Kirkjublaðið - 02.09.1896, Page 8
168
Kristniboðið.
Eptir sjera Jóhannes L. L. Jóhannsson.
(Niðurl.) Þótt undarlegt sje, þá eru sumir menn í liinum gamal-
kristnu löndum óvinveittir kristniboðinu meðal heiðinna þjóða. Enskur
höfðingi sagði einu sinni í lávarðadeild parlamentsins að kristni-
boðið væri »jötunvaxinn óframkvæmanleiki og óheillaríkt heimsku-
fyrirtæki«, og aðrir sem eigi eru síður veraldloga sinnaðir hafa
kvartað undan því, að það kostaði um 3000 kr. að snúa einum
heiðingja til kristni. En þess ber að gæta að kristniboðiö er oss
lagt á hjarta sem sjálfsögð skylda eptir síðasta boði Krists sjálfs,
áður en hann yfirgaf þessa jörð, úr þeim orðum má ekkert draga;
og svo er það sem fer í þennan kostnað að eins er svarar x/g0o
parti af þjóðtekjum Englendinga; þessi upphæð er líka margfallt
minni, en það fje, sem almennt er eytt í tóbalc og áfenga drykki.
011 þessi skoðun á kristniboöinu er þar að auki fjarska ranglát,
mjög óguðleg og alveg hugsunarlaus, sem sýna má á marga vegu.
Yerið getur að verk Ouðs í andans, svo sem í náttúrunnar
heimi, fari opt hægt. Vatnsflóð, eldgos og aSrar stórbyltingar hafa
átt minni þátt í aS mynda jarðlögin, en hinn hægláti leirframburð-
ur ánna, vinna litlu marbendildýranna og annara sroákvikinda er
vjer tökum ekkert eptir. Þannig er einnig vöxtur kirkjunnar.
Vjer höfum feykimikið verk að vinna, þar sem allir kristnir menn
eru um 350 miljónir, en heiðingjainir nálægt 1000 miljónir og
MúhameSsmenn og OySingar kringum 160 miljónir. Nú hafa mót-
mælendur eitthvaö 3 þúsund tiúboða út um löndin og þessir menn
eiga aS prjedika fyrir hinum áðurtalda aragrúa á fleiri hundruS
tungumálum, 3 menn á hverja 1 miljón manna. Setjum svo að
Danaríki með sínum 2 miljónum væri alheiðiS og einir 6 menn út-
lendir og tíðum fyrirlitnir ætti að kristna þaS og auðvitaö fyrst
læra tungu innbúanna. Myndi það eigi vera heimskulegt aS
halda aS þeir gæti gjört þaS á augabragði 1
En einmitt fyrsta yfirlit mun sýna, hversu mikið hefir. verið
unnið, þrátt fyrir örðugleikana. Það er opt álitið að framför krist-
indómsins nú á dögum sje nálega engin í samanburði við hina fljótu
útbreiðslu hans á postulatímanum, en sú skoSun er rammskökk.
ÁriS 1890 skírðu trúboðar ensku hákirkjunnar einir 10,490
fullorðna menn. Getur þá nokkur ímyndaS sjer, að postularnir
allir til samans hafi skírt svona marga? ÞaS getur víst enginn.
Á miðöldunum virðist stundum sem kristniboðiö hafi gengið fljótt
fram í einstöku löndum, en það er aðgætandi, að þegar stjórnend-
ur landanna þá voru komnir inn í hinn fámenna flokk nýumventra