Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 5

Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 5
enginn engill Drottins flytur þeim fagnaðarerindið um frelsið. En þó er þeim frelsari fæddur engu síður en oss. Mitt á meðal þeirra stendur sá, sem þeir þekkja ekki; mitt á meðal þeirra stendur frelsarinn, ósýnilegur, en þó kröptuglega verkandi og undirbúandi hjörtu þeirra til þess, að þeir á sínum tíma einnig geti orðið aðnjót- undi frelsisins, þess frelsis, sem Guð af náð sinni hefir öllum fyrirhugað. En hinir vantrúuðu og guðlausu mitt í kristninni? Hafa þeir eða geta þeir haft gleðileg jól? Ekki í kristi- legum skilningi; ekki enn sem komið er að minnsta kosti. Þeir geta uppljómað hús sín engu síður en aðrir, en þeir sitja samt i svörtu myrkri, þótt ljósin ljómi allt í kring- um þá. Þeir geta ef til vill búizt um ríkmannlega, en eru þó sárfátækir mitt í allri sinni dýrð, þar sem þeir ekki hafa frelsisvonina fyrir Jesúm Krist. Þeir geta hlegið og leikið og gjört sjer »heiðna gleði«; en dauðans kvíði nagar þó þeirra hjartarætur. En þeirra tími til frelsis og frelsisgleði kemur vonandi einnig, því að þeir heyra og til þess týnda og glataða, sem frelsarinn er kominn til að leita og frelsa. Sá tími kemur vonandi, þótt seinna verði, að þeir snúa sjer til Guðs, og verða hluttakandi í náð Jesú Krists, og ásamt öðrum lofa Guð fyrir gleði- leg jól. En hinir ströngu menn, sein hafa þá trú, að þótt frelsarinn sje fæddur öllum mönnum, þá muni þó að eins fáir hólpnir verða; allur fjöldinn muni eptir sem áður verða glataður eilíflega? Hvernig geta þeir haft gleði- leg jól, sem sliku trúa? Það getur verið erfltt að hugsa sjer sanna jólagleði samfara slíkri trú; því að hlýtur það ekki að skerða gleði hvers góðá manns, að vita, öðrum líða illa, þó honum sjálfum líði vel, hvað þá, ef um óend- anlegar kvalir er að ræða, ef til vill fjölda mannkyns- ins ? Menn gætu freistast til að hugsa, að þessir ströngu trúmenn hefðu engin gleðileg jól, eða að öðrum kosti, að þeir hefðu engan kærleika. En slíkt megum vjer alls ekki hugsa, enda er það vitanlegt, að ýmsir mestu og beztu menn kristninnar á ýmsum tímum hafa meira eða minna hallazt að slíkri trú, og þó, að því er sjáanlegt

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.