Alþýðublaðið - 27.01.1961, Side 15

Alþýðublaðið - 27.01.1961, Side 15
foann en þau, að hann varð má'lgefnari en fyrr. „Ég skil ekki hvað hefur orðið áf George,“ sagði Caro- line loks og notaði sér hlé, sem varð á orðaflaumi herra Trench. „Hann hefði átt að vera kominn“ „Þér þurfið ekki að hafa á- hyggjur af George, unga kona,“ sa-gði Trencn þUrr á manninn. „Hann hefur fengið sér að borða eiihvers staðar. Ég hugsa að hann hafi ekki viljað borða heima, eins og þér víst vitið er hann í ónáð hjá afa Sínum og móður. Þau skilja víst ekki að hann er orðinn fullorðinn maður. Góð ur náungi George! Orðinn það fullorðinn að hann þarf að skemmta sér af og til,“ „Hann er orðinn það full- orðinn, að hann ætti að skilja hve ilXt það er fyrir hann að rífast við afa sinn,“ svaraði Caroline. „Það er mjög slæmt fyrir hann ef þér ýtið undir þá óvináttu." Hún þagnaði og hlustaði eftir fótataki í forstofunni. Svo heyrði hún að útihurð- inni var skellt. Hún stökk á fætur og gekk að glugganum og sa sér til óumræðilegrar skelfingar að frú Pomfret hvarf yfir götuna. Caroline Xeit á herra Trench. „Frú Pomfret er farin út!“ „Rétt, madam,“ viður- ikenndi herra Trench bros- andi. „Farin að heimsækja vini sína. Góð kona Belila! Veit að við viljum ekki láta ónáða ökkur!“ Caroline starði á han. All- ar hennar slæmu grunsemdir orðnar að vissu. Hún hafði með naumindum hemil á þeirri löngun sinni að rj úka á dyr og sagði kuldalega: „Það lítur út fyrir að bæði frú Pomfret og þér sjáilfur hafið misskilið þetta. Ég get ekki verið ein með yður f kvöld og ég hef ekki gefið yður neina ástæðu til að ætla að ég geri það.“ Herra Trench rieis á fætur. Hann brosti enn elskulega. Hann gekk til hennar og tók um handlegg henar. „Litla via, þér þurfið ekki að láta sem þér séuð saklaus við mig. Ég verð að viður- kenna aíð yður tókst í fyrstu að gabba mig, en nú þekki ég leyndarmál yðar.“ Hann hló illgirnislega og dró hana að sófanum. „Við skulum ekki minnast meira á það. Ég er ekki rnikið fyrir að erfa smá- muni.“ „Hvernig dirfist þér herra minn!“ Caroline sleit sig a£ honum“. Ég vil ekki vera hér og láta móðga mig svona. Leyfið mér að fara héðan!“ Herra Ttrench hristi höfuð ið. Hann brosfí enn on í aug um hans var andstykkilegur glampi svo henni rann kalit vatn milli skinns og hörunds. Hún varð skyndilega viss um að að baki þessa fælist ann- að og meira en tilraun til að fleka hana. Eitt augnablik nafði hún iséð slíka ill- mennáku í svip hans að hann hryilti við, en svo hvarf það aftur og hann varð á ný slepjugi dóninn sem fyrr. „Mjög sannfærandi mad- am en það sannfærir ekki mig! Ég var ekki svo heimsk ur að trúa sögunni sem þér gædduð frænku yðar á. Heim sókn til ættingja sinna uppi í sveit!“ Hann hló og tók utan um hana. „Nei, hún gekk ekki! Ég hef séð heim inn og ég veit að engin venju ieg saumakona hefur saum- að kjólinn sem þér eruð í. Þér eruð slungin góð!“ Caroline missti rfjórn á geði sínu. Herra Ttrench hélt um vinstri hönd henn- ar en hún sló hann utan und ir með hægri hendinni svo fast að hann riðaði við. Ó- sjáifrátt sleppti hann henni og hún hljóp til dyra en þar náði hann henni. „Svo þér sýnir klærnar", urraði hann. „Heimskulegt af yður vinkona. Mjög iheimskulegt. Ríki vinurinn yðar hefur eyðilagt yður með dékri en þó hann hafi 'látið sér griilluj. yðar lynda geri ég það ekki. Ég skal kenna yður rétta fram- komu!“ Þau heyrðu að vagn nam 'Staðar fyrir utan dyrnar og 'skömmu seinna var barið fast að dyrum. Caroline barð ist um í örvæntingarfuliri tilraun ti'l að losna en hann ihló aðeins að henni og dró ihana innar í herbergið. „Þetta er bara George vin- an“, sagði hann stríðnislega. „Og hann skiptir sér ekki af þessu. Hann veit betur en svo, já. Hann gerir það sem honum er sagt að gera. Það •er rétt að kenna yður það líka svo ekki fari illa fyrir yður. Svona nú kyissið mig!“ Hann dró hana að sér og víntækjn var að kæfa hana. Caroline varð gripin skelf- ingu og veinaði ó hjálp. Hún hafið heyrt þernuna opna dyrnar og vonaði að George sviki hana ékki. „Sleppið mér, skrílmennið yðar,“ hvæsti hún. „Sleppið mér! George! George!“ Það var hlaupið eftir gang inum og isalardyrunum slengt opnum, en það var ekki Ge- orge Creswe.1'1, isem stóð í dyr unum. Caroline etarði fyrst skiilningssljó á manninn. svo stundi nú léttara, reif sig af herra Trench og staulaðist á- fram með útbreiddan faðm- inn. Herra Ravenshaw tók ör uggum höndum útan um Ihendur hennar og sagði ró- iega og kunteislega: „Það gleður mig að hafa loks fund ið yður ungfrú Creswéll, því ée hef leitað yðar um alla London í dag. Ég kem til að bjóða yður til mágkonu minn ar og ég vona að þér sýnið henni þann ;heiður að þiggja boðið. Hún vonast til að þér dveljið hjá henni fáeina daga.“ Caréline kinkði kolli, hún hafi ekki skilð fjórðapartinn af því sem hann isagði, það teina sam hún skildi var að hann hafði enn einu sinni bjargað henni. „Guði isé lof fyrir að þér komuð,“ hvís'laði 'hún titrandi röddu. „Takið mig með yður.“ „Með mestu ánægju,“ sagðj hann rólega. „Ég er með vagn fyrir utan og farangur yðar í honum. Frændi yðar var svo vin- gjarnlegur að sjá um það.“ Svo fór hann úr dyragættinni og sagði ytfir öxl: „Komið þér inn, herra Creswell. Ég er viss um að vinur yðar bíður eftir yður.“ George kom ófúslega í gættina og leit hjálparvana á hferra Trench, sem stóð og starði sem þrumlostinn á herra Ravenshaw, en Guy virti hann ekki viðlits. Hann kom auga á slá Caroline, sem lá á stólbaki, greip hana og lét hana yfir axlir hennar. Svo rétti hann henni hatt hennar og hanzka. „Við skulum 'koma, ma- dam,“ sagði hann rólega. „Jane bíður yðar. Ég héld að þér ættuð efcki að kveðja herra Trenc.“ Hann leit kuldalega og hæðnislega á manninn, en herra Trench svaraði engu. Vonbrigðin skinu úr svip herra Raven- shaw, en hann sagði ekkert, snerist aðeins á haali og fylgdi Caroline á braut. Það var ekki tfyrr en þau faöfðu ekið sm'áspöl, isem Ca- roline fékk mlálið aftur. Guy hafði ékki gert neina tilraun tii að rjútfa þögnina og nún 'Sagði Jáigt: „Eg veit ekki hvernig þér fóruð að því að rata þangað, en ég hef aldrsi orðið jafn fegin að isjá neinn alla mlína sevi og ég varð að sjá yður.“ Hann svaraði engu og eftir smáþögn sagði hún feimnislega: „Yður finnst það sennilega einbennilegt að ég skyldi fara þangað, en frú Fenton var ékki heima og ég átti enga peniniga og ég vissi ekki hvert ég átti að fara • ■“ Orð hennar dóu út og hún sat og tfiitlaði við hanzkana Isína, • „Ég iskiil þetta allt, ma- dam,“ sagði hann kuldálega. ,,Ég skil vel að þér voruð í vanda stödd. Hins vegar skil ég ekki að þér skylduð treysta Trenoh betur en mér.“ Hún mótmælti veiklulega, en hann hélt jafn kuldalega áfram: „Því í herrans nafni leituðuð þér ekki til mín? Þér efuðust iþó ekíki um að ég myndi hjálpa yður?“ „Nei! En hvernig hefði ég getað gert það? Ég hetf þegar valdið yður svo miklum ó- þægindum og ég hatfði ekki leyfi til að koma yður í frek- ari vanda.“ Hún reyndi að hafa stjórn áisér, en það mis- 'heppnaðist algerlega því þeg ar ku'ldi hans bættist við ailt það, sem hún hafði orðið að bera, gat hún ekki meira. Rödd hennar bra'st og í ann- að skipti þennan viðburða- ríka dag grét Caroline Cres well. Áhrifin létu ekki á sér standa. Reiði herra Raven- shaws hafði verið eðlileg af- leiðing af ótta faans um vel- ferð hennar og nann iðraðist sárlega. Hann hafði alltaf lit- ið fyrirlitlega á konutár, en nú skipti 'hann um skoðun. 'Hann 'tók bláitt áfram konuna f faðm sér og isagði blíð’lega: „Veslings barnið mitt, grátið ekki. Það er viðurstyggi'legt af mér að korna Isvona fram við yður efftir aRt, isem þér hafið orðið að þola í dag.“ Caroline mótmælti ákaft, Eftir Sylvia Thorpe en það heyrðist varla, því andlit hennar hvíldi við þykk an ulllarfrakka hans. En eftir augnablik skildi hún hve framferði þeirra var ósæmi- legt og hún sleit sis af hon-,. um og itautaði: „Mér finnsfí leitt að ég siku'li haga mér, svo heimskulega og ég skil, ekki hvers vegna 'þér eruð svona góður við miig. Ég á það ekki ski'lið." Hann sleppti henni og hún 1 settist upp og þerraði augu sín. Svo reyndi hún að ná aftur sjálfsstjórn sinni, en.. það var ekki auðveit. Hún, óttaðist að hún faefði komið . upp um sig, því hjarta hfenn- ar sló ótrúlega hratt og það var eklki vegna erfiðleikanna,,, sem ihún hafði ient tí. Og það:! gladdi hana að hann sá ekki andlit hennar ij myrkrinu. ,,Ég ætti að fflengja yður, því það ættuð þér skilið,“ sagði Guy stríðnislega. „Ég vildi ekki lifa þennan daga upp aftur fyrir öll auðæfi.* heimsins!“ "* Þessu var ekki hægt að" svara. Caroline snýtti sér,v lagfærði hatt sinn og batt ^ böndin fastar u'ndir hökunni. „Hvert eruð þér að fara mfeð mig, herra?“ spurði hún auð- .: mjúk. „Til mágkonu minnar eins og ég sagði yður áðan.“ Rödd hans titraði af ni ðurbældum hlátri. „Heyrðuð þér ekki' hvað ég sagði, ungfrú Crfes- well? Eða faéiduð þér ef til vill að það væri kurtJeisiLeg , lygi til að dylja ósæmilegar , ætlanir?" Hann Ibeið um stund, en þegar hún svaraði engu hló hann lágt. „Allt í lagi. Ég skal ekki stríða yð- ur meira. Þér getið búið feihs 1 S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s 1 s s s s s s s s s s s S s s s s s s DAGURINN var honum óvenjuerfiður. Hann átti bágt með að sitja kyrr. Ein hver órói var í honum. Það var eitthvað svo óvenju- erfitt að sitja svona og telja þessi blöð, flokka þau og bunka, þetta sama nudd upp aftur og aft'ur. Bara, að hann mætti fara út og gera eitthvað annað, — vinna. Jafnvel tilbreytingar- laust pikk ritvélarirmar æsti iiann. Stúlkan, sem sat við að vélrita, minnti hann svo mikið á Rúnu,. — lítil, þybbin, með stóran munn. Hann langaði að segja þessu öllu í helvíti, en hann hafði heitið því að sitja á sér, láta sem ekk- ert væri, vera rólegur, ekki æðrast. Hann skyldi Ifka hafa það af. En þessj dagur var ó- venjuerfiður. Kannski var það af því veðrið var svo gott. Strax í morgun var allt leiðinlegt: Þetta er upphaf af smá- sögu eftir nýjan höfund: Franklín Þórðarson. Sagan heitir „Sögulok“ og birt- ist í Vikunni. Tryggið ykk- ur eintak í tima. V S s s s s s s. s s. S' s S' s s s s s> s sr' s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s V Alþýðublaðið — 27. jan. 1961 Jjjj'

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.