Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 1
Högberg; - J)etmsferingla
Stofnað 14. jan., 1888 Slofnuð 9. sept., 1886
78. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. JÚLÍ 1964 NÚMER 30
75 ára afmæli Islendingadagsins í Canada
Forsætisráðherrahjón Islands heiðursgestir
íslenzk guðsþjónusta
fer fram í Fyrstu lútersku kirkju í tilefni af heimsókn
forsætisráðherra íslands á sunnudagskvöldið 2. ágúst kl. 7.
Sóknarprestur prédikar. Forseti Þjóðræknisfélagsins kynnir
forsætisráðherrann, sem svo flytur ávarp.
Að lokinni guðsþjónustunni fer fram kaffidrykkja í sam-
komusal kirkjunnar. Gefst fólki þá tækifæri að kynnast
hinum tignu geslum og spjalla saman. Allir eru velkomnir.
Hon. Errick F. Willis
flyiur „Minni Canada".
Dr. Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra íslands
flytur aðalræðu dagsins,
SAGA ÍSLENDINGADAGSINS
í íslendingadagsblaði Lög-
berg-Heimskringlu sem gefið
var út í fyrra sumar var
fyrsta íslendingadeginum lýst
all ítarlega, en hann var hald-
in í Milwaukee, Winsconsin
2. ágúst 1874 í tilefni þess að
þá voru liðin eitt þúsund ár
frá upphafi íslandsbyggðar.
Á þeim árum mátti þessi borg
kallast höfuðstaður íslend-
inga vestan hafs, enda voru
þar samankomnir ýmissir
þeirra manna er síðar gerð-
ust aðal-forystumenn meðal
Vestur-Islendinga: séra Jón
Dr. S. E. Björnsson,
Flytur frumort kvæði.
Bjarnason, Jón Ólafsson
skáld og ritstjóri, Ólafur Ól-
afsson frá Espihóli, Friðjón
Friðriksson, séra Páll Thor-
láksson, Þorlákur Jónsson
frá Stórutjörnum og Jón
Thorðarson. Fluttu þeir flest-
ir ræðu á þessari þjóðhátíð
og hefir löngum verið vitnað
í þær, en þó sérstaklega í
prédikun séra Jóns. Frú
Lára kona séra Jóns, æfði og
stýrði söngnum, vakti þessi
þjóðminningahátíð mikla at-
hygli.
Næstu árin eftir 1874 voru
Islendingar í sífelldum ný-
lenduleitum, byggðamyndun-
um og fluttningi og mynduð-
ust íslenzkar nýlendur á
þessum stöðum á næstu 16
árum: Nýja ísland, Minne-
sota, Norður Dakota, Winni-
peg, Argyle, Selkirk, Þing-
vallanýlendan í Saskatchewan,
Alplavatnsnýlendan og Shoal
Lake og fl.
Fyrsti íslendingadagurinn
í Kanada
Þegar fastabyggðir höfðu
myndast fóru að heyrast
raddir um að æskilegt væri
að íslendingar tækju upp sér-
stakan þjóðminningadag eins
og aðrir þjóðflokkar hér í
landi; mörgum var minni-
stæð þjóðhátíðin í Milwaukee.
Árið 1890 var Winnipeg-
borg orðin höfuðstaður ís-
lendinga í Vesturheimi. Borg-
in var í örum vexti. Árið 1888
voru íbúar hennar um 21
þúsund (nú er tala Metro-
politan Winnipeg 500 þúsund).
Til borgarinnar hafði safnast
fjöldi íslendinga, beint frá Is-
landi og úr íslenzku byggð-
unum og höfðu þeir fjörugt
félagslíf sín á meðal. Þeir
höfðu stofnað íslendingafélag
(síðar nefnt Framfarfélag),
söfnuði, Kvenfélag, Söngfélag,
Bindindisfélag og fl. Þeir
gáfu og út tvö vikublöð
Heimskringlu og Lögberg auk
þess Sameininguna.
Meðritstjóri Heimskringlu,
Eggert Jóhannsson hvatti
Winnipeg Islendinga í blaði
sínu 1888 til að efna til þjóð-
hátíðar. Ekkert varð þó úr
framkvæmdum. 4. júní 1890
skrifaði Jón Ólafsson skáld,
þá nýorðinn meðritstjóri Lög-
bergs, samskonar grein.
Höfðu þá menn hugsað málið
og fékk það nú byr undir
báða vængji og var nefnd
kosin til að undirbúa hátíða-
höldin.
1 nefndinni voru ritstjórar
vikublaðanna og Sameining-
arinnar og menn frá öllum
íslenzku félögunum í bænum:
Einar Hjörleifsson (Kvaran)
Jón Ólafsson
Eggert Jóhannsson
Gestur Pálsson
Sigurður Einarsson
Jón Blöndal
Sigtryggur Jónasson
séra Jón Bjarnason
Wilhelm H. Paulson
Jóhannes Gottskáldsson
Signý Pálsdóttir Olson
Eleónóra Júlíus
Halldór G. Oddsson
Hon. George Johnson, M.D.
Fulllrúi Manitobastjórnar.
Mr. S. Aleck Thorarinson,
L.L.B. Forseti dagsins.
Guðjón Jónsson.
Forseti var kjörinn Wilhelm
H. Paulson.
Skrúðganga
Klukkan hálf tíu um morg-
unin 2. ágúst 1890 kom fólkið
saman á balanum sunnan við
Fyrstu lútersku kirkjuna (á
strætahornunum) Ross og
Nena (Sherbrook). Var þar
skipað í fylkingar og skrúð-
ganga hafin kl. 10.30 Fjörtíu
leiguvagnar, allir þeir leigu-
vagnar sem til voru í bænum,
fluttu konur og börn, en
reyndust þeir langt of fáir
fyrir þann mikla fjölda, svo
að margar konur urðu að
ganga. Á undan undan fólk-
inu gekk hornleikara flokkur
hermannaskólans blásandi
fyrir liði.
Prócessian hélt austur Ross
stræti suður Isabel og austur
Notre Dame, niður á Portage
og ofan á Main St. og austur
Rupert St. til Victoria Gard-
ens.
Framhald á bls. 5.
Hon. Wm. M. Benedickson,
Fulltrúi Canadastjórnar.