Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 26
26
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLI 1964
og vakti það forvitni okkar
að sjá hvað það væri.
Eftir að Indíánarnir höfðu
affermt, búið um sig og
kveikt sína vanalegu mats-
elda, réðum við fjölskyldan á
Víðivöllum, foreldrar mínir
og við Fúsi bróðir minn, þá á
unga aldri, að róa yfir fljótið
og heimsækja þá. Þetta var
siður, þegar Indíánar komu, að
heimsækja þá og hafa við þá
einhver viðskifti.
Okkur þótti fagurt um að
lítast þarna. Allt bar vott um
vellíðan og velmegun. Alls-
konar skrautklæði frá Hudson
Bay Co. voru viðruð þar á
stögum. Hópur kvenna og ung-
linga var að verki, að þvo og
skafa plönturætur sem við
ekki þektum. Stór hrúga af
þeim var breidd út til þerris
á einni Hudson Bay ábreið-
unni.
Móðir mín var sæmilega
enskumælandi eftir þriggja
missera veru í Gravinhurst,
Ontario og einn Indíánana,
stór og föngulegur karl, gat
„bjargað sér“ á enskri tungu.
Þetta kom sér mjög vel. Að-
spurður sagði hann að rót
þessi væri grafin upp úr
blautu mýrlendi og að
hreinsuðu og þurrkuðu þessu,
sem við sæum hér, mundi
leiðangurinn halda áfram með
það til Crossing og selja það.
Annars var Hudson Bay búð-
in í Stonefort (Lower Fort
Garry) aðal verzlunarstaður
þeirra. Þangað fluttu þeir grá-
vöru sína á vetrum.
Eftir upplýsingum frá áður
áminstum Indíána, öðrum
síðar, var þessi rót aðal lækn-
ingalyf Cree Indíána. (Rót
undan Vatnalilju (water lily)
höfðu þeir til sáralækninga,
skáru hana í stykki og lögðu
þau við sárin). Þeir kunnu
engin nöfn á líffærum, en köll-
uðu það sem við kölluðum inn-
vortissjúkdóma: „Sick inside“,
og við þá átti rótin sem þetta
bréf fjallar um. Undir „Sick
inside“ heyrðu náttúrlega
blöðru-, nýrna- og magasjúk-
dómar og líklega lifrarsjúk-
dómar.
Aðferðin að lækna þá var
öll hin sama: að skafa rótina
niður í duft og éta hana,
sjóða hana og drekka af
henni soðið, tyggja hana og
renna munnvatninu niður.
Sama aðferðin var höfð við
lungnaveiki, kvef og háls-
veiki, að því viðbættu, að
brytja niður rótina, gera úr
henni heitan bakstur og
leggja á veika staðinn. Við
tannpínu var ráðlagt að láta
rótarduft liggja við tönnina.
Rótin var talin örfa blóðrás,
auka skegg og hárvöxt og
gefa góðan hárgljáa.
Með vinsemd og virðingu,
Guttormur J. Guttormsson.
Rót sú sem hér um ræðir er
samkvæmt skilgreiningu
grasafræðinga Manitobahá-
skóla hið svonefnda „Blue
Flag".
Um lækningarmátt plönt-
unnar hfeir Dr. Ross Mitchel
ritað í bók sinni Medicine in
Manitoba, Winnipeg 1954,
bls. 4. — Ritst.
Compliments of . . .
RUDD'S
TOM-BOY STORE
GIMLi'S FOOD CENTRE
WHERE QUALITY AND SATISFACTION
ARE GUARANTEED
BÓNORÐ MENDELSOHNS
Moses Mendelsohn, frægur
þýzkur heimspekingur, Gyð-
ingur að kyni, var faðir tón-
skáldsins Mendelsohns. Moses
var mjög ófríður maður og
krypplingur.
Á ferðum sínum heimsótti
hann eitt sinn Gugenheim í
Hamborg, því þeir voru áður
málkunnugir. Gugenheim
bauð honum að tala við dótt-
ur sína. „Hún hefur gaman
af að sjá yður, því hún hefur
heyrt yðar getið.“
Mendelsohn finnur nú dótt-
ur hans. Daginn eftir kemur
hann aftur að máli við hús-
bóndann. Þeir voru báðir fá-
látir, en Mendelsohn minnist
loks á dóttur hans og hælir
henni fyrir, að hún sé skyn-
söm stúlka og bjóði góðan
þokka.
„Já, heiðraði rabbi; á ég að
segja yður sannleikann?"
„Já, sjálfsagt."
„Þér eruð heimspekingur og
látið yður ekki bregða við það.
Hún sagðist hafa orðið hrædd,
þegar hún sá yður.“
„Af því ég hef kryppu á
bakinu?“
„Auðvitað."
„Eg átti von á því,“ sagði
Mendelsohn, „en ég ætla nú
samt að kveðja hana.“
Hann fór nú til stúlkunnar
og settist hjá henni. Þau töl-
uðu um alla heima og geima,
en stúlkan leit aldrei á Men-
delsohn.
Loks sagði hún: „Haldið
þér að það sé fyrirfram á-
kveðið, hverjum maður á að
giftast?“
„Það held ég víst,“ sagði
hann „og það er skrýtin saga,
sem ég skal segja yður. Eftir
því sem stendur í Talmud
(trúarbók Gyðinga), er það á-
kveðið, þegar barn fæðist,
hvaða mann eða konu það á
að fá í heiminum. Þegar ég
fæddist, var ákveðið, hver
konan mín ætti að vera, en
hún átti að vera ófríð með
stóran herðakistil eða kryppu
á bakinu.
„Guð minn góður, sagði ég
þá, „stúlkurnar eiga að vera
fallegar. Láttu mig hafa
kryppuna, en láttu konuna
mína vera vel vaxna.“
Þegar Mendelsohn sagði
þetta, lagði stúlkan hendum-
ar um hálsinn á honum. Hún
varð síðan kona hans, og þau
unnust vel og lengi og áttu
I mannvænleg börn.
CONGRATULATIONS!
MAPLE LEAF CREAMERY
LUNDAR, MAN.
PHONE 762-5241
ICELANDIC...
your best sky-buy to all
SCAIMDIIMAVIA!
OF ANY SCHEOULED AIRLINE
Thrift Season Fares . . . effective August 4th . . . are even
lower! Save wherever you go... pay far less than jet Economy
fares to key cities of Scandinavia and other European coun-
tries. Take New York/Oslo round-trip for example. Together
a husband and wife can SAVE a total of $174.80 over round-
trip jet Economy fares.
Remember, lcelandic’s fares are always the lowest at any-
time of the year. . . one way or all-year round trips. You fly
in roomy comfort on dependable, long-range DC-6Bs. Com-
plimentary meals, drinks, snacks. For full details call your
travel agent now.
FROM NEW YORK TO: ICELAND . ENGLAND . SCOTLAND • HOLLAND
NORWAY • SWEDEN • DENMARK • FINLAND . LUXEMBOURG
Usethese /celandic Gateways—andsave—to all of Europe andbeyond
The PIONEER of Low Fares fo Europe
ICELANDIC
AIRLINES
610 Fifth Avenue (RockefellerCenter) New York 20 • PL 7-8585
NEW YORK • CHICAGO . SAN FRANCISCO
WRITE FOR FOLDER XI