Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Side 16
16
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLÍ 1964
FRÆG ÁSTARSAGA
Ástin hefur hýrar brár
en hendur sundurleitar;
ein er mjúk, en önnur sár,
en þó báðar heilar.
Þannig skilgreinir Sigurður
Breiðfjörð ástina í lítilli stöku
af meistaralegri snilld.
Þó að hugtakið sé eitt, er
ástin samt sem áður einn
margslungnasti eðlisþáttur
mannlífsins. í innsta kjarna
sínum er sönn ást allt í senn
eitt og hið sama og um leið
óendanlega breytileg, eins og
dansandi blæbrigði í gullnum
skýjum.
Eins og fljótið, sem liðast
um síbreytilegt landslag á
leið sinni til sjávar, þannig
liggur farvegur ástarinnar
eins og rauður þráður gegn-
um sögu mannverunnar allt
frá hennar fyrstu dögum.
Hún hefur framar öllu öðru
örlagabræði manneskjunnar
í hendi sér og slöngvar henni
ýmist upp á sólroðna tinda
æðstu hamingju eða steypir
henni niður í neðstu undir-
djúp dýpstu harma.
Oft er ástarsaga mannsins
í raun og veru ævisaga hans
um leið, af því að ástin hefur
orðið ráðandi þáttur í örlög-
um hans.
Hvarvetna sjáum við ástina
birtast, — við sjáum hana
blómstra og deyja. Og ef til
vill höfum við ekki verið þar
einungis áhorfendur, heldur
lifað atburðina sjálf á miðju
leiksviðinu.
— Já, þannig er mannlífið
á vorri jörð, — eins og risa-
vaxin ástarsaga með milljón-
ir og aftur milljónir kapítula,
án þess þó að vera steyptir í
sama mót.
Einn segir frá hinni fórn-
fúsu ást, en annar frá villtustu
afbrýði. Þeir lýsa bitrustu
sálarkvölum og yndislegustu
munarblíðu. Enn aðrir fjalla
um óslökkvandi ást allt til
dauðans, um hamingju og
vansælu, um hina endur-
goldnu ást og einnig hina,
„sem enga kann á móti“. Hlið
við hlið á blöðum þessarar
voldugu sögu standa gleðin og
sorgin, hamingjan og þján-
ingin.
Það verður hverjum að list
sem hann leikur.
Þegar á að fara betur en
vel, fer oft ver en illa.
Compliments of
VIKING MOTORS LTD.
CHEVROLET — OLDSMOBILE
CHEV. TRUCKS
SALES & SERVICE
Phone 76-342
Arborg, Mon.
Compliments of . . .
SELKIRK GARAGE LTD.
SELKIRK
CHEV — OLDS Cars - Trucks
482-3140 452-1085
SELKIRK WINNIPEG
G. SIGURDSON, Pres.
JHapptj
^Jhtcyarit
FOR
HEARTY GERMAN
FOOD
. J
FOR
GEMUTLICHKEIT
GREETINGS!
To Our lcelandic Friends on their
75th Anniversary Celebrations
715 ELLICE AVE.
WINNIPEG, MAN.
AMOR OG PSYKE
Ein frægasta ástarsaga allra
tíma er hin forna goðssögn
um Amor (Eros) og Psyke, því
að hún segir á fagran og hríf-
andi hátt frá því valdi, sem
sjálfur ástarguðinn hefur yfir
sálum mannanna, en orðið
psyke þýðir sál.
Órakles gefur þá fyrirskip-
un, að hin fagra kóngsdóttir,
Psyke, skuli færð í líkklæðum
upp á hátt fjall til þess að
bíða dauða síns.
Á brún gapandi hengiflugs-
ins á fjallinu er hún skilin
eftir ein og yfirgefin. En
Amor hefur fellt brennandi
ástarhug til Psyke, og Zefyr,
hinn mildi vestanvindur, flyt-
ur hana á dýrðlegan stað til
glæsilegra hallarsala Amors.
Ósýnilegir andar uppfylla
allar hennar óskir þarna í
höllinni, og sjálfur Amor
veitir henni ást sína í ríkum
mæli, þótt hann sé einnig ó-
sýnilegur sjónum hennar. En
hann varar hana stranglega
við því að grennslast eftir því
hver hann sé.
Samkvæmt ósk hennar fær
Psyke systur sínar í höllina
til sín. Þær fyllast öfundsýki,
þegar þær sjá, hve systir
þeirra er hamingjusöm, og
telja henni trú um, að elsk-
hugi hennar sé í raun og veru
hið ægilegasta skrímsli.
Að lokum fá þær lokkað
hana til að brjóta bann Am-
ors.
Nótt eina fer hún að hvílu
hans með logandi lampa í
annarri hendi en brugðinn
langhníf í hinni. Þegar hún
lýtur yfir hvíluna, sér hún,
að þar hvílir ekki ógurlegt
skrímsli, heldur sjálfur ástar-
guðinn fagri.
1 sama bili fellur hvítur
olíudropi frá lampanum og
vekur Amor. Hann sér að
Psyke hefur brotið bann hans,
og í reiði sinni yfirgefur
hann kóngsdótturina.
Psyke ráfar nú í örvænt-
ingu sinni um jörðina í leit að
Amor og að lokum hrópar hún
á gyðjuna Afródíte og biður
hana um hjálp og náð. Gyðj-
an leggur fyrir hana að leysa
margar og erfiðar þrautir.
Psyke tekst að ljúka þeim
öllum af því að Amor, sem
elskar hana stöðugt, sendir
henni hjálp og ráð.
Sú er síðasta eldraunin, að
hún skal fara niður í undir-
djúpin og sækja öskju með
fegrunarlyfjum. Þessa þraut
leysir hún einnig af hendi,
þrátt fyrir margar og ægi-
legar hættur er urðu á leið
hennar.
En þegar hún kemur loks
aftur upp til jarðarinnar,
verður hún gripin óseðjandi
forvitni konunnar. Hún getur
ekki staðizt þá freistingu að
opna öskjuna með fegrunar-
lyfjunum frá undirdjúpunum.
En í sama bili stígur kæfandi
reykjareimur upp úr öskjunni,
og Psyke fellur meðvitundar-
laus til jarðar.
Amor vekur þó ástmey sína
skjótt til lífsins aftur, og síð-
an verður Psyke eiginkona
Amors og er tekin í tölu guð-
anna.
Goðsögnin um Amor og
Psyke hefur allt frá grárri
forneskju verið sígilt yrkis-
efni skáldanna, og málarar og
myndhöggvarar hafa einnig
verið óþreytandi að túlka
þessa fornu sögn í verkum
sínum t. d. Canova og Thor-
valdsen.
Þá má einnig finna grunn-
tón hennar með margvísleg-
um blæbrigðum í fjölda þjóð-
sagna um víða veröld.
Það er þyngst að bera raun-
irnar einn.
Það er galli á göfugu þingi.
Compliments of . . .
PRUDENS
THE HOUSE OF BEAUTY
Cold Waves a Specialty
Phone 482-4524
373 MAIN STREET
SELKIRK MAN.
"The Bay" extends Best Wishes to
the lcelandic People of Canada on
the occasion of their 75th Anniver-
sary Celebration.
We sincerely believe the future
holds the kind of resourceful and
energetic prosperity so character-
istic of your colorful past.
Snít5mtíT3öii (Lmnpmttt.
INCORPORATED 2?? MAY 1670.