Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 16

Kirkjublaðið - 24.12.1894, Blaðsíða 16
236 Uppruni jólahátíðarinnar. Jólahátíðin er yngst kristinna hátíða, ogþó gæti hún heitið móðir þeirra allra. Það er l'yrst sjáanlegt um miðja 4. öld, að fæðingar- hátíð frelsarans er haldin helg, og það á þeinfjdegi, sem nú eru haldinjól, og jólahaldið á fyrst heimaí Kómaborg og breiðist útþaðan. Menn hata leitað orsaka til þessa, og þá bent á hinar ólíku lífsskoðanir Gyðinga og heiðingja. Heiðingjarnir leituðu allrar farsældar þessa heims; i skuggaríkinu eptir dauðann var allt 'fúlt og ömurlegt. Akkilles, Grikkjakappi, segir við Odýsseif í undir- heimum, að heldur kjósi hann að vera kaupamaður hjá fátæklingi uppi í sveit, við þrÖDgan kost, en að ríkja yíir öllum dauðu draug- unum. Gyðingar festu aptur á móti, æ betur og betur, hugann við sæluna annars heims, sem allra fyllst kom þó íram í sjáifum kristindóminum. Sálmaskáldið í israei kemst svo að orði: »Vorir ælidagar eru 70 ár og með sterki heilsu 80 ár, og það þeirra hið kostulegasta er sorg og mæða, því þau líða skjótt og vjer erum á fiugi« (Dav. s. 90, lOp Og Prjedikarinn bindur þessa lífsskoðun þjóðarinnar í hin alkunnu orð: «Dauðadagurinn er betri en fæðing- ardagurinn« (7, 1). Ut frá slíkum lífsskoðunum var fæðingardagurinn minningar- og gleðidagur hjá heiðingjum, en Gyðingar hirtu eigi um hann. Vjer getum í þessu sambandi minnztþess, að sáeini af guðspjalla- mönnunum, sem ekki var Gyðingaættar, guðspjallamaðurinn Lúk- as, varð til þess að segja frá fæðingu írelsarans með töluverðri nákvæmni. Það er ekki ósennilegt, að þessi hugsunarháttur Gyðinga hali mestu ráðið um það, að fæðingardags frelsarans var svo lítið minnzt í hinni fyrstu kristni. Lpprisuhátiðin varð aðalhátíð hinn- ar ofsóttu kristni. /i upprisu Krists byggðist trú og von hins ein- staka og alls safnaðarins. Það er fyrst þegar áhrif gyðingdómsins minnka í kristninni, og í annan stað fer að sjá fram úr ofsóknunum, að farið er að minnast fæðingardags frelsarans rækilegar. Vera má og að á- herzla haíi verið lögð á fæðingardaginn gegn villukenningunni, sem neitaði sannri hoidtekju Krists. Sagnir eru um það, að bisk- upinn í Jerúsalem haíi leitað úrlausnar Júlíusar »páfa« í Bóm, um miðbik 4 aldar, um það, hvaða dag f'relsarinn væri fæddur og haíi Kómabiskup þá frætt hann og austurlenzku kirkjuna um hinn rjetta dag. Areiðanlegast í þessu efni er kafli úr ræðu eptir Krysostomus, sem hann hjelt í Antíokkíu á Sýrlandi 386, á jóla- daginn, 25. desember, þar sem hann segir að ekki sjeu nema 10 ár síðan þessi fæðingardagur Krist varð kunnur þar austur frá, en hann getur þess jafnframt, að hátíð þessi haíi lengi verið haldin helg um Vesturlönd. Jólahaldið hefir sennilega verið miklu eldra vesturfrá (sbr. Jólabl. 1892, bls. 236), en eystra var fram að 400 Epífanías-há- tíðin (Þrettándinn) fyrsta hátíð kirkjuársins og aðalhátíðin, í minn- ingu um opinberun Krists, eða fyrstu f'ramkomu hans við skírn hans. Sú hátíð var því miklu fremur skírnarhátíð frelsarans, en fæðingar- hátíð, þótt sumir vildu get'a henni hina síðari merkingu. Margir ætla að dagsetningin, eða að minnsa kosti valið á þessum árstíma, standi í sambandi við heiðin hátiðahöld um áramótin. Etm aðrir setja dagsetninguna í samband við eina hátið Gyðinga. Um það og ýmsa jóiasiðu, sem sumir hverjir eiga efiaust heiðinn uppruna, kann að verða rætt næsta ár. RITSTJÓRI: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. Prentað 1 ísafoldar prentamiðju. Reykjavik. 1891.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.