Kirkjublaðið - 02.04.1894, Síða 8
72
um« sínum, að þeir ekki rífl hveitikornin upp með ill-
gresinu.
2. Hvað sálmana snertir, sem nú eru að ryðja sjer
til rúms, þá leynist engum, að vjer höfum eignazt stórum
fullkomnari og andríkari sálmasöngsbók í stað hinnar
eldri »nýju bókar«, og á sjö-manna-nefndin ódauðlegar
þakkir skyldar fyrir hana, þótt einhver missmiði megi
máske á henni flnna. Hinn ný-sálaði kirkjulega andríki,
góði og guðhræddi sjera Helgi er þar (í bókinni) fyrstur
á blaði með sína mörgu sálma. Flestir þeirra eru mjög
liprir og eptir því kirkjulegir. Formið er fagurt og
hugsanirnar auðveldar, mál og kveðskapur í bezta lagi.
Þó eru hans sálmar fremur eptir hinum gamla eða eldri
stýl, og af hans fjarska-mörgu þýddu sálmum, eru lang-
flestir frá liðnum öldum. En svo var og hans guðfræðis-
stefna, öll forn-lútersk, óbrotin og sterk. En af því að
hjartalag eða persóna höfundarins er fyllilega í hverjum
hans sálmi, hafa þeir allir sitt gildi og munu lengi ávinna
sjer sína vini, enda má og finna ófáa sálma i safni hans,
sem hverri þjóð mundi þykja dýrmæti að eiga.
En ef sjera H. H. tilheyrir sem sálmaskáld eiginlega
hinum liðna tíma, er hinn höfuðtnaður bókarinnar, sjera
Valdimar, sannur sonur vorra tima. Síðan Hallgrímur
Pjetursson kvað, hefír hann einn getað lypt sálmakveð-
skapnum til fullrar lýriskrar fegurðar. Hans mörgu sálmar
eru og furðulega jafnir. Það eina, sem ábótavant er, að
sumra dómi, við sálma hans, er það að lögin eru ekki
ætíð heppilega valin við efni, eða ætíð hent og falleg.
En þetta fer eptir smekk manna. Hæð, dýpt og víðtæki
þessa skálds ætla jeg sje fágætt, þótt borið sje saman
við sálma-kveðskap stærri þjóða. Það er hann eða hans
sálmar (einkum hans meistaralegu guðspjallasálmar), sem
gjöra bókina að andlegum kjörgrip þjóðarinnar.
Þá eru og nokkrir (en allt of fáir) sálmar eptir sjera
Matth. Jochumsson, sem heita mega skilgetnir bræður
sjera Valdimars sálma. Að öðru leyti er andi M. J. allt
of fljúgandi og óbundinn i trúarefnum til þess að slíkur
maður hafi getað orðið kirkjulegt sálmaskáld á þessum
dögum.