Kirkjublaðið - 01.01.1892, Síða 11

Kirkjublaðið - 01.01.1892, Síða 11
11 ar vantrúarboðberinn leggur leið sína inn á heimilin, verðum vjer að geta sent annað rit inn þangað til varn- ar og mótmæla, til að byggja og bæta,þar sem hitt ritið rífur og spillir. VitanLega er vantrúarboðberinn Fjall- konan. (Framh.). ---—- Um náðarmeðulin eða rjetta meðferð þeirra, hefur leilcmaður í Húnavatns- sýslu, sem eigi vill láta nafns síns getið, sent blaðinu hugvekju, áður fiutta á safnaðarfundi. Rúmið leyflr eigi að taka meira en það sem hjer fer á eptir: »Eins og þess er engin von, að meðul þau, setn hinir jarðnesku læknar viðhafa tii lækningar likamanum, komi hinum sjúka að notum, nema hann brúki þau og það eptir fvrirsögn læknisins — en það gjörir sá veiki því að eins, að hann fyrst og fremst sje sannfærður um, að hann þurfi lœlcningar við, og í annan stað, að hann beri nokk- urt traust til læknisins og tilrauna hans — eins er þess eliki heidur von, að meðul þau, sem hinn himneski iæknir okkar andlegu meinsemda hefur fengið oss í hendur, verði oss að tilætluðum notura, ef vjer vanrækjum brúk- un þeirra, eða gjörurn það með hangandi hendi, án trú- ar, eða á annan hátt en fyrir er lagt«. Leikm. er hræddur urn, að menn hafl eigi almennt rjetta og ljósa hugmynd um sldrnina: . . . »Þegar heyrist talað um barnið sem utan við kirkjuna, eða sem »lieiðið«, þótt það sje skírt, og enda allt tii fermingar þess, og sú athöfn, fermingin, er svo nefnd að «kristna« barnið; eða þegar það, að gefa nafn skynlausum skepnum. eða dauðum hlutum er nefnd skirn, bendir það þá ekki til að svo sje, að mönnum finnist, að skírnin þýði bað, að álcveða þeim, er skírist vist nafn, fremur en hitt. að hún sje andleg hreinsun, inntaka í kristinn söfnuð og sáttmáii við guð«. Leikm. vandar um það, hve mjög nautn heilagrar kvöldmáltiðar er víða að leggjast niður: »Fyrir að eins 40—50 árum síðan vissi jeg ekki betur, en að því nær hver maður, karl og kona, er kominn var yfir ferming-

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.