Kirkjublaðið - 01.11.1896, Blaðsíða 11
203
sama árið (1530), að þeir verði af öllum mætti að vaka
yfir því og verjast því, að hin kirkjulega og pólitíska
stjórn, sem að eðli sínu sjeu svo að greindar og gagn-
stæðar, grautist nu aptur saman.
I kjörfurstadæminu saxneska, sem eðlilega verður
fyrirmyndarlandið, skipaðist kirkiustjórnin undir lands-
drottni með þeim hætti, að árin 1527—28 fór fram kirkju-
vísitazía um landið, sem kunn er af siðbótarsögunni, voru
þeir Lúter og Melankton í skoðunarnefndinni, eptir þá
skoðun skipaði kjörfurstinn súperintendenta yfir hjeruðin
til að hafa gætur á kenningu, embættisrekstri og
hegðun prestanna, þeir koma í stað biskupanna í kat-
ólskum sið, og hefir það nafn haldizt í lúterskum lönd-
um Þýzkalands, og er eiginlega embættisnafn biskupanna
í Danaveldi,1 aptur munu Svíar aldrei hafa sleppt biskups-
nafninu. Þessi vísitazía í kjörfurstadæminu tók sig svo
upp aptur í viðlögum, og náði þá einnig til súperinten-
dentanna, kirkjuskoðunarmennirnir voru einnig yflr þá
skipaðir, og svo fór að úr skoðuninni varð standandi
nefnd, sem kirkjnstjórnarráð við hlið landsdrottins og
fjekk nafnið konsistóríum. Skipa þá nefnd eða það»ráð«
jafnan guðfræðingar (biskupar, háskólakennarar) og lög-
fræðingar. Þetta er fyrirkomulagið þann dag í dag í
lúterskum löndum Þýzkalands, nema hvað í hinum stærri
ríkjum hafa menn bæði undirkonsistóría í hverjum lands-
hluta, og svo eitt yfirkonsistóríum fyrir allt ríkið. Með
þessu fyrirkomulagi er reynt að halda í hugsjón siðbót-
arinnnar að blanda eigi saman andlegu og veraldlegu
valdi, sem vitanlega tekst eigi og allra sízt síðan þing-
bundin stjórn komst á í lönduuum, þar sem yfirkirkju-
ráðið víðast er skipað af kirkju og kennslumálaráðgjaf-
anum og lýtur honum, en hann aptur háður þinginu.
Þenna sögulega aðdraganda hefi jeg rakið til þess
að lesendurnir viti betur eptir en áður, hvað skilst við
»yflrkirkjuráðið« (yflrirkonsistóríum), sem hjer ræðir um
1 Á þessari öld hefir á Prússlandi verið tekið upp biskups-
nafnið í viðurkenningar og heiðursskyni við einstaka ágæta kenni-
rnenn líkt og Grundtvig gamli hlaut biskupsnafn. þótt aldrei hefði
hann embættið og Arni Helgason hjer hjá oss.