Lögberg-Heimskringla - 23.07.1970, Blaðsíða 9
Compliments of . . . Jo - Ann (B&auhf. ShopifisL 705 Sargent Ave. Lögberg -1 EIeimskringla Compliments of . . . Jo - Ann (Bomdif. ShopfiiL 705 Sargent Ave.
Specializing in all types of Beauty Culture Phone 783-6475 • Specializing in all types of Beauty Culture Phone 783-6475
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. JÚLI 1970 9
DR. RICHARD BECK:
íslenzkir landnemar og
aldarafmæli Manitobafylkis
Ræða fluit á Frónsmóiinu í Winnipeg 26. febrúar 1970
Eins og ykkur, tilheyrendum mínum, er kunnugt, er
yfirstandandi ár mikið merkisár í sögu Manitobafylkis. Á
þessu ári er aldarafmæli þess söguríka atburðar, þegar
Manitobafylki gekk í fylkjasamband Canada. Verður þeirra
tímamóta, eins og vera ber, minnst með margvíslegum
hátíðahöldum. Oss íslendingum hér í álfu er það sérstakt
fagnaðarefni, að aðalumsjón með þeim hátíðahöldum er í
höndrnn eins hins mætasta njanns í vorum hópi, séra Philips
M. Péturssonar, virðulegs menningarmálaráðherra Manitoba-
fylkis, er sæti átti hátt á þriðja áratug í stjómarnefnd Þjóð-
ræknisféiagsins og skipaði forsetasessinn í 11 ár. Óþarft er
að fjölyrða um það, hverja sæmd vér félagssystkini hans
teljum oss að því, að eiga hann í þeim virðingarsessi, er
hann nú skipar í fylkisstjórninni.
Og þegar í minni er borið, hve víða og vel íslendingar
hafa á þeirri öld, sem hér um ræðir, komið við sögu Mani-
tobafylkis, þá fer fjarri því, að það séu duttlungar örlag-
anna, heldur milku fremur, í ríkum mæli réttlæti í rás við-
burðanna að einn af afkomendum íslenzkra fmmherja hefir
hlötið það veglega hlutverk að hafa með höndum yfirum-
sjón með hátíðahöldunum á umræddu aldarafmæli fylkisins.
Yfirstandandi ár er einnig mikið merkisár í sögu ís-
lendinga í Manitoba, og jafnframt í sögu þeirra 1 Canada.
Síðasta föstudag í sumri, 22. október 1875, stigu íslenzkir
landnemar fyrst á strönd Nýja íslands. Á komandi hausti
era því 95 ár liðin síðan sá afdrifaríki atburður gerðist.
En árið 1875 var hið mesta merkisár í sögu íslendinga
í Vesturheimi í miklu víðtækari skilningi. Um það fer
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson rithöfundur eftirfaramdi orðum í
hinni merkilegu ritgerð sinni „Sporin frá 1875“ (Tímaril
Þjóðræknisfélagsins 1950):
„Árið 1875 markar gleggstu, dýpstu, og fyrstu framtíðar
sporim í nýlendumyndun íslendinga vestan hafs. Það ár
gerðu þeir fjórar nýlendur að bækistöð sinni: Markland í
Nýja Skotlandi í Canada, Minneota í Minnesotaríki í
Bandaríkjunum, Winnipeg í Manitobafylki í Canada og Nýja
ísland, fimmtíu enskum mílum norður af Winnipeg, og er
nú í sama fylki, en var fyrrum talið Keewatinhéraðsins.“
Vissulega er því margs að minnast og mikið að þakka,
er vér íslendingar hér vestan hafs göngum á sjónarhól og
rennum augum yfir farinn veg til hins mikla landnámsárs
1875. Skal þó horfið aftur að landnámi íslendinga í Nýja
íslandi, sem er um margt hin einstæðasta og söguríkasta
nýbyggð Íslendinga í Vesturheimi.
With the Compliments of . . .
SWEDISH CANADIAN SALES
TOOLS
• Highest Quality • Largest Selection
• Lowest Prices
277 Rupert Ave.
Winnipeg Nils Hammarstrand, Mgr. 943-0485
HUGHEILAR HAMINGJUÓSKIR
til íslendinga á þjóðminningardaginn
LEIFUR PALSSON
— LICENSED AUCTIONEER —
Bus. Phone: 762-5261 LUNDAR, MAN.
Compliments of . . .
LUNDAR MEAT MARKET
LEIFUR PALSSON, Prop.
Quick Freezing - Meat Processing - Custom Curing
Bus. Phone: 762-5261 Res. Phone 762-5439
LUNDAR
MANITOBA
Saga íslenzkra landnema
vestan hafs er hvort tveggja
í senn glæsileg og örlaga-
þrungin; einnig er hún ævin-
týrarík sagan sú, þótt hún sé
jafnframt rituð letri tára og
hjartasorga. Upp af sæði ó-
teljandi svitadropa landnem-
anna spratt framtíðargróður-
inn. Og hvergi háðu íslenzkir
frumherjar vestan hafs eins
raunaþunga og harða baráttu
og í Nýja íslandi, og jafnsatt
er þá hitt, að hvergi hafa ís-
lenzkir landnemar hér í álfu
gengið hetjulegar á hólm við
þá örðugleika, sem þeir áttu
við að gl'íma á fyrstu frum-
byggjaárum sínum, né held-
ur unnið eins glæsilegan sig-
ur að lokum. Hér verður sú
hjartnæma baráttu saga eigi
rakin, þótt verðugt væri, en
vísað til hinna mörgu rita og
ritgerða um hana á íslenzku
og ensku. Á það eitt skal þó
minnt, að hvergi er sú saga
sögð á áhrifameiri eða eftir-
minnilegri hátt en í kvæða-
flokki Guttorrns J. Guttorms-
sonar, Jóni Auslfirðingi, og í
hinu alkunna snilldarkvæði
hans „Sandy Bar“, en þar
fara saman, eins og ég hefi
sagt annars staðar, mikið and-
ríki, tilfinningadýpt, mynda-
gnótt og leikandi rímsnilld.
Ég fer hér aðeins með eitt
erindi þessi andríka og mynd-
auðuga kvæðis, erindið, þar
sem skáldið minnir oss á
skuldina m i k 1 u við frum-
byggjana á þeim slóðum:
Heimanfarar fyrri tíða
fluttust hingað til að líða,
sigurlaust að lifa, stríða,
leggja í sölur heilsufar,
falla, en þrá að því 'að stefna
þetta heit að fullu efna:
Meginbraut að marki ryðja
merkta út frá Sandy Bar.
Braut til sigurs rakleitt,
rétta
ryðja út frá Sandy Bar.
Sagan sýnir og sannar, að
þeir efndu vel það heit sitt,
landnemarnir íslenzku í Nýja
Íslandi, og Skal nú dregin at-
hygli að nokkrum megin at-
burðum og afrekum í iand-
námssögu þeirra.
Er þess þá fyrst að geta,
sem einstæðast er, og ber
vitni bæði rótgrónum sjálf-
stæðisanda íslendinga og
ríkum skipulagshæfileikum
þeirra, en það er sú staðreynd,
að í Nýja Islandi settu is-
lenzkir landnemar í rauninni
á stofn sitt eigið „ríki í rík-
inu“,.og réðu þar ríkjum und-
ir eigin stjómarlögum á ann-
an áratug. Dr. Björn B. Jóns-
son lýsti þessu einstæða fyrir-
brigði ágætlega í eftirfarandi
kafla úr mjög athyglisverðri
ræðu, sem hann flutti fyrir
mörgum árum (Veslan um haf
1930):
„Þegar íslendingar námu
vesturströnd Winnipegsvatns
sunnanverða, var landið
ómælt og að mestu leyti fyrir
utan lög og dóm. Svo langt
norður náði Manitobafylki þá
ékki. Landið nefndist District
of Keewatin og var háð yfir-
stjóminni í Kanada einni.
Þegar hinn f y r s t a vetur
mældu Islendingar sjálfir
landið og skiftu því í bújarð-
ir eftir lögum þeim, sem um
það gilda hér í álfu. Hinn
næsta vetur, 1877, gerðust þau
tíðindi, er ég hygg einsdæmi
vera munu í nýbyggðum
Vesturheims. Nýlendulýður
Framhald á bls. 10.
i . "• * i
;íi ' íSi;:: -::
BARDAl
funeral home
843 Sherbrook Street, Phone 774-7474
President: NJALL O. BARDAL, Sr.
DIRECTORS: Neil O. Bardal, Jr. and David E. Pritchard