Kirkjublaðið - 01.10.1893, Page 7

Kirkjublaðið - 01.10.1893, Page 7
183 og hvert annað: það tjáir ekld að líta á það einungis frá einni hlið. Engum dettur í hug að hafa á móti því, að prestar haldi ræður upp úr sjer, það er að segja þeir af þeim, sem betur eru lagaðir til þess, en að flytja ræður af blöðum. Og til þess að fá reynslu í því efni, væri án efa ráðlegt, að prestaskólinn ljeti lærisveina sína hjer eptir æfa sig í hvorri tveggja prjedikunaraðferðinni, svo hver geti síðan valið þá, er honum lætur betur. Br. J. Allra þjónar. 2. Elisábet Fry. I þessum mánuði eru 48 ár síðan að mannvinurinn mikli, frú Elísabet Fry, andaðist í Ramsgate við Tempsár- ósa, hálf-sjötug að aldri, og háir sem lágir heima á sjálfu Englandi og miklu víðar syrgðu hana svo innilega, sem ættu þeir beztu móður á bak að sjá. Líf hennar var óslitið kærleíkslíf fyrir alla hina vol- uðu á vegi hennar, auðnuleysingjana og óbótamennina, en mátturinn var svo mikill að henni vannst þó tími til að veita heimili sínu beztu forstöðu og hún var ellefu barna móðir. Sagan geymir nafn hennar aðallega fyrir afskipti hennar af bandingjunum, en kærleiksáhrif hennar náðu þó miklu lengra. Margskonar framkvæmdir kristilegrar mannúðar og miskunnsemi um allan hinn siðaða heim kenna sig við hana og eru runnar frá hennar líknar- hjarta. Foreldrar Elísabetar voru kvekarar, faðirinn hjet John Gurney, en móðirin Katrín. Kvekarar eru, sem kunn- ugt er, manna látlausastir, og um leið manna vandaðastir. Foreldrar Elísabetar fylgdu eigi hinum strangari háttum kvekara. Hið efnaða kaupmannsheimili var glaðvært og börnin, 12 að tölu, lifðu við sældarkjör og nóg föng til að menntast. Móðirinni er svo lýst, að hún hafi verið ágætiskona, hún ljezt þegar Elísabet var 12 ára. Frá móður sinni hafði hún trúarstyrkinn og dæmi hennar hafði hún sjer fyrir augum til æfiloka.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.