Kirkjublaðið - 24.12.1894, Síða 6
226
er, notið fullrar jólagleði. Það er að vísu eríitt að ráða
þessa ráðgátu. En mannlegt hjarta er einatt lítt skiljan-
legt og fullt af ráðgátum og mótsögnum, sem enginn get-
ur leyst neraa Guð einn. Vjer getum og haft þá von, að
innst og dýpst í hjörtum allra manna sje einhver frelsis-
vonarneisti falinn. Og opt getur það verið, að þeir, sem
vjer kunnum að ætla kaldasta í kærleikanum, sjeu ein-
mitt heitastir allra, og að þeir, ekki síður en aðrir, held-
ur jafnvel fremur, sendi upp til Guðs brennandi bænir
fyrir hinum föllnu og týndu; og hvar, ef ekki í slikri
bæn, geta þeir fundið frið og gleði, sanna jólagleði?
En hinir framliðnu þá? Eða ef vjer heldur viljum
spyrja svo: hinir sáluhólpnu? Munu þeir ekki eins og
vjer eða raunar miklu tremur, hafa gleðileg jól? Reynd-
ar hugsum vjer oss ekki, að hinir framliðnu í Drottni
haldi sjerstakar hátiðir, því að í eilífðinni er enginn tíma-
munur; og hið eilífa líf er, að því leyti sem vjer þekkj-
um það af Guðs orði, óaflátanleg hátíð, eilíf jól. »Þar
allir tímar eru jól«, og allt eilíf jólagleði. Slík gleðileg
jól gefi Guð öllum af miskunn sinni.
En einnig oss, sem enn lifum, gefi Guð þegar hjer
í lífl gleðileg jól, hreina og sanna jólagleði. í skugga fá-
tæktarinnar, í blindu ellinnar, í dimmu sjúkleika, sorgar
og dauða, í myrkri syndar og villu og vantrúar, — al-
staðar ljómi birta Drottins og ljós hans gleðiboðskapar.
Hvervetna þar, sem einhver ótti ríkir, boði engill Drott-
ins þann fögnuð, sem veitast mun öllu fólki. í gegn um
skarkala heimsins, veraldarglauminn og hversdagsþysinn
hljómi hátt og skýrt sá boðskapur, að oss sje frelsari
fæddur, oss til tjmanlegrar og eilífrar jólagleði. Guði sje
lof fyrir gleðileg jól! Guði sje lof og dýrð fyrir hans gleðilega
boðskap! valdimar briem.
--------------
Jólasálmur.
Eptir Grundtvig.
Nú velkomnir englar enn á ný
frá uppheims gleðisölum,