Kirkjublaðið - 01.07.1895, Qupperneq 9
121
launa bískupi. Þar getur þá kirkjan ekkert fengið til
baka að rjettu lagi. Jeg hygg að fje það er kirkjan nú
hefir í jarðeignutn úr landssjóði og með sóknatekjum sje
henni nœgilegt og sómasamlegt, ef ríkið kostar presta-
skólann eða guðfræðingadeild við háskóla landsins.
Þetta verður sanngjarnast, því það er með öllu óviturlogt
að ríkið og kirkjan togi í sinn skækilinn hvort til að
hafa sem mest; nálega allir þegnar hins íslenzka lands-
ríkis eru í landskirkjunni, og allir játendur hinnar íslenzku
landskirkju eru í landsríkinu, svo allur fjárdráttur eins
frá öðru hlyti eingöngu að verða til að útarma þjóðina.
Eptir skilnaðinn heldur kirkjan að sjálfsögðu áfram
að vera ein heild, að minnsta kosti fyrst um sinn, unz
ágreiningur í trúarefnum kynni að sundra henni. Mcð
öðru móti er engin ástæða til að hún skiptist í deildir,
en komi upp smádeildir, hafa þær náttúrlega tilverurjett,
enda mun þeim þá gefast svo fje, að þær falli eigi niður,
En tilheyrandi lútersku kirkjunni verða þær þá ekki.
Eina yfirstjórn verður kirkjufjelagið að hafa, og kosta
hana sjálft fyrir tillög meðiima sinna. Skipulagi kirkj-
unnar ræður alþingi fyrst í stað meðan verið er að koma
skilnaðinum í kring, en eptir að hann er alveg ákominn,
eptir svo setn eitt eða tvö ár, ræður kirkjan alveg
sjálf fyrirkomulagi sínu. Til þess hefir hún kirkjuþing,
er hún sjálf verður að kosta, svo sem fríkirkjur erlendis
gjöra.
Hin lúterska kirkja í iandinu hefir að líkindum einn
sameiginlegan guðfræðingaskóla, og sýnist mjer öll sann-
girni mæia með því, að hún njóti góðs af hinutn fyrir-
hugaða háskóla, þannig að ríkið leggur til einhverja f'asta
upphæð á ári í stað stólseignanna, að vissum hluta.
Með þessu ætti kirkjan að geta kostað guðfræðingadeild
við háskólann. En kennarana ætti kirkjuþingið að vclja.
Að menn vilji hafa ólærða presta og sem ódýrasta nær
engri átt, Islenzk alþýða er eigi svo grunnhyggin.
hyrir uppgjafaprestum og prestsekkjum á ekkert tið
hugsa, því öll eptirlaun ætti fyrir löngu að vera afnumin,
en launa tnönnum svo vel meðan þeir vinna, að þeir geti
með lagi átt afgang tii elliáranna. Prcstekknasjóðinn