Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 8
228
Aðfangadagskvöld.
Á hverju heimili út um hinn viðáttumikla kristna
heim er þetta kvöld í minningu fæðingar frelsara vors
haldið hátíðlegt á ytri hátt. Húsin og heimilin eru
hreinsuð og þvegin og húsmunirnir settir i röð og reglu,
svo allt líti sem prýðilegast og ánægjulegast út. Til að
auka hátíðisbraginn lireinsa menn líkama sinn og bún-
ing. Menn kveikja ljós á fleiri stöðum og með fegurri
útbúnaði en hversdagslega. Þeir sem eru fjarverandi,
taka sig upp og flytja heim til sín, til þess að vera
heima hjá sjer þetta hátíðiskvöld og dagana á eptir.
Menn búa sig undir og afla sjer þeirrar likamlegu fæðu,
sem er frábrugðin hinu vanalega til þess að neyta henn-
ar þessa hátiðis’daga. Og þótt menn þetta heilaga kvöld
sneiði sig hjá háværum skemmtunum, sjezt þó á útvortis
svip flestra eitthvert gleðibragð, og það jafnvel beirra,
sem eiga um eitthvað sárt að binda eða lifa við böl fá-
tæktarinnar. Yjer prýðum þannig hús vor á þessu kvöldi
og berum glaðværðar-útlit, allt i þeim tilgangi, að halda
jólin helg.
Vjer höldum þó ekki jólin á rjettan hátt, ef vjer að
eins látum skína kringum oss og á oss ytri fegurðar og
fagnaðarsvip, en höldum þau ekki einnig andlega með
innvortis fagnaði ög prýði, sem augljóslega beri þess
vott, að vjer metum gjöf Guðs, frelsara vorn, og viljum
færa oss hana i nyt.
Eins og vjer hreinsum hús vor á jólunum af öllum
óhreinleik, eins eigum vjer að hreinsa allan heimilisbrag
vorn og heimilissambúð. Getum vjer hugsað oss, að vjer
getum haldið jól, og að vor heilagi gestur, Jesús Kristur,
sem hefir viðbjóð á öllu kærleiksleysi, geti dvalið hjá oss
stundu lengur, ef vjer i heimilissambúðinni sýnum kær-
leiksleysi, sem gjörir oss allra óverðugasta til að veita
honum viðtöku. HVe óverðuglega eru jólin haldin i þeirri
sambúð og á því heimili, þar sem annaðhvort hjónin lifa
í úlfúð, eða þar sem hjúin í samvinnunni lifa í aggi og
deilum, eða þar sem menn eru svo dutlungafullir að tala
eigi innilega saman, heldur eins og með ónotum hvert