Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 12
m
er á 10. árinu, hann hefir ekkert fyrir stafni, annað en
að hringla með leikfang fyrir framan sig, en hann er
auðsjáanlega búinn að fá nóg af því, þvi að hann kastar
því öllu frá sjer og segir við systur sínar:
»A morgun koma jólin og þá fáum við ný gull«.
Rósa litla leit upp frá vinnu sinni og tók undir við
bróður sinn:
»Já, við fáum ný gull á jólunum, og fallegustu gullin
fáum við frá henni ömmu, það er allt gott sem hún
amma gefur«.
Börnin töluðu eitthvað meira um þetta og hvað þau
hlökkuðu til jólanna. Þá heyrðist gengið um, og inn kom
móðir þeirra með brjef í hendinni.
»Það er frá henni ömmu ykkar«, sagði hún. »Lítið
á hvað hún sendir ykkur«, og sýndi þeim í lófanum á
sjer 3 gullpeninga. »Hún treystir sjer ekki að ganga
sjálf í búðirnar núna, en sendir ykkur þetta til að kaupa
ykkur eitthvað fallegt fyrir til jólanna, og þið megið
ráða því sjálf, en annað kvöld kemur hún amma ykkar,
og sjer hvað þið hafið keypt, og þið megið ekki kaupa
neitt, sem henni geðjast ekki vel að«.
Börnin rjeðu sjer ekki fyrir gleði, svona mikla pen-
inga höfðu þau aldrei átt á æfi sinni; og mega svo sjálf
kaupa fyrir allt þetta. Og þau fóru að bera sig saman
um það, hvaða ósköp þau gætu keypt af barnagullum,
nýjum brúðum og spilum og öllu mögulegu, sem þau
þekktu.
Lítilli stundu sfðar voru öll börnin lögð af stað inn
í sjálfan kaupstaðinn skammt í frá, til að koma út pen-
ingunum sfnum.
Kennarakonan af heimilinu var með þeim, en þeim
varð heldur en ekki töf að henni. Hún þurfti að koma
við í húsi á leiðinni; þar bjó fátæk ekkja, sem hafði ofan
af fyrir sjer með saumaskap, hún saumaði fyrir heimilið,
og átti einhverju ólokið fyrir jólin.
Stúlka fyrir innan fermingu, á aldur við Elínu, kom
til dyra. Kennarakonan spurði, hvað kjólnum liði, og
stúlkan hafði góð orð um, að koma með hann fyrir að-
fangadagskvöldið, en bætti þvi við til atsökunar á drætt-