Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 11

Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 11
231 ætíð verndað heflr migl Lof og þökk jeg þjer vil syngja; þú, sem elskar börnin góð, kvakið mitt í hæðir heyrðu, heyr mín auðmjúk bænarljóð. Veit mjer styrk að stunda dyggðir, styrk þú mig að lifa þjer þetta ár og allar stundir, enn sem náð þín lánar mjer; náð hjá þjer og þekkni mönnum, þekking skýra, hkams magn, veit þú mjer, og veit eg megi vinna þjóð og landi gagn. Blessa föður minn og móður, mínum kærum öllum hjá ætíð vertu, Guð minn góður, gættu þeirra, vernda þá; virztu lýð og land að blessa, leiða vilta á rjettan stig. Faðir stunda, ára, alda, ungt og gamalt lofi þig. B. B. -----sss----- Jólasaga. »8ælla er að get'a en þiggja«. Sagan gjörist í smábæ einum erlendis og byrjar á Þorláksmessu. Lesandinn verður fyrst að koma með inn í snotra stofu í húsi efnamanns, og þar sitja börnin hans þrjú, tvær stúlkur og einn drengur. Eldri stúlkan heitir Elín, hún er á 14. árinu, yngri stúlkan heitir Rósa, hún er á 12. árinu. Þær eiga mikið annríkt systurnar, eru báðar eitthvað að gjöra í höndunum og hafa hálfopna skúffu fyrir framan sig til þess að fela það i, ef einhver skyldi koma í dyrnar, það eiga víst að vera jólagjafir, sem enginn má sjá. Við borðendann situr Albert litli, hann

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.