Alþýðublaðið - 15.09.1961, Side 13
VISSAR ástæður valda
öllum athöfnum manna og
ákvörðunum- Ekki eru í þess
um efnum undanskildir gern
ingar, sem ætlað er að hafa
lögfylgjur eða réttarlegar af-
leiðingar.
Þegar loforð er gefið eða
samningur gerður, liggja til
þess ákveðnar hvatir eða á-
stæður hjá viðkomandi aðil-
um. Þessar ástæður eru oft
ast margvíslegar, en þær
mega sín mjög misjafnlega
mikils. Sumar eru svo mikil
vægar, að þær ráða algerlega
úrslitum um það, hvort lof-
orð er gefið.
Stundum er slíkur þungi
lagður á þessar ástæður, að
þær erp beinlínis teknar
fram í loforðinu sem skilyrði
þess, og byggist tilvera lof-
orðsins þá á því, hvört skil-
ýrðið kemur fram eða ekki.
Er þar greint milli frestskil
yrða og lausnarskilyrða.
Almenn áheit eru frestsskil
yrði. Þegar A lofar B fjár-
hæð, ef hann fær stöðu þá,
sem hann er að sækja um, er
alll komið undir stöðuveit-
ingunni, hvort A verður að
efna loforð sitt. Hins vegar
ier það lausnarskilyrði, þegar
A heitir B því að búa hjá sér
endurgjaldslaust, meðan
hann er við r.ám. Að B stundi
nám, er hér skilyrði loforðs-
ins. Um leið og hann hefur
lokið náminu eða hætt því,
er A laus við loforð sitt.
Þegar skilyrði eru tekin
beint fr,am í samningi er yfir-
leitl ekkert vandamál á ferð-
inni. Samningurinn sjálfur
sker þá venjulega úr því,
hvaða áhrif skilyrðið hefur á
samningsstöðu aðilanna
Oftast er málum þó svo far
ið, að löggerningur lætur ó-
sagt um þær ástæður, sem
honum að baki liggja. Þær
ástæður, sem gerningurinn
ekki greinir, eru kallaðar for
sendur.
kaupir viðtökutæki til nota
gelur missýnzt um atvik eða
metið rangt aðstöðu, sem fyr
ir hendi er, þegar löggerning
ur er gerður. A greiðir t. d.
kaupmanni fjárhæð ir.n á við
skiptareikning sinn í þeirri
röngu trú, að hann skuldi. A
kaupr viðtökutæki til að r.ota
í óraflýstum sumarbústað, en
gætir þess ekki, að tækið
gengur aðeins fyrir rafmagni.
Hér hefur gerningurinn
byggzt á röngum forsendum.
Það eru hins vegar brostn
ar forsendur, þegar atvik
hafa leitt til þess, að hug-
myndir manna um það,
hvernig ástatt yrði í framtíð
inni, hafa ekki reynzt réttár.
Dæmi má nefna, að iðnrek-
andi tekur á leigu húsnæði
til framleiðslu á ákveðinni
vörutegund, en þegar starf-
rækslan á að hefjast, hefur
ríkið áskhið sér einkarétt til
þessarar framleiðslu. A selur
land á leigu gegn ákveðnu
gjaldi, en stórkostleg hækkun
verðlags raskar gersamlega
þeim fjárgrundvelli, sem leig
an var byggð á.
Til styttingar er huglakið
brostnar forsendur þó iðu-
lega einnig látið ná lil rangra
forsenda.
Það hefur löngum verið
viðurkernt, að forsendur
geta brostið með þeim hætti,
að loforðsgjafi verður ekki
bundinn af loforði sínu —
það verður ógilt af þessum
sökum. íslenzku samninga-
lögin frá 1936 hafa engin á-
kvæði um réttaráhrif brost-
inna forsenda. Á sama veg er
þessu farið í öðrum norræn-
um samningalögum.
Þögn, laganna, sem geyma
ítarleg ákvæði um ógildingar
ástæður löggerninga, verða
þó ekki skilin á þann veg, að
brostnar forsendur geli ekki
leitt til ógildingar í greir.ar
gerðum fyrir frumvörpum
að þessum lögum er hvar-
vetna hreyft við þessu spurs-
máli. Niðurstaðan er þar sú,
að viðfangsefnið sé svo flók
ið úrlausn.ar og erfiðleikum
bundið að „formú'era“ heppi
lega lagareglu, þanr.ig að
málið væri í rauninni jafn-
óleyst, þótt ákvæði væru lög
bundin um það.
Deilan stendur því e'kki um
það, hvort brostnar forsend-
ur séu ógildingarástæður, —
heldur um hitt, hvenær og í
hve ríkum mæli ógildingin á
að eiga sér stað.
'Viðhorfið til loforðsmótlak
and.a ræður því, að ógilding
er ekki viðurkennd, þótt létt
væg ‘forsenda hafi brostið, ef
ælla má, að hún hafi engin
áhrif haft á loforðsgjöfina.
Það er því fyrsta skilyrðið til
þess að unnt sé að byggja ó-
gildingu á brostinni forsendu,
að um ákvörðunarástæðu hafi
verið að ræða hjá loforðs-
gjafa- En með því er átt við,
að hann hefði ekki gefið lof
orðið, nema hin brostna á-
stæða hefði verið fyrir hendi
En jafnvel þótt forsenda
hafi verið ákvörðunarástæða,
leiðir hún ekki til ógildingar,
r.ema loforðsmóttakanda hafi
verið Ijóst eða átt að vera það
Ijóst, að forsendunni var
þennan veg farið. Það er sem
sagt ekki nægilegt, þótt full
sar.nað sé, að forsendan var
ákvarð.andi fyrir vilja loforðs
gjafa, ef viðtakandi mátti
þetta ekki vita-
í sumum tilfellum er bað
heldur ekki nægilegt til ógild
ingar iöggernings, þótt fram
angreindum tveimur skilyrð
um sé fullnægt. Ef A, sem
ætlar að ganga í hjónaband,
semur um smíði á húsgögn-
um að því trlefni og segir selj
and.a frá ráðagerðum sínum,
þá getur hann ekki riftað
samningnum, þótt ekkert
verði úr brúðkaupinu. Niður
staðan verður sú sama, ef A
kaupir vörur í von um vænt
anlega verðhækkun, en síðan
kemur verðlækkun í ljós. —
Samningurirn er bindandi,
enda þótt seljandinn hafi vit
að, að verðhækkunarsjónar-
miðið var ákvarðandi ástæða.
Ef hins vegar A kaupir hest
af B í þeim tilgargi að nota
hann til útreiða sér til
skemmtunar, en honum er
síðan sendur burðarjálkur,
getur A riftað 'kaupum, ef
seljanda var Ijóst til hvaða
nota hesturinn var ætlaður.
Á sama hátt yrði A ekki bund
inn við ábyrgðarskuldbind-
ingu sína, ef skuldareigandi
vissi eða mátti vita, að A
gekk í ábyrgðina vegna þess,
að ráð var gert fyrir, að B
yrði einnig ábyrgðarmaður,
sem þó ekki varð.
Það er vissulega torvelt að
setja fram algilda reglu um
þetla atriði. Tilvikin eru
mörg og niðurstöður ólíkar,
eins og dæmin að framan
sýna. Sumir hafa viljað setja
fram þá reglu, að löggerning
ur sé ógildur, hafi veruleg
forsenda brostið. Með þessu
er vandinn þó ekki leystur,
því að þá rís strax spurning
in: Hvenær telst forsenda
veruleg?
Til leiðbeiningar f þeim
efnum er rétt iað hafa í huga,
hvort loforðsgjafi hefði getað
gert forsenduna að skilyrði
við samningsgerðina og hvort
líklegt sé, að loforðsmóttak-
andi hefði í því tilfelli gengið
að skilyrðinu. Ef þessum
spurningum verður svarað
játandi, er ógildingin fyrir
hendi, eins og í dæmunum
um skuldarábyrgðiná og
hrossakaupin. Verði svarið
neitandi, er samningurinn
bindandi þrátt fyrir forsendu1
brestinn, en svo er málum far
ið í dæmunum um húsgagna
kaupin og vörulokunina.
Alþýðuhúsið - Sauðárkróki
Höfum opnað veitingasölu að Aðalgötu 7,
Sauðárkróki, sími: 165.
Á boðstólum:
Kaffi, mjóSk, smurt brauð, pylsur,
skyr, smáréttir.
Einnig öl, tóbak og sæigæti.
Tökum á móti hópferðum í mat og kaffi með
fyrirvara.
Opið alla daga kl. 9 f. h. til kl. 11,30 e. h.
ÐSENDING
frá Happdrætti Verkalýbsm
nefndar Albýðuflokksins
Allir þeir, sem hafa fengið senda happdrættismiða frá Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksin,s eru
vinsamlega minntir á að gera skil hið allra fyrsta, á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—..ó.
DregiÖ 16. september. — Drætti EKKI frestað.
Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins.
Alþýðublaðig — 15. sept. 1961