Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 1

Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 1
mánaðarrit handa íslenzkri alþýöu. IV. RVÍK, JÓLABLAÐIÐ, 1894. 15. Jólakvæði. Nú er sól og sumar blítt suðurbúum hjá hinum megin á hnetti hjeðan langt í frá. Hjer er dimmt, hjer er kalt, — hjer við norðurpól höldum vjer þó hátíðleg og heilög vor jól. Sólin hátt á himni skín, hrekur myrkrið svart hinum megin á hnetti, hýrt er þar og bjart. Hjer er dauft, dimmt og svart, döpur vetrar-jól. Lýsir oss þó lífsins glaða ljómandi sól. Blóminn þekur græna grund glaða sumartíð hinum megin á hnetti, hlíðin brosir fríð. Hjer er auðn, engin blóm, ísi þakin grund. Eins þó grær hjer eilíft blóm úr ódáins lund. Morgundaggir gullnar gljá, glita mörk og lund hinum megin á hnetti, hýra morgunstiuid. Hjer er kveld, húm og nótt, hrím og vetrar-snjár. Glóa hjer þó Guðs á börnum gleðinnar tár. Spegilfögur liður lind laufgan niður dal hinum megin á hnetti, himins speglar sal. Iljer er frost, hjarn og svell hylur vötnin blá, Frelsisins og friðarlindum frýs þó ei á. Fagurt syngur fugla hjörð fríð í grænum skóg, hinum megin á hnetti hljómar gleði nóg.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.