Kirkjublaðið - 02.04.1894, Qupperneq 4
öflum náttúrunnar, þegar hið ráðandi allsherjar-lögmál
tilverunnar varpar þeim yíir hann. En þegar til hins
andlega lífsins kemur, þá á þar að verða eitthvert yfir-
náttúrlegt kraptaverk, þanuig lagað, að það skal ekki
saka, þó að hann sjálfur leggi sig undir afl hins illa, þar
sem það brunar fram á móti honum eins og eimvagna-
lest á járnbraut; honum á að vera óhætt að neita frelsis-
hendi þess, er vill bjarga honum; aflið illa á ekki að
geta gjört út af við hann, hvernig sem það veltir sjer
yfir hann. Ef hann í einstaka tilfelli kann að særast
ofur-lítið, þá eiga þau sár innan skamms tíma að gróa
af sjálfum sjer. Allt hlýtur að íara vei á endanum. Það
er ekki mikið að hræðast annan eins Guð, sem lætur sjer
standa á sama, eða því sem næst, hvernig brotið er á
móti hans lögmáli. Ef þessi ímyndaði Guð væri maður,
þá mundi mega segja um hann, að hann væri hið mesta
góðmenni, meinlaus öldungur, sem ómögulega gæti fengið
af sjer að fram fylgja síuum eigin hússtjórnar-lögum,
þegar það kæmi í bága við tilfinningar hans heimilis-
fólks.
En Guð er engin slík meinleysis-vera. Kærleikurinn
er ekkert iíkur því, sem í dagiegu tali er kallað góð-
mennska. Guð er kærleikans Guð, en sá kærleikur heimt-
ar, að hinu eilífa lögmáli, sem bindur tilveruna saman,
sje fulinægt í hverjum einasta og minnsta punkti. Hanu
fylgir þessu lögmáii einnig þá — sjerstaklega einmitt þá,
þegar hann fyrir endurlausnarverk Jesú Krists frelsar
mannsandann frá glötuninni.
Nú ætti öllum að vera ljóst, hvað kærleikurinn er.
Kærleikurinn er ekki nein ímynduð stærð; kærleikurinn
er ekki nein hugmynd, sem mannsandinn hafi smíðað.
Kærleikurinn er ekki það, sem sá eða sá maðurinn ákveð-
ur að vera skuli kærleikur, ímyndar sjer að kærleikur-
inn hljóti aö vera. Kærleikurinn er fast-ákveðin stærð
í virkilegleikanum. Það, sem Guð er, — það sem Guð
sýnir sig að vera í hinni náttúrlegu opinberan sinni og í
hinni andlegu opinberan sinni, þeirri, er kennd er við
Jesúm Krist, — Guð eins og hann í virkilegleikanum kem-
ur fram, það er kærleikurinn.