Kirkjublaðið - 02.04.1894, Blaðsíða 6

Kirkjublaðið - 02.04.1894, Blaðsíða 6
70 Þegar menn sjá þennan makráða, værukæra, hörundsára, volaða kærleik frá mönnum til manna, þessa skrípamynd af mannlegum kærleik, sem ómögulega þolir það, aðrask- að sje mannfjelagsrónni, þó að hún sje ekki annað en dauðasvefn, þá má hiklaust hafa það fyrir satt, að menn trúi þar á þeim stað á einhverja mynd af Guði og hin- um guðlega kærleika, sem hvergi er til í virkilegleikans heimi, mynd, sem myndazt heíir í mannanna eigin sálum og lypt sjer þaðan upp í hinn andlega himin, sem þeim tilheyrir, fram undan augum þeirra. — »Hvað sjer þú?« spurði Sál konungur galdrakonuna í Endor, er hún fyrir áskoranir hans hafði vakið Samúel upp frá dauðum eða látið svip hanskoma fratn. »Hvað sjer þú?« — »Jeg sje guð nokkttrnkoma upp úr jörðunni«, segir konan. »Hvern- ig er hann útlits?« spyr Sál. Konan svarar: »Gamall maður stigur upp, og er íklæddur skykkju«. -— Það þarf ekki að spyrja mennina, sem jeg var að tala um nú næst á undan, hvað þeir sjái, að því er snertir Guð og kær- leik hans. Þeir sjá Guðs mynd, sem upp stigin er frá jörðunni, nákvæmlega eins langt að neðan eins og þeir sjálfir standa neðarlega. Og hvernig lítur sá Guð út? Eins og gamall maður, íklæddur skykkju. Skykkjan er hysmið af guðstrú kristindómsins. — Þoka skynsemistrúar- innar lyptir sjer frá jörðu og verður ský.----- ------------------- Um söng vorn og sálma. Jeg hefi nú bráðum í full 30 ár átt að segja yfir sálmasöng 1 kirkjum og er gamall söngs og sálmavinur. Vil jeg því leyfa mjer að ónáða hið góða Kirkjubl. vort með litlu hálfyrði um söng og sálma hjá oss í seinni tið, eptir mínu viti og eptirtekt. 1. Hvað kirkjusönginn áhrærir, er hann ólíku betri en hann var í mínu ungdæmi hvað iþróttina snertir; já, hann er orðinn allur annar víðast hvar, þótt harla mis- jafn sje, því sumstaðar nær bótin ekki nema til laganna, sem víðast eru sungin eptir vorum nýju nótnabókum, eða undir þeim lögum, sem breytt hefir verið úr fornu ólagi eða innleidd eins og ný lög. Þó er hjer við nokkuð

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.