Kirkjublaðið - 02.09.1896, Blaðsíða 1
mánaðarrit
handa íslenzkri alþýðu.
RVÍK, SEPT., (B) 1896.
Sálmur.
Eptir Óskar II. Svíakonung.
Faðir, lít í líkn hjer niður,
lemstruð er mín sál þig biður;
jeg finn engan frið nje író !
Gef mjer auðmýkt í mitt hjarta,
efldu þar þinn kærleik bjarta;
hafi jeg þig, þá hef jeg nóg !
Jeg vil mína glæpsku gráta,
grátinn djúpt í hjarta játa,
að jeg gleymt hef, ástvin, þjer;
þinnar náðar þráfalt gleyminn
þjónað syndum, elskað heiminn,
sem var orðinn afguð mjer.
Villigötur gengið hef jeg,
gróðann hvaða fengið hef jeg
utan kvöl og angursneyð?
Flúinn burt er friður úr hjarta,
feigðar gegnum dalinn svarta
geng jeg einn þá ógna leið.
Fæst ei hjálp í hörmung nauða ?
Hlýzt þá engiu líkn í dauða?
Er á græðslu ekkert val ?