Alþýðublaðið - 05.01.1961, Síða 3
Breytir USA-stjóm Slítð varð fundi Or-
stefnu sinni í Laos? yggisráðs vegna láta
VIENTIANE, 4. jan. (NTB-
REUTER-AFP). Hin nýja
stjórn Laos, undir forsæti Boun
Oums prins, var í dag formlega
sett í embætti með samhljóða
atkvæðum 41 viðstadds þing-
manns. Boun Oum sagði í gær,
að stjórn hans mundi stefna
að góðum samskiptum við
grannríki og landið mundi forð-
ast að skinta sér af innanríkis-
málum annarra ríkja.
Umræðan á þingi einkennd-
ist af skörpum orðaskiptum
milli Phoumi Nasavans, hers-
höfðingja, og Poi Sananikone,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Hélt Sananikone því fram, að
stefnuskrá stjórnarinnar væri
alltof veik og ónákvæm og
lagði fram margar spurningar
.um, hvernig stjórnin hyggðist
snúast við ýmsum, ákveðnum
vandamálum.
'Hann spurði, hvort stjórnin
hyggðist leysa upp byltingar-
nefndina í Savannakhet, sem
Nosavan, hershöfðingi, hefur
sett upp og er vinveitt vestur-
veldunum.
Phoumi Nosavan sagði í sinni
ræðu, að hann teldi, að Laos
ætti að hafa góð samskipti við
nógranna sína, en fjögur ná-
grannaríkjanna hefðu ekkert
annað en illar óskir í garð La-
os. „Þegar þessi ríki breyta af-
stöðu sinni"‘, sagði Nosavan,
,,munum við breyta okkar af-
stöðu, en ekki fyrr“. Hann
taldi auðveldara að finna skýr-
inguna á borgarastyrjöldinni
utan landamæra Laos en með-
al landsmanna sjálfra.
Fréttastofa Reuters kveður
bardaga enn háða í norður-
hluta Laos-ríkis og eigast þar
við fallhlífarsveitir Kong Lae
kapteins og kommúniskir
skemmdarverkamenn í tengzl-
um við Pathet Lao hreyfing-
una. Ríkisstjórn Laos-ríkis held
ur því fram, að herlið frá hinu
kommúniska Norður-Vietnam
haldi áfram aS þyrpast inn í
landið vinstrihernum til styrkt
ar. Kveðst hún munu biðja um
aðstoð erlendis frá ef innrás
norðanmanna linni ekki skjót-
lega.
Fréttaritari AFP-fréttastof-
unnar í Washington hefur það
eftir góðum heimildum þar, að
ríkisstjórnin þar liyggi nú á
vægari stefnu í Laos-málinu og
geti nú jafnvel hugsað sér að
vopnahlésnefndin, er starfaði í
Indó-Kína 1954, hefji aftur
störf sín„ Er talið að Kennedy
væntanlegur forseti hafi á
leynifundi hvatt ríkisstjórn Eis
enhowers til að stíga ekki þau
spor í þessu máli er stjórn
Kennedys gæti ekki breytt,
Þótt svo fari, að ríkisstjórn
Bandaríkjanna gerist því með
mælt að vopnahlésnefndin faki
aftur til starfa, efast margir
um að hún næði verulegum ár-
angri — í fyrsa lagi vegna þess
að henni hafa verið sett erfið
skilyrði af stjórn Boun Oum —
og í öðru lagi vegna þess, að
fjölmargar þjóðir munu ekki
I fást til að viðurkenna núver-
andi ríkisstjórn Laos, stjórn
Boun Oum.
Frá Moskvu berst sú frétt,
að hinum landflótta forsætis-
róðherra Laos-ríkis, Souvanna
Phouma, er var fyrir hlutleys-
isstjórninni, hafi í bréfi til
sovétstjórnarinnar stungið upp
á alþjóðlegri ráðstefnu um Laos
Var bréfið birt í Isvestia í
morgun. Forsætisráðherra hins
kommúitiska Norður-Vietxtam
ltefur ritað mörgunt ríkisstjórn-
um bréf og krafizt brottfarar
alls bandaríks herliðs, vopna og
sérfræðinga af laotískri grund
áður en slík ráðstefna kentur
saman.
Toppkratar
östefnu
SALZBURG, 4. jan. (NTB—
REUTER). Foringjar jafnaðar
Hammarskjöld
S Leopoldville, 4. jan. S
S (NTB-Reuter). S
^ DAG Hammarskjöld, ^
^ framkvæmdastjóri SÞ, ^
* kom trl Leopoldville í •
) dag. Hyggst hann kynna ^
^ sér þróun ntála í Koitgó. ^
( Mikill mannsöfnuður tók ^
( á móti Hamntarskjöld og (
^ hyllti hann. Til átaka
( kont rnilli þeirra er (
S hylltu og annarra er \
S gerðu það ekkr. Suntir S
S báru spjöld er kröfðust S
S þess, að Þjóðþingið komi S
S santan, en önnur óskuðu S
S honunt langlífis. S
maitnaflokkanna í V-Evrópu
kontu santan í dag á ráðstefnu
í Salzburg. Ráðstefituna sitja
ýmsir æðstu menn jafnaðar-
mannaflokka þessara og aðeins
tveir til þrír frá hverjunt
flokki. Meðal þeirra, sent
kontitir eru til ltennar, eru
þeir Tage Erlander forsætis-
ráðherra Svía, Viggo Kamp-
mann, forsætisráðherra Dana,
Hugh Gaitskell, forntaður
brezka jafnaðarmannaflokks-
ins, Nils Langhelle, forseti
norska Stórþingsins og Bruno
Pittermann, formaður austur-
ríska jafnaðarntannaflokksins
Og vara-kanzlari ríkisstjórnar
landsixts. Pittermann hélt
frantsöguerindið á ráðstefit-
unni og fjallaði það um stefnu
jafnaðarntannaflokkanna í Ev-
rópu, möguleika þeirra á
valdatöku og leiðir til henitar.
New York, 4. jan. — NTB-
Reuter, — Öryggisráð SÞ
ræddi í dag kæru Kúbumanna
á hendur Bandaríkjamömtum
vegna þess, að þeir hafi á
prjónununt innrás á ejTna. —
Wadsworth, fulltrúi Banda-
ríkjamantta, lýstr því yfir við
upphaf untræðunnar, að
Bandaríkjastjórn hefði ákveð-
ið að slíta stjórnmálasam-
bandi við Kúbu. Ilefði verið
svo komið, að sendimenn
Bandaríkjamta hefðu ekkr
lengur getað unnið störf sín
þar í lattdi. Unt ákæru Kúbu-
ntanita sagði hann, að hún
væri „móðursýkisleg.“
Hann kvað Bandaríkja-
stjórn ekki hafa neitt að ótt-
ast né neinu að leyna, — ef
nokkrir hefðu eitthvað að ótt-
ast, væru það leiðtogar Kúbu,
sem á sl. hálfu ári hefðu gert
sig hlægilega í augum heims-
ins.
Ráðið varð að gera hlé á
umræðum sínum vegna trufl-
ana af hálfu kúbanskra mót-
mælamanna á áheyrendapöll-
unum, sem tóku Roa, utanrík-
isráðherra Kúbu, með köllum,
eins og „svikari,“ er hann hóf
mál sitt. Formaður ráðsins,
Omar Loufti frá Arabiska sam
bandslýðveldinu, hótaði að
slíta fundinum, ef látunum
ekki linnti. 'Verðir fluttu óróa
seggina á brott. Úr ræðustóli
hélt Roa því fram, að Banda-
ríkjamenn stæðu að baki lát-
unum. Þetta var í fyrsta sinn,
sem fundi ráðsins hefur verið
slitið vegna láta á áheyrenda-
pöllum.
Þegar fundur hófst að nýju
gerði Roa harða árás á Banda-
ríkjastjórn, kallaði stjórn Eis-
enhowers afturhaldsstjórn, og
kvað Kúbumenn mundu berj-
ast gegn henni, þar til Eisen-
hoÉer færi úr Hvíta húsinu
og þar til Wall Street léti
Kúbumenn í friði. Hann kvað
Kúbumenn hafa orðið fyrir
undii-ferli, mútum og þvingun-
um vegna þess, að Bandaríkja
menn vildu „hegna kúbönsku
byltingunni.“
Kjarnasmiðja
springur í loft
Washington, 4. jan.
Verksmrðja til smíði á
kjarnorkuhreyflum í Id-
alio sprakk í loft upp í
nótt. Sundraðist bygging-
in gjörsamlega og fórust
3 vaktmenn þar. Stórt
svæði kringum verk-
smiðjurústirnar er talið
mjög hættulegt. Ekkr er
enn vitað, hvort lxér hef-
ur orðið kjarnorkuspreng
ing' eða kemísik spreng-
ing. — Fyrsti kjarnorku-
hreyfill heimsins var
smíðaður í þessarr verk-
smiðju (fyrir kafbát) en
nú var unnið þar að gerð
kjarnorkuhreyfla fyrir
flugvélar.
Washington, 4. jan.
Skotið var í gær á banda-
ríska flugvél yfir Laos. Er
þetta í annað sinn sem það
gerizt. Var þarna um að ræða
flugvél frá bandaríska sendi-
ráðinu í Vientiane og var hún
óvopnuð. Skotluíðin kom úr
fallbyssum á landsvæði
vinstrihersins.
BRÚSSEL, 4. jan. NTB—
REUTER—AFP). — Mið-
stjórn belgíska jafnaðar-
mannaflokksins og stjórn
Almenna verkalýðssam-
bandsins áttu sameigin-
legan fund með sér í dag.
A fundinum var rætt um
hvað gera skuli nú, er
belgíska þingið hefur sam
þykkt sparnaðarfrumvarp
ilð mikla. Er það álit frétta
ritara að aðeins sé um
tvennt að velja: að hvetja
menn til að hverfa til
vinnu eða stefna áfram að
skiptingu landsins í tvö
ríki.
Vexkfallsmenn héldu fjölda-
fund í Brússel í dag, og var
þar ákveðið, að verkamenn frá
suðurhluta landsins skyldu
fara kröfugöngu til Brússel og
auka þar með baráttuna gegn
sparnaðarstefnu stjórnarinn-
ar. Fundurinn var haldinn í
aðalstöðvum verkalýðssam-
bandsins og að honum loknum
héldu menn út á stræti og
hófu nýja kröfugöngu inn í
miðborgina. Er þangað var
komið eyðilögðu verkfalls-
menn, er voru um 1000 manns
strætisvagna og vörubíla, réð-
ust á skrifstofubyggingar
blaða og Sabena-flugfélagsins
og gerðu fleira til miska. Áð-
ur höfðu þó 6—7 þúsund kröfu
göngumenn gengið um göt-
urnar, sungu alþjóðasöng jafn
aðarmanna og franska þjóð-
sönginn.
Skólar áttu að hefjast í
dag eftir jólafríið, en í Suður-
Belgíu eru flestir kennarar í
verkfalli og hófst því engin
kennsla.
Jafnframt því sem sextándi
dagur verkfallsins hófst héldu
leiðtogar v.erkamanna því
fram, að verkfallið væri tekið
að breiðast út til norðurhér-
aða landsins, þar sem flestir
verkamenn eru í hinu kaþ-
ólska verkalýðssambandi. — í
fréttatilkynningu frá ríkis-
stjórninni er hins vegar borið
á móti þessu og ástandið sagt
heldur betra en áður var. Er
sem dæmi um það nefnt, að
járnbrautarlestir hafi í dag
farið til S'viss og Ítalíu.
Alþýðublaðið — 5. janúar 1961 3