Alþýðublaðið - 04.12.1960, Síða 14
Framhald
andi. Hafizt var handa um
að leggja vegi, brýr og
síma. Loks efndi Wood
heit Bandaríkjamanna og
leyfði kosningar.
Hið þjóðkjörna þing
samdi stjórnarskrá og
þótt þing og stjórn Banda-
ríkjanna ættu erfitt með
að sætta sig við ýmis atriði
hennar var hún samþykkt,
með einni breytingu þó.
Var það Platt-breytingar-
tillagan, sem andstæðing-
ar Bandaríkjanna hafa
hvað eftir annað gagnrýnt
harðlega. Klausa þessi
veitti Bandaríkjunum rétt
til að hlutast til um mál-
efni Kúbu ef sjálfstæði
þess; einstaklingsfrelsi, líf
og limir landsmanna væri
hætta búin. Hafa Banda-
ríkjamenn alloft neytt
þessa réttar síns — ofíast
vegna óska Kúbumanna
sjálfra.
Þann 13. des. 1901 fóru
fyrstu — og sennilega heið
arlegustu — forsetakosn-
ingar fram á Kúbu. Þann
20 maí 1902 var fáni Banda
ríkjamanna dreginn niður
og sá kúbanski að bún. Er
það áreiðanlega sjaldgæft
að nokkur þjóð hafi brugð
ið jafn skjótt við óskum
sigraðrar þjóðar og veitt
henni frelsi. Atburður
þessi átti eftir að boðá írá-
hvarf Bandaríkjamanna
frá nýlendustefnu og hafði
mikil áhrif á nýlenduþjóð-
ir, sem samt sem áður
furðuðu sig á „barnaskap“
Ameríumanna.
Aður var þess getið, að
þótt pólitískir og efnahags-
legir hagsmunir hafi að
nokkru ráðið því að Banda
ríkjamenn lögðu í stríð við
Spánverja, hafi kaupsýslu-
menn og iðjuhöldar í
Bandaríkjunum barizt af
afefli gegn stríðinu. En
þetta er þveröfugt við það
sem Castro vill halda fram
og uppfræðir æsku Kúbu
um, að kapítalistar og
heimsvaldasinnar hafi ráð-
ið því, að út í styrjöld-
ina var lagt Þó að Banda-
ríkjamenn hefðu haft
nokkurahagsmuna að gæta
á Kúbu áður en stríðið
hófst eins og áður hefur
verið frá sagt nam fjárfest
ing þeirra samt ekki meiru
en 40—50 millj. dollara.
Kostnaðurinn við stríðið
var um 250 millj. dollarar
og fé það, sem varið var
til aðstoðar Kúbu og end-
urreisnar var jafnvel
enn meira að vöxtum.
Hlutur hinna kúbönsku
uppreisnarmanna undir
forystu Martf og Gómez í
hinum glæsilega sigri á
Spánverjum hefur verið
nokkuð umdeildur. Er það
líklega ofmælt hjá Roose-
velt ofursta að þeir hafi
„bókstaflega ekkert gert“.
Flestir eru sammála um.
að þeir hafi gert mikið
gagn með njósnum og
skemmdarstarfsemi. Og
uppi á hálendinu um mið-
bik eyjarinnar áttu spánsk-
ar hersveitir fullt í fangi
með að kljást við uppreisn-
armenn Gómez hershöfð-
ingja. Var það vitanlega
mjög gagnlegt fyrir Banda
ríkjamenn, að öðrum kosti
hefðu hersveitir þessar ver
ið sendir gegn þeim. En að
pppreisnarmenn hefðu þeg
ar verið búnir að yfirbuga
Spánverja, áður en Banda
ríkjamenn skárust í leik-
inn, eins og Castro heldur
fram, hljómar óneitanlega
hlægilega í eyrum.
Hér hafa verið raktar
nokkrar heiztu staðreyndir
um styrjöld Bandaríkja-
manna og Spánverja á
Kúbu 1898. — I dag dreg-
ur Fidel Castro dár að
hetjudáðum hinna amer-
ísku hermanna og reynir
að gera sem minnst úr
þeim. En það er ekki á
hans valdi að breyta dómi
sögunnar.
Jarðarför móður minnar og tengdamóður,
ÖNNU SIGFÚSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. þ. m. kl. 10.30.
Athöfninni verður útvarpað.
Ingi Jónsson. Elín Guðmundsdóttir.
Ræða Guð-
r
mundur I.
Framhald af 13. síðu.
vopn. Lífshagsmunir þjóðar-
innar, réttur hennar til að lifa
menningarlífi hennar í landi
sinu og sögulegar staðreynd-
ir hafa verið hyrningarstein-
ar raka okkar. Með þessum
hætti höfum við á ótrúlega
skömmum tíma náð mikilvæg
um árangri. Þessum sigri má
ekki glata með óheppilegurn
vinnubrögðum_ Landhelgis-
málið er þjóðinni of dýrmæit
til þess að verða að peði á
taflborði annarlegra sjónar-
miða.
En þó að mikilvægum áfanga
hafi verið náð í landhelgis-
málinu. þá er því hvergi nærri
lokið. Um leið og fiskveiði-
deilan er leyst og 12 mílurn-
ar komnar heilar í höfn hefst
nýr áfangi. Baráttan fyrir yf-
irráðum yfir landgrunninu
öllu. Enginn efast um, að sú
•barátta verður erfið. And-
staðan verður hörð. Engu að
síður munu íslendingar leggja
ótrauðir til atlögu og ekki
skilja við málið fyrr en tekist
hefur að skapa óvéfengjanleg
ar alþjóðareglur er heimili
þeim verndun alls landgrunns
ins.
Innilega þökkum við þeim, sem sýndu okkur samúð við
fráfall og útför föður oikkar,
BRYNJÓLFS STEFÁNSSONAR,
fyrrv. forstjóra.
Guðni Brjnjólfsson.
Stefán Brynjólfsson.
Suomi
Framhald af 3. síðu.
og flytur skýringar. Frú Marita
Lind stjórnar spurningaþætti
— fil. cand. Enni Petro,
finnski stúdentinn, sem dvelur
hér í vetur við Háskólann, les
upp og að lokum verður stig-
inn dans.
Allir Finnar, sem eru hér í
bænum og nágrenni, verða á
fagnaðinum.
Félagsmenn í Finnlandsvina
félaginu Suomi hafa ókeypis
aðgang og sýni þeir félagsskír-
teini við innganginn. Þeir, sem
óska að gerast meðlimir félags
ins, geta fengið afhent skír-
teini við innganginn.
Fjárlögin
Framhald af 1. síðu.
fleira. Þá er ekki vitað, hvort
þróun landhelgismálsins verð-
ur sú, að það komi til kasta Al-
þingis, eða ekki'.
Enda þótt fundir í deildum
Alþingis hafi oft verið stuttii'
undanfarið, hafa nefndir verið
starfandi og þá sérstaklega
fjárveitinganefnd. Er það
stærsta og mikilsverðasta nefjid
þingsins, en hún fer nákvæm-
lega yfir hið umfangsmikla rík-
iskerfi, eins og það speglast í
fjárlögum, yfirheyrir ráðamenn
•ojjinberi^a stofnana, ^fgreiðir
aragrúa af erindum og gerir
tillögur um fjárveitingar. For-
maður nefndarinnar er Magn-
ús Jónsson.
14 4- des. 1960 — Alþýðublaðið
sunnudagur
SLYSAVARÐSTÓTAN er op-
in allan sólarhringinn. —
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl„ 18—8.
Sími 15030.
FUJ-félagar í Reykjavík eru
minntir á hin vinsælu
skemmtikvöld á miðviku-
dögum kl. 8. Félagsvist,
bingó, töfl, leikir o. fl. Fjöi-
mennið og takið með ykk-
ur gesti.
Dansk kvindeklubb:
Jólabazar félagsins verður
haldinn þriðjudaginn 6. des.
kl. 8.30 í Tjannarkaffi, niðri.
Eimskipafélag
íslands li.f.
Brúarfoss kom til
Kristiansand 30,
11. fer þaðan til
Flekkefjord og
Rvíkur. Dettifoss fór frá
Immingham 2. 12. til Rott-
erdam, Bremen og Hamborg
ar. Fjallfoss fer frá ísafirði
í dag 3. 12. til Hjalteyrar,
Stglufjarðar, RaUfárhaJlxLar
og Eskifjarðar og þaðan til
Frederikshavn og Aabo.
Goðafoss fór frá Keflavík 27.
11. ti! New York. Gullfoss
fep frá Kaupm.höfn 6. 12.
til Lieth og Rvíkur. Lagar-
foss fer frá London 3. 12. til
Hull, Rotterdam, Hamborgar
og Reykjavíkur. Reykjafoss
fór frá Hamborg 1. 12 til R-
víkur. Selfoss kom til Rvíkur
30. 11 frá New York. Trölla-
foss kom til Liverpooj 2. 12
fer þaðan 5. 12 til Brombor-
ough. Cork. Lorient, Rotter
dam, Esbjerg og Hamborgar.
Tungufoss fór frá Gravarna
2. 12 til Gautaborgar, Skag-
en, Fu ,rGautaborgar og R-
víkur.
Hafskip h.f.
Laxá er í Reykjavík.
Jöklar h.f.
Langjökull fór frá Vestm.
eyjum í gær áleiðis til Kefla
víkur. Vatnajökull fór fram-
hjá Stroma í morgun á leið
til Hamborgar, Grimsby og
Rotterdam.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fór í gær frá
Ste,ttin áleiðis til Rvíkur.
Arnarfell lestar á Vestfjarða
höfnum. Jökulfeþ fór í gær
frá Keflavík áleiðis til Grims
by, Hull og Hamborgar. Dís-
arfel]] fór 30. nóv. frá
Hvammstanga áleiðis til
Hamborgar, Kaupm.hafnar,
Malmö og Rostock. Litlafell
er í oliuflutningum í Faxa-
flóa Helgafell er á Akur-
eyri Hamrafell er væntan-
legt tii Hafnarfjarðar 6. þ.
m. frá Aruba. ,
Prentarakonur:
Munið bazarinn mánudag-
inn 5. des. Tekið verður á
móti munum, sunnudagskv.
4. des. í HÍP eftir kl. 8.
Verkakvennafélagið Fram-
sókn:
Munið bazari'nn í Iðnó
miðvikudaginn 7. des. Kom-
ið munum sem allra fyrst á
skrifstofuna. Skrifstofan er
opin á morgun milli kl. 4—6.
Sunnudagur
4. desember.
• 11.00 Messa í
gömlum stíl, fl.
í Bessastaða-
kirkju sl. sunnu
dag (Prestur sr.
Sigurður Páls-
son á Selfossi.
Organl. Guðm.
Gilsson. Kirkju
kór Selfoss
syngur) 13.10
Afmæliserindi útvarpsins
um náttúru íslands; VI: Veð
urfarið (Jón Eyþórsson veð-
urfræðingur). 14.00 Miðdeg-
istónl.: Frá tónlistarhátíð
inni í Prades í haust. 15.35
Endurtekið efni: Jóhanna
Norðfjörð leikkona les ljóð
eftir Jóhann Sigurjónsson.
15.45 Kaffitíminn: Carl Bill-
ich leikyr á píanó. 16.15 Á
bókamarkaðinum (Vilhj. Þ.
Gíslason) 17.30 Barnatími
(Skeggi Ásbjarnarson) 20.00
Frá Hawai; fyrra erindi
(Birgir Thorlasíus 20.25 Mus
ica sacra: Frá tónleikum í
Dómkirkjunni 10 okt. Ragn
ar Björnsson leikur á orgel
og Einar G. Sveinbjörnsson
á fiðlu 20.55 Á förnum vegi
(Stefán Jónsson og Jón Sig-
björnsson) 21.45' Tónleikar:
Campoli leikur fiðlulög 22.05
Danslög, valin af Hreiðarí
Ástvaldssyni 23.30 Dagskrár
lok.
Mánudagur 5. desemher.
13.15 Búnaðarþáttur Í3.30
Við vinnuna. 18.00 Fyrir
unga hlustendur 20.00 Um
daginn og veginn (Sigurður
Helgason lögfræðingur 20.20
Einsöngur: Eisa Sigfúss syng
ur andleg lög; Valborg Ein-
arsdóttir leikur undir 20.40
Leikhúspistill (Sveinn Ein-
arsson) 21.00 íslenzk tónlist
Mors et vita, strengjakvart-
ett eftir Jón Leifs (Björn Ól-
afsson, Jósef Felzmann. Jón
Sen og Einar Vigfússon leika
21.30 Útvarpssagan Læknir-
inn Lúkas (Ragnh. Hafstein)
22.10 Hljómplótusafnið 23.00
Dagskrárlok.
B
15 3 !4 K p íl? 5 mWb\8
18 •J i4 r8 1 í 15
29 3 & .2 17 3 27
5 •» 7 28 4 11 9
tr 4 12 11 5 13
19 3 1 8 24 2
HJ 6(9 A