Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 28
28
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLl 1964
Raunar er vitað, að uglum
nægir tíundi til hundraðasti
hluti af því ljósmagni, sem
við mennirnir þörfnumst til
að sjá hlutina.
Hjá öllum spendýrum, að
undanteknum manninum og
öpum, er ilmurinn aðalskiln-
ingarvitið. — Þetta getum við
auðveldlega gengið úr skugga
um, hvað hundum viðvíkur.
Ef við reynum að beina at-
hygli hunds að kanínu, sem
situr undan vindi við hann,
komumst við fljótlega að því,
að hundUrinn verður kanín-
unnar alls ekki var, sér hana
ekki. Fyrst þegar kanínan
hleypur burt, má vera að
hundurinn sjái hana. Og hann
hleypur ekki á eftir henni
nema hann finni lyktina af
henni. Hundar lifa í heimi
lyktarinnar.
Þar sem fíllinn er eitthvert
stærsta dýr veraldar, er ekki
óskynsamlegt að láta sér detta
í hug, að hann hafi stærri
augu en til dæmis hesturinn.
En svo er samt ekki, hestur-
inn hefur vinninginn. En
stærstu augun hefur hvalur-
inn, og menn hafa tekið eftir,
að hægra auga hans er stærra
en það vinstra.
Kanínan og hérin hafa
óvenjuleg augu að því leyti,
að dýr þessi sjá jafn vel aftur
fyrir sig og fram án þess að
hreyfa höfuðið. Þetta kemur
sér mjög vel fyrir dýrin, þeg-
ar þau halda sig á stöðum þar
sem víðsýnt er.
Flest dýr eru litblind, enda
þótt margir haldi annað,
einkanlega á þetta við um
ketti, hunda, kvikfé, naut-
pening og hesta. Þessvegna er
enginn fótur fyrir því, að
naut æsist við að sjá rauðan
lit. — Ef boli er í vígahug,
setur hann undir sig hausinn,
hvort sem rauður litur er
framundan eða ekki!
BEST WISHES
SARBIT'S
SUPERMARKET
SELKIRK MAN.
ALÚÐAR ÁRNAÐARÓSKIR
til íslendinga á sjötugasta og fimmta
þióðminningardegi þeirra á Gimli
3. ágúst 1964.
DR. G. PAULSON
Viðtalsstaðir:
LUNDAR og ERIKSDALE
Manitoba
COMPLIMENTS OF
LUNDAR DRU6S
J. E. GRAY, Pharmacist
PRESCRIPTIONS, DRUGS, COSMETICS
COMPLETE VETERINARY SUPPLIES
GIFTWARES, STATIONERY, CONFECTIONERY
PHONE 762-5431 LUNDAR, MAN.
HUGHEILAR HAMINGJUÓSKIR
lil íslendinga á þ j óðminningardaginn
LEIFUR PALSSON
— LICENSED AUCTIONEER —
Bu>. Phone: 762-5261 Res. Phone: 762-5439 LUNDAR, MAN.
WITH COMPLIMENTS OF
SKY CHIEF SERVICE
CHARLIE WEIDEAAAN FRITZ GIRMAN
Phone 783-1142
Sergent and Bonning Winnipeg 3, Man.
HAMINGJUÓSKIR ...
til íslendinga í tilefni af 75. þjóðminningardegi
þeirra á Gimli, Man., 3. ágúst 1964.
Arlingtom Pharmacy
Prescriptions
SARGENT ond ARLINGTON SUniet 3-5550
CONGRATULATIONS
and best wishes to our many lcelandic Friends
on their annual Celebration at Gimli.
Thorsteinn and Runa Palsson & Son
LUNDAR, MANITOBA
Phone 762-5639
William and Sigrun Cruise & Sons
CHATFIELD, MANITOBA
Attend our second Hereford Production Sole. Held ot Lundar Memoriol
Areno Oct. 29, 1964. Fifty Registered Herefords—Bulls and Females
to be sold.
WINNIPEG 1890
Eg stend ekki upp, af því mér finnist eg fær um,
að fara með nokkuð sem þið munuð kæra um,
því fyrst kann eg lítið í samkvæmi að segja
og svo hef eg tekið það í mig að þegja —
En bræður, systur og börnin góð,
nú bið eg að gefa mér mínútu hljóð,
því svolítinn pistil eg samið hefi,
svipaðan Pálusar Korintu bréfi.
Það er að segja efnið er annað,
en andinn er líkur, það gæti eg sannað.
Vér vitum það allir að Winnipegborg
er völundarsmíði með skrautbúin torg
og kastala byggingar hriklega háar,
er hvarvetna gnæfa við loftsvalir bláar.
Þar kotungar búa í háreystum höllum,
þeir hýrast ei lengur með kýr undir pöllum.
Þar er kapella Bryces svo himinhá
að hræfugla sundlar toppinum á,
þar er guðsorðið flutt af gufukrafti,
svo glymur undir í hverjum rafti.
Þá er Lútherska kirkjan í landnorður átt
þar er leikið á orgel og sungið svo hátt,
að helmingur manna fær hlustarverk,
því hljóðbáran verður svo afar sterk .
Þar er 5 centa drífan eins koldimm og kvöld
og kvennfólkið dæi ef það hefði ekki skjöld
að bera af sér umslög með auðæfi full
því alt er á fluginu, silfur og gull. —
Þá er frelsisherinn með fylktu liði
sem fjandann aldrei lætur í friði,
þeir marséra um strætin með bjöllur og bumbur,
með blikkdiska, hrútshorn og lúðra og trumbur
og sveinar og meyjar í löngum lestum
lofsyngja drottni með hrossabrestum —
• Bluenose Fishing Nets and Twines
• Trap Nets
• Leads and Floats
• Float Varnish
• Kop-R-Seal Net Preservative
• Netting Needles
• lce Jiggers
• lce Chisels and Needle Bars
• Lead Openers
• Rubber Clothing
• Rope
• lce Tools
• Knives
• Canvass and Wide Duck
• Boat Paint
• Fiberglass Reinforced Plastic Materials
Largest Distributors of Commercial Fishing
Equipment in Western Canada
Park-Hannesson Ltd.
55 Arthur Street WINNIPEG 2, MAN.
10228-98th Street EDMONTON. ALTA.