið lendi ekki í villudómi eða algjörðu guðleysi, og er auk þess að brjótast í því að stofna skóla, en á hins vegar að stríða við andróður andstæðra trúarflokka og mótþróa margra einstakra manna. Hjer er því verulega hjálpar þörf. Aðrar Norðurlandaþjóðir styrkja þó kirkjulegan fjelagsskap meðal útfluttra landa sinna vestan hafs á ýmsan hátt; en vjer höfum til þessa ekkert gjört í þessa átt; og þó er þörfin ekki hvað minnst meðal íslendinga þar vestur. Bezta hjálpin í þessu tilliti væri raunar það, að senda þangað hæfa presta; en allar tilraunir í þá átt hafa mis- heppnast til þessa, og er lítil von til þess, að þaðheppn- ist betur framvegis. Það er varla við því að búast, að prestar hjer, þótt þeir sjeu vel vaxnir stöðu sinni hjer heima, treysti sjer til að takast þar prestþjónustu á hend- ur, með því að þar hagar svo ólíkt til og hjer að mörgu leyti; svo að það er varla af því, að þá vanti vilja að hjálpa, að þeir íást ekki þangað. En úr því að vjer ekki getum stutt kirkjulegan fjelagsskap íslendinga vestan hafs á þann hátt, höfum vjer naumast annað ráð til að styrkja þá, en að hjálpa þeim um fjárstyrk til að reisa kirkjur, mennta prestaefni, kaupa guðsorðabækur, eða eitthvað af þessu, sem mest þörf væri á í svipinn, og eptir því sem fjeð hrykki til. Það er enginn efl á því, að slíku fje mundi verða vel varið, meðan sá maður stýrir málefnum hinnar lútersku kirkju landa vorra vest- an hafs, sem nú gjörir það; og þó að hans missti við, mun þar varla góðra forstjóra vant; enda fengjum vjer þaðan jafn- óðum skýrslu um það, hvernig fjenu yrði varið. Ef vjer því á annað borð höfum ráð á að styrkja kristniboð í út- löndum, — og um það getur enginn efi verið, meðan vjer leggjum svo mikið í munaðarvörukaup, sem vjer gjör- um, — þá sýnist liggja neest, að styðja að því, að vorir eigin landar ekki lendi/í flokki heiðingja og guðleysingja. Bezt væri auðvitað, að hvorutveggja yrði sinnt jafnframt,

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.