Alþýðublaðið - 05.01.1961, Side 1
42. árg. — Fimmtudagur 5. janúar 1961 — 3. tbl.
ÞEGAR bandarískt snyrtivörufyrirtæki vildi fá þá kenn-
ingu sína sannprófaða, að ný kremtegund væri sérdeilis
góð til að vernda hörund gegn veðri og vindum, fékk það
stúlkuna hérna til þess að smyrja sig smyrslinu og
standa í tíu mínútur andspænis gerviveðri í tilraunastöð
flugvélaverksmiðju. Myndin er tekin skömmu áður en
tilraunin liófst. Það þótt vel af sér vikið af stúlkunni að
standa af sér ósköpin. Vindliraðinn í ,,vindvélinni“
komst upp í 60 mílur. Hvernig reyndist húðvarnarkrem-
ið? Um það er ekki getið.
yrsti sátta
ndurinn í
gærkvöldi
FYRSTI sáttafundurinn í
deilu sjómanna og útvegs-
manna um bátakjarasamning-
ana var haldinn í gærkvöldi.
Sáttasemjari ríkisins, Torfi
Hjartarson, boðaði deiluaðila á
sinn fund í Alþingishúsinu og
hófst hann kl. 9. Munu deilu-
aðilar fyrst og fremst hafa
kynnt sáttasemjara sjónarmið
sín og stóð fundur enn er
blaðið fór í prentun.
Fulltrúar sjómanna og út-
vegsmanna á Suðurnesjum líta
svo á, að þar hafi náðst sam-
komulag, sem einungis sé eftir
að bera undir félagsfund. Rétt
er að vekja athygli á því, að
efni samkomulagsins var aldrei
borið upp á fundinum í fyrra-
kvöld, þar sem tillaga sú, er
samþykkt var, fjallaði aðeins
um það, að frestað væri að taka
afstöðu til samninganna.
Muiiu Suðurnesjamenn því
ekki taka þátt í samningavið-
ræðum þeim, er sáttasemjari
hefur nú boðað til, að því að
Ólafur Björnsson, formaður
sjómannadeildar Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur,
tjáði Alþýðublaðinu í gær.
Sandgerðis-
bátar afla
SANDGERÐI, 4. jan. —
Fimm bátar voru á sjó í dag
og eru þrír komnir inn. Mun-
inn er með 10,4 tonn, Freyja 7
og Mummi ca. 10 tonn. Virðist
aflinn vera minni en í gær, en
ágætur þó. Þetta er ágætis fisk-
ur, úrvals þorskur, ýsulaus al-
veg.
í gær voru fimm bátar á sjó
og fengu samtals 49,6 tonn. Jón
Gunnlaugsson var með 14,8 t.
Muninn 12,9 og Hamar 11,1 t.
Bátarnir eru grunnt undan
landi, svo að óvíst er að aust-
anstormurinn ihafi teljandi á-
hrif á miðunum.
Líklega fara 7—8 bátar á sjó
í kvöld. EG..
REYNSLAN í Hafnarfirði og
víðar liefur leitt í ljós, að stofn
kostnaður steyptra gatna er
ekki hærri en malbikaðra, jafn
vel lægri, en ending þeirra
miklu betri, sagði dr. Jón Vest-
dal, forstjóri Sementsverk-
smiðju ríkisins, í viðtali við Al-
þýðublaðið í gær um sements-
itwwwwwwvwwwwwwmwwwwwwwwwwwwwv
SVONA fór um þessa sjóferð: Marilyn Monroe og Arthur
Miller leikritaskáld gáfust upp á hjónabandinu. Því var reynd-
ar aldrei spáð góðu. Marilyn þarf starfs síns vegna að taka
þátt í samkvæmislífi, Miller þarfnast hins vegar góðs næðis.
Myndin er tekin þegar allt lék í lyndi — á yfirborðinu að
minnsta kosti. Og yfirborðið á Marilyn er ekki til að skop-
ast að.
WWWWWWMUWrtWMWMMMWWWWWHWVWWWWWWWWMMWWWWmWWWWWWW
framleiðsluna, sem segir frá á
öðrum stað í blaðinu í dag.
Jón kvað Samband íslenzkra
sveitarfélaga hafa haldið fund
á Akranesi sl. haust, þar sem
bæjarstjórar og ýmsir forráða-
menn bæjar- og sveitarfélaga
voru saman komnir til við-
ræðna um gatnagerð úr stein-
steypu. Skoðuðu þeir m. a. Sem
entsverksmiðjuna og ræddu við
stjórnendur hennar.
Bæjarverkfræðingarnir í
Hafnarfirði og á Akranesi
héldu erindi við það tækifæri
og skýrðu frá reynslu þessara
kaupstaða af steinsteyptum
götum. Jón Bergsson, bæjar-
verkfræðingur í Hafnarfirði,
gaf þá þær upplýsingar, að 20
ára steinsteypt gata í Hafnar-
firði (Strandgata) hefði ekki
þarfnazt neins viðhalds á
þessum tíma. Slíkt er ekki
hægt að segja um malbikaðar
götur.
Af þessum orsökum er mikill
áhugi vaknaður meðal sveitar-
félaga á því að steypa götur,
sagði Jón að lokum. Kvaðst
hann hafa heyrt, að Samband
ísl. sveitarfélaga hefði áhuga á
viðræðum við stjórn Sements-
verksmiðjunnar um þetta mál
og kjörið til þess nefnd.