Alþýðublaðið - 13.10.1960, Blaðsíða 2
2S3tstJórar: GísTl J. Ástþórsscn (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rlt-
istjómar: Siuvaldi Hjilisairsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjórl:
iBjörgvin GuÖmundsson. — Sírnar: 14 900 — 14 902 — 14 803. Auglýsingasíw.: *
'14 906. — A'ðsetur: Aibýðuhúsi'ð. — Prentsmiðja AlþýSubiaðsins. Hverfis-
;gata 8—10. — Askriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausas&u kr. 3,00 eint.
^tgefandi: Aljþýðuflokkurirnx. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartan.sson.
Gjaldeyríssfaban og
sp arífjármyn dunin
UPPLÝSINGAR viðskiptamálaráðherra um
j gjaldeyrisstöðuna munu vekja-hina mestu athygli.
i Gndanfarið hafa blöð stjórnarandstöðunnar hald
1 Þvi ham, að ríkisstjórnin væri nú búin að sóa
j ,?eyðsluláni” því, er Hún hafi fengið hjá Alþjóða
í gjaldeyrissjóðnum og Evrópusjóðnum. Hafa Þjóð
I viljinn og Tíminn verið óspar á að mála ástandið
j í gjaldeyrismálunum svart og sagt, að nú stæði
j ríkisstjórnin uppi með tvær hendur tómar, þar eð
j hún hefði sóað yfirdráttarheimildinni í neyzluvör
ur. En samkvæmt upplýsingum viðskiptamálaráð
! herra, hefur ALLT, sem notað hefur verið af yfir
t dráttarheimildinni síðan efnahagsráðstafanirnar
k voru gerðar, farið til þess að greiða yfirdráttar
1 skuldir bankanna erlendis og til að auka gjaldeyr
j isinnstæður þeirra. Hagur þeirra hefur batnað um
■! 7.5 millj. kr, í frjálsum gjaldeyri umfram notkun
1 yfirdráttarins. Og þetta hefur gerzt þrátt fyrir
] það, að hinn aukni frílisti hefur verið í gildi í
j fjóra mánuði. Aðstaðan í voruskiptagjaldeyri hef
j ur batnað um 87.3 millj. kr.
Þetta er vissulega gleðilegar fréttir, þar eð
] ástandið í gjaldeyrismálum okkar Islendinga var
j orðið mjög slæmt áður en ráðstafanir ríkisstjórn
1 arinnar voru gerðar. Talið hefur verið, að gjald
i eyrisstaða íslands hafi verið orðin verri en nokk
j; urs annars lands, sem upplýsingar liggja fyrir
um, að einu eða tveimur undanskildum. Allar yf
t irdráttarheimildir íslenzkra banka erlendis höfðu
1 verið nýttar til hins ýtrasta og ástandið í þessum
f málum var orðið mjög alvarlegt.
og
Gjaldeyrisstaðan hefur vissulega batnað mikið
áhrif efnahagsráðstafananna orðið þau, er
ríkisstjórnin spáði þrátt fyrir allar hrakspár stjórn
arandstöðunnar. Ríkisstjórnin spáði því, að gengis
breytingin og efnahagsráðstafanirnar yfirleitt
mundu hafa þau áhrif, að jafnvægi mundi fljót
Iega nást á greiðslujöfnuðinum og eins og upplýs
ingar viðskiptamálaráðherra sýna, stefnir þróun
in óðfluga í þessa átt. Gjaldeyrisstaðan hefur batn
að meira en bjartsýnustu menn þorðu að vona.
Vaxtahækkunin hefur einnig haft góð áhrif í
þá átt að auka sparifjármyndunina. Samkvæmt
nýjustu tölum hafa sparinnlög aukizt um 188
millj. kr. í viðskiptabönkunum og stærstu spari
sjóðum á tímabilinu apríl—september 1960. Er
þetta 39 millj. kr. meiri aukning en á sama tíma
í fyrra. Ástæðan fyrir þessari aukningu er að sjálf
sögðu fyrst og fremst sú, að innlánsvextir voru
hækkaðir. Á sama tíma hefur svo dregið úr útlán
urn vegna hækkunarinnar á útlánsvöxtum. Vaxta
hækkunin hefur því haft tilætluð áhrif og stuðlað
að jafnvægi á lánsfjármarkaðnum.
g |13.0'efet. 19.60 ■ —
HÚSAVÍK, 11. 0kt„ — Nýtt
barnaskólahús var vífft hér á
Húsavík sl. sunnudag. Meðal
gesta voru Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra, Ingimar
Jóhannesson, fulltrúi fræðsiu-
málastjóra, Affalstöeinn Eiríks-
son námsstjóri og Sigúrður
Gunnarsson, sem v'ar skóla-
stjóri barnaskólans hér í 20 ár,
en hefur tekiff viff starfi við
Kennaraskólann.
GólfílÖtur hins nýja skóla-
húss er 2183 ferm., en grunn-
flötur 1068 ferm. Húsið er tvær
hæðir með 11 kennslustofum,
sem taka um 30 nemendur hver.
Þá eru handavinnustofur fyrir
pilita og stúlkur, skrifstofur
skólastjóra og kennarastofa o.
s. frv. Alt er mjög vandað og
kváðu gestirnir við vígsiuna
þetta með því bezta, sem þekk
ist á Norðurlöndum.
Kostnaður nemur nú rúmum
7 millj. kr., en áætlaður heild-
arkostnaður er 8,2 millj. kr.,
þegar ahi) er fullgert. Virðist sú
áætlun vel ætla að stanadst,
nema hvað. snertir verðbreyting
ar vegna gengislækkunarinnar.
Hákon Sigtryggsson teiknaði
húsið og hafði eftirlit með bygg
ingu, en Þórhallur Snædal
byggingameistari sá um fram-
kvæmdir.
Fjórar kennslustjofur í nýja
toarnaskólahúsnu eru látnar
gágnfræðaskáólanum. í té í vet-
ur. en fyrirhugað er að byggja
álmu fyrir gagnfræðaskólann í
samtoandi við barnaskólann.
Um 300 nemendur vérða í báð-
um skólunum í vet.ur.
Skóiastjóri gagnfræðaskólar.s
er Sigurjón Jóhannesson, en
skólastjóri barnaskólans Kári
Arnórsson, sem áður kenndi við
Flensborgarskólann í Hafnar-
firði. Er hann Húsvíkingur að
ætt.
Þess má að lokum geta, að
gamla bai’naskólahúsið var
byggt árið 1907. Sýnir það
.stórhug þeirra, sem það reistju,
að það skuli fyrst nú lagt niður.
Það er 3ja hæða hús og mundi
grunnflötur þess rúmast í for-
stofu nýja skólahússins.
E.M.J.
Athugun á
hafnarfram-
kvæmdum
LÖGÐ hefur veriff fram á al-
þingi tillaga til þingsályktunar
um athugánir á hafnarfram-
kvæmdum. Flutningsmenn eru
Guðlaugur Gíslason og Sig-
urður Ó. Ólafsson. Tillagan er
á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela ríkis
stjórninni að láta fram fara
rannsókn á möguleikum til
hafnargerðar í Þykkvataæ í
Rangárvallasýslu og við Dyr-
hólaey í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Rannsóknum þessum
verði hraðað svo, að þeim verði
lokið á árinu! 1961, ef mögu-
legt er.“
TÍÐ SLYS
Umferðarslys eru tíð
um þessar mundir, marg-
ir hafa slasazt, sumir al-
varlega, ' og miklar
skemmdir orðið á bifreið-
um. Þarna sést bíll eftir
árekstur. Það hafa orðið
á honum miklar skemmd
ir, og tjónið er auðvitað
mikið. Slysið vildi þann-
ig til, að bifreiðimii var
ekið aftan undir vörubíls
pall, á annað horn hans,
og síðan þeyttist hann
stjórnlaust langa leið eft-
ir veginum.
ivivwwwvmwwwwviv
Kosningar
í Keflavík
á þing ASÍ
UM helgina fór fram kjör full-
trúa Verkalýðs og sjómannafé-
lags Keflavíkur á ASÍ-þing,
Viðhöfð var allsherjamtkvæða-
greiðsla um tvo lista: A-listj
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
hlauÆ 155 atkvæði og alla menn
kjörna, en B-listi kommúnista
og Framsóknarmanna 103.
Fultrúar félagsins á 27. þingi
ASÍ verða því: Ragnar Guðleifs
son, Keflavík, Guðmundur
Gíslason, Keflavík, Guðni Þor-
valdsson. Keflavík, og Helgj
Helgason, Njarðvík.
Þess má geta, að þetta er
fyrsta kosningin í félaginu, þar
sem 'sjómannadeildin og vél-
stjóradeildin greiða ekki at-
kvæði, þar sem þær eru í Sjó-
mannasambandi íslands.
Kommúnistar og Framsókn-
armenn toröltu mjög við kosn-
inguna, þó að þeir hlytu ekkS
erindi sem erfiði í þvi sam*
foandi, ___j